Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Side 24

Fréttatíminn - 25.09.2015, Side 24
V ið erum að setja upp Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur, sem var einn af okkar virtustu rithöfundum á 20. öld,“ segir Tinna Hrafnsdóttir, leikkona og leikstjóri. „Mér skilst að þetta verk hafi síðast verið sett á svið hér á landi hjá Leikfélagi Akureyrar árið 1987 og mér fannst vera kominn tími á að setja þetta upp að nýju,“ segir hún. „Áður hafði verkið verið sett upp í Þjóðleikhúskjall- aranum árið 1983 en eftir það gerði Svava nýja og endurbætta leikgerð og það er hún sem við erum að vinna með. Að mér vitandi hefur þessi leikgerð ekki verið sett upp áður í Reykjavík.“ „Ég og maðurinn minn, Sveinn Geirsson, stofn- uðum leikhópinn Háaloftið fyrir nokkrum árum og það er undir því nafni sem Lokaæfing fer á svið,“ segir Tinna. „Mig langaði til að segja sögu þessara hjóna sem Lokaæfing fjallar um og var svo heppin að fá góðan hóp listamanna til að gera það með mér. Leikarar eru Þorsteinn Bachmann og Elma Lísa Gunnarsdóttir sem leika hjónin, og Kristín Péturs- dóttir sem er nýútskrifuð leikkona. Ég leikstýri og framleiði, Sveinn semur tónlistina, Stígur Stein- þórsson gerir leikmynd, Una Stígsdóttir hannar búninga, Arnþór Þórsteinsson lýsingu og svo er Arnmundur Ernst Backman aðstoðarleikstjóri og hjálpar mér að halda utan um þetta allt saman,“ segir Tinna. „Okkur langaði líka að setja þetta verk upp vegna þess að í ár er 100 ára kosningaafmæli kvenna og Svava var ötul baráttukona á þingi fyrir jafnrétti. Þann 4. október, á frumsýningardaginn, hefði hún orðið 85 ára gömul. Okkur fannst ærin ástæða til þess að minnast hennar með þessu auk þess sem þessi sýning er hluti af lestrarhátíð Bókmennta- borgar Unesco,“ segir Tinna. „Í ár er áhersla lögð á Svövu og hennar verk, svo það verða ýmsir við- burðir tengdir henni um alla borg í október.“ Á erindi við nútímann „Þegar Svava skrifaði Lokaæfingu í kringum 1980 var kalda stríðið í algleymingi og óttinn við kjarn- orkustríð mikill,“ segir Tinna. „Rammi verksins er því um hjón sem ákveða að dveljast vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi, sem er undir kjallara hússins þeirra. Dvölin er lokaæfing á því hvernig þau hyggjast lifa af þegar heimurinn ferst, könnun á því hvað getur farið úrskeiðis og hvað má betur fara og slíkt. Í okkar sviðsetningu aðlögum við verkið að nútímanum, heimsmyndin í dag er svo breytt. Við skilgreinum því ekki nákvæmlega hvað þau eru að flýja. Þau eru á yfirborðinu að flýja heimsendi í hvaða mynd sem hann er enda er verkið fyrst og fremst um þann heim sem þau búa til þarna niðri í byrginu,“ segir Tinna. „Okkur fannst það sterkari leið til þess að verkið ætti meira erindi við nútímann. Í dag er svo marg- þætt hvað við óttumst, hryðjuverkaárásir, stríð, hlýnun jarðar, matarskort, flóttafólk og innflytj- endur,“ segir hún. „Hjónin Ari og Beta ákveða að einangra sig frá umheiminum, þau tvö ætla að lifa af heimsendi en kaldhæðnin er sú að sá heimur sem ferst er heimurinn þeirra þarna niðri,“ segir Tinna. „Ekki sá heimur sem er fyrir ofan. Fullkom- in einangrun afhjúpar tilveru þeirra, smám saman mást út mörk raunveru og ímyndunar og allt fer á versta veg,“ segir Tinna. Brann fyrir sögunni Lokaæfing er ekki frumraun Tinnu sem leikstjóra og hún segir hlutverkið eiga vel við sig, hún vilji Okkur fannst það sterkari leið til þess að verkið ætti meira erindi við nútímann. Í dag er svo marg- þætt hvað við ótt- umst, hryðjuverkaá- rásir, stríð, hlýnun jarðar, matarskort, flóttafólk og innflytj- endur. Vil segja sögur Leikkonan Tinna Hrafnsdóttir stofnaði fyrir nokkrum árum leikfélagið Háaloftið ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Sveini Þóri Geirssyni. Í byrjun október frumsýnir Háaloftið verk Svövu Jakobsdóttur, Lokaæfingu, í Tjarnarbíói. Tinna segir leikstjórnina eiga vel við sig. Hún vill segja sögur, en er þó ekki hætt að leika. „Mér finnst virkilega gaman og lærdóms- ríkt að skapa mér mín eigin verkefni,“ segir Tinna Hrafnsdóttir. Ljósmynd/Hari segja sögur. „Ég leikstýrði verki í fyrra sem heitir Útundan, og var sett upp í Tjarnarbíói af okkur í Háaloftinu,“ segir Tinna. „Það fjallar um þrjú pör sem kljást við ófrjósemi. Mig langaði með því verki að vekja athygli á því „tabúi“ sem ófrjósemi er,“ segir hún. „Ég þurfti sjálf að kljást við ófrjósemi í fimm ár og var svo lánsöm að eignast tvo yndis- lega drengi. Mig langaði að segja sögu fólksins sem er í þessum aðstæðum. Þetta verk vakti töluverða athygli og ég fann að fólki fannst þörf á umræðunni um þessar aðstæður,“ segir hún. „Þetta er algengt vandamál, eitt af hverjum sex pörum í hinum vestræna heimi þarf að kljást við þetta, sem er mjög hátt hlutfall og manni bregður við að heyra það. Svona aðstæður eru viðkvæmar og erfitt að tala um og þessi sýning var liður í því að opna umræðuna.“ „Ég hef mikinn áhuga á leikstjórn og ég tók það skref að gera það með þessari sýningu,“ segir hún. „Ég finn mig mjög vel í því hlutverki. Mig langar að segja sögur og með því að leikstýra getur maður svolítið valið hvaða sögu maður vill segja hverju sinni því í öllum góðum verkum eru margar sögur. En mér finnst líka gaman að leika og vil halda því áfram,“ segir Tinna. „Mér finnst virkilega gaman og lærdómsríkt að skapa mér mín eigin verkefni. Ég brann fyrir því að koma Lokaæfingu á svið eftir að ég las leikritið og velti því lengi fyrir mér hvort ég ætti að leika eða leikstýra,“ segir hún. „Ég fann loks að ég hafði svo sterka skoðun á því hvaða leið ætti að fara að verkinu í dag að ég ákvað að leik- stýra því og sé sko ekki eftir því, segir Tinna. Samvinna í hjónabandinu Eiginmaður Tinnu, leikarinn Sveinn Þórir Geirs- son, semur tónlistina í verkinu og segist hún hafa mikla trú á honum á því sviði. „Það þekkja hann margir sem leikara en það eru færri sem vita af því að hann er mjög fær músíkant,“ segir Tinna. „Ég gerði mína fyrstu stuttmynd nýlega sem hann samdi tónlistina við og hún var virkilega flott, kalt mat. Hann samdi líka tónlistina við Útundan og það voru margir sem voru hissa á því að þar færi frum- samin tónlist,“ segir hún. „Hann á mikið erindi á þessu sviði og við höfum unnið mikið saman í gegnum árin. Við kynntumst í leikhúsinu og lærðum fljótt að vinna saman og erum miklir vinir,“ segir Tinna Hrafnsdóttir leikkona, og leikstjóri. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 24 viðtal Helgin 25.-27. september 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.