Fréttatíminn - 25.09.2015, Side 20
Fulltrúar
Ungverja
ruku á dyr
með þjósti
Þrír fulltrúar ungverskra stjórnvalda spruttu úr sætum og
gengu út af opnunarhátíð Bókamessunnar í Gautaborg eftir
að rússneska baráttukonan Masha Gessen sagði að sér fyndist
óbærilegt að tala í návist þeirra.
Ó venjuleg staða kom upp á opnunarhátíð Bóka-messunnar í Gautaborg á
fimmtudagsmorgun þegar fulltrúar
ungverskra stjórnvalda risu úr sæt-
um og gengu á dyr eftir harðorða
ræðu rússnesku baráttukonunnar
og rithöfundarins Möshu Gessen,
baráttumanns fyrir réttindum sam-
kynhneigðra í Rússlandi og eins
harðasta andstæðings Pútíns Rúss-
landsforseta, sem flúði land árið 2013
vegna ofsókna gegn samkynhneigð-
um. Að sögn íslenskra sjónarvotta
var augsýnilegt að Ungverjunum var
gróflega misboðið. Ræðan varð enn
sterkari í ljósi þess að Gessen er and-
lit Bókamessunnar í ár sem haldin er
undir yfirskriftinni tjáningarfrelsi.
Gessen lýsti því í ræðu sinni
hversu erfitt væri að vera rithöf-
undur í þrúgandi stjórnmálaástandi
eins og ríkir nú í Ungverjalandi.
Hún klykkti út með því að vissulega
væri gaman að mæta á Bókamess-
una og koma sínum sjónarmiðum á
framfæri við allt þetta fólk, en henni
fyndist alveg óbærilegt að þurfa
að tala í návist leiðtoga Ungverja-
lands. Um leið og hún sleppti orðinu
spruttu þrír fulltrúar Ungverjalands
upp og skunduðu út með þjósti.
Það sem gerir þessa uppákomu enn pín-
legri er að Ungverjaland er fókuslandið á
bókamessunni í ár, sem var ákveðið fyrir
tveimur árum, og athyglin beinist þar af
leiðandi enn meira að því en öðrum lönd-
um.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra
var einn þeirra sem ávörp fluttu við opnun-
ina og segir Kristín Helga Gunnarsdóttir,
formaður RSÍ, að honum hafi mælst sér-
lega vel um mikilvægi þess að sýna hvert
öðru virðingu, hvaðan sem við kæmum og
verið mjög vel fagnað. „Ég var svo dolfall-
in yfir því hvað ráðherranum okkar mælt-
ist vel að ég missti af þessari uppákomu,“
segir hún, „en það var hins vegar greini-
legt allan tímann að nærvera fulltrúa ung-
verskra stjórnvalda var eins og bleikur fíll
í stofunni.“
Sautján íslenskir rithöfundar koma fram
á bókamessunni í ár undir formerkjunum
Raddir frá Íslandi og sagði Hrefna Haralds-
dóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar ís-
lenskra bókmennta, í gær að framganga
þeirra hafi fengið mikla athygli. „Við erum
á blússandi siglingu og búin að vera fjöl-
mörg prógrömm með íslenskum höfundum
í dag. Íslendingasagnaprógramm í morgun
Hún klykkti
út með því
að vissulega
væri gaman
að mæta
á Bóka-
messuna og
koma sínum
sjónarmiðum
á framfæri
við allt þetta
fólk, en henni
fyndist alveg
óbærilegt að
þurfa að tala
í návist leið-
toga Ung-
verjalands.
Einar Kárason og Gerður Kristný voru fulltrúar Íslands í prógrammi um Íslendingasögurnar.
20 bækur Helgin 25.-27. september 2015