Fréttatíminn - 25.09.2015, Page 60
Ensími í
Reykja-
vík og á
Akur eyri
Hljómsveitin Ensími gaf
út nýverið fimmtu breið-
skífu sína og ber hún heitið
Herðubreið. Hljómsveitin
hefur aðallega komið fram
á hátíðum á borð við Secret
Solstice og Bræðslunni í
sumar en nú er komið að
því að sveitin haldi tónleika.
Fyrri tónleikarnir verða á
föstudagskvöldið á Húrra en
svo fer hljómsveitin norður
og leikur á Græna Hattinum
á laugardagskvöldið. Ens-
ími ætlar að leika ný lög af
plötunni Herðubreið í bland
við eldri slagara og lög
sem sjaldan fá að heyrast
á tónleikum. Hægt verður
að kaupa Herðubreið á tón-
leikunum og fá hana áritaða
af meðlimum Ensími. Breið-
skífan Herðubreið er sú
fimmta sem rennur undan
rifjum hljómsveitarinnar.
Hún var unnin í nokkrum
lotum af liðsmönnum sveit-
arinnar undir dyggri stjórn
Hrafn Thoroddsen, for-
sprakka Ensími. Herðubreið
var hljóðblönduð af Arnari
Guðjónssyni hjá Aeronaut
Studios og tónjöfnuð af
Mandy Parnell hjá Black
Saloon í Bretlandi. -hf
Sálarsysturnar Kristjana Stefáns-
dóttir og Ragnheiður Gröndal blása
til tónleika ásamt Kjartani Valde-
marssyni píanóleikara á Café Ro-
senberg á laugardagskvöldið. Þau
ætla að leika sér með amerísku
söngbókina og þreifa á lendum tón-
listargyðjunnar eins og þeim einum
er lagið. Spuni, spjall og dramatík
allt í bland.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og standa í um 2 klukkustundir.
Miðasala er við innganginn og að-
gangseyrir 2.000 krónur.
Ragga og Sjana
á Rósenberg
TónlisT
MyndlisT sýning MargréTar JónsdóTTur í iðnó
List á tímum firringar
g uðrún Erla Geirsdóttir skipuleggur sýningarröð-ina „Argintætur í mynd-
list,“ í samvinnu við Gallerí Gest og
Menningarhúsið Iðnó í tilefni af 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Sýningin á verkum Margrétar
Jónsdóttur er sú fyrsta í haust,
en þær sem sýna síðar eru Rúna
Þorkelsdóttir, Harpa Björnsdóttir,
Margrét Jónsdóttir og Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir. Listakon-
urnar eiga það sameiginlegt að vera
fæddar í kringum miðja síðustu
öld. Þær voru að stíga sín fyrstu
skref í myndlistinni er önnur bylgja
femínismans var farin að hafa þau
áhrif að konur töldu fullvíst að þær
kæmust til vegs og virðinga ekki
síður en karlarnir.
„Verkin eru úr myndaröðinni IN
MEMORIAM. Þau byggja á hug-
leiðingum um list og listframleiðslu
á tímum firringar, þar sem mark-
aðshyggja er allsráðandi. Er ég
dvaldi við Cité Internationale Des
Arts í París komst ég að því hverjar
formæður mínar í kvenlegg voru,“
segir Margrét. „Mér finnst vel við
hæfi að geta þeirra nú. Mettu Hans-
dóttir í Vík og Gunnhildar yngri
„kóngamóður“, sem sögð var hinn
mesti svarkur. Metta braut hefðir
og venjur enda menntuð og úr öðru
menningarsamfélagi. Þar var lista-
kona á ferð,“ segir hún. „Hún söng
og kenndi m.a. dans sem var bann-
að á þessum tíma. Metta var síðasti
ábúandinn á landnámsjörð Ingólfs
Arnarsonar. Þessar uppgötvanir
opnuðu gáttir sem leiddu til þess
að ég öðlast skilning á mörgu í lífi
mínu og fór að vinna frönsku vegg-
fóðursverkin út frá tilfinningum
sem vöknuðu, ásamt ádeilu,“ segir
Margrét.
Margrét er ein af stofnendum
Gallery Suðurgötu 7 sem var
mikilvæg miðstöð í þróun fram-
línumyndlistar á Íslandi. Einnig
er hún einn af stofnendum Hags-
munafélags myndlistarmanna sem
var undanfari Sambands íslenskra
myndlistarmanna sem síðar leiddi
að stofnun SÍM. Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur segir m.a.
um verk Margrétar: „Óhætt er að
segja að viðhorf Margrétar Jóns-
dóttur til myndlistar hafi sjaldan
rúmast innan ráðandi sjónarmiða
í hérlendu myndlistarumhverfi, til
þess er henni einfaldlega of mikið
niðri fyrir. Með tjáningu þessara
viðhorfa hefur hún iðulega staðið
berskjölduð og fullkomlega til-
litslaus og jafnframt fullkomlega
heiðarleg – gagnvart sjálfri sér og
áhorfendum.“ Verk Margrétar eru
í eigu Listasafn Íslands, Listasafn
Reykjavíkur, Listasafn Kópavogs,
Listasafn Reykjaness ásamt, mörg-
um opinberum stofnunum.
„Í mínum huga getur listamaður
aldrei farið út í framleiðslu, það er
eitthvað miklu dýpra sem verið er
að fást við og því er ekki hægt að
leggja listina og hönnun að jöfnu,“
segir Margrét Jónsdóttir mynd-
listarkona. Sýningin var opnuð í
gær, fimmtudag, en hún stendur til
22. október.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Margrét Jónsdóttir sýnir í Iðnó.
Listmálarinn Margrét
Jónsdóttir opnaði í gær,
fimmtudag, sýningu sína
In Memoriam í menn-
ingarhúsinu Iðnó við
Vonarstræti. Margrét
er menntuð við Mynd-
lista- og handíðaskóla
Íslands, með diplóma
í frjálsri myndlist og
síðar diplóma í grafískri
hönnun. Hún stundaði
mastersnám við Central
Saint Martins Collage of
Art í London og hefur
haldið á fimmta tug
einkasýninga og tekið
þátt í fjölda samsýninga
hér á landi og erlendis.
Hún segir sýninguna
byggja á hugleiðingum
um list og listframleiðslu
á tímum firringar, þar
sem markaðshyggja er
allsráðandi.
60 menning Helgin 25.-27. september 2015