Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Qupperneq 62

Fréttatíminn - 25.09.2015, Qupperneq 62
Helgin 25.-27. september 2015 Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson gáfu út á dögunum plötuna Bræðralag. Á plötunni sömdu þeir lög fyrir hvorn annan þar sem æðsta markmiðið var músíkölsk samræða. Upptökurnar fóru fram á Kolsstöðum í Borgar- firði í sumar. Þeir Ómar og Tómas hafa spilað saman í nær áratug, ýmist tveir einir eða með fjölmenn- ari sveitum. Á sunnudaginn hefja þeir félagar tónleikaferð um landið hvar þeir munu halda 8 tónleika á jafn mörgum dögum. Þeir hefja ferðina í Garðaholti í Garðabæ á sunnudag. 28. september í Hljóma- höllinni í Reykjanesbæ. 29. sept- ember á Bryggjunni í Grindavík. 30. september í Ráðhúsinu í Þor- lákshöfn. 1. október í Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri. 2. október á Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. 3. október í Löngubúð á Djúpavogi, og ferðin endar svo þann 4. októ- ber í Brján í Neskaupstað. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 20.30, nema í Grindavík, á Höfn og á Djúpavogi. Þar hefjast tónleikarnir klukkan 21. -hf  Tónleikaferð Músíkölsk saMræða Ómar og Tommi fara um landið Ómar Guðjóns- son og Tómas R. Einarsson Þ etta er nýtt íslenskt leik-verk sem við unnum með samsköpunaraðferð, eins og það er kallað,“ segir Agnes Wild, leikstjóri sýningarinnar Mæður Ís- lands. „Það var ekkert handrit fyrst en það var unnið úr sögum um konur frá leikhópnum sjálfum. Titillinn er hugmyndin sem við vinnum út frá. Þetta er hugmynd sem mig, ásamt Sigrúnu Harðardóttur, höfundi tón- listar, og Evu Björg Harðardóttur, leikmynda- og búningahönnuði, langaði að framkvæma. Okkur fannst þetta áhugavert umræðu- efni,“ segir hún. „Okkur langaði að fjalla um „móðurina“ „dótturina“ og „konurnar.“ Það eiga það allir sam- eiginlegt að vera fæddir af konu og eiga móður, eða ömmu þrátt fyrir að vera ekkert endilega alin upp hjá þeim,“ segir Agnes. „Í verkinu leika tíu leikkonur á aldrinum 17 til 80 ára og við erum þrír ættliðir sem eru saman í þessu. Ég, mamma og amma,“ segir hún. „Svo eru einar mæðgur líka og þetta er mjög flottur hópur kvenna sem er saman í þessu. Við unnum sögur og verkefni saman. Vorum með bréfa- skriftir og þetta eru allt sannar sög- ur sem við unnum með. Ekki endi- lega reynslusögur þessarra kvenna en þær höfðu allar heyrt þessar sög- ur frá sínum mæðrum, ömmum eða langömmum,“ segir Agnes. „Allt sem kemur fram er sann- sögulegt en við tökum okkur vissu- lega skáldaleyfi þar sem það á við og gerðum þetta leikhúsvænna. Sögurnar eru ólíkar þar sem við erum bæði með sögur frá þeim yngstu og þeim elstu í hópnum,“ segir hún. „Svo við erum að fjalla um nútímakonuna og konurnar úr fortíðinni.“ Leikfélagið í Mosfellsbæ hefur sett upp tvær sýningar á ári undan- farin ár og hefur aðsóknin alltaf verið mjög góð. „Þetta er haustsýn- ingin okkar í ár, en við ætlum líka að vera með jólasýningu þar sem við einbeitum okkur að yngri kyn- slóðinni. Þessi sýning er fyrir full- orðna og umfangið er mikið,“ segir Agnes. „Tónlistin er frumsamin og flutt í sýningunni og við breytum svolítið útliti leikhússins í þessari sýningu og leikum okkur svolítið með formið.“ Leikfélag Mosfellsveitar var stofnað árið 1976 og var í ár valið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar. „Nafninu hefur samt aldrei verið breytt,“ segir Agnes. „Þegar sveit- in breyttist í bæ þá var það einhver íhaldssemi og stolt sem varð til þess að leikfélagið hélt sveitarnafninu og það er bara skemmtilegt,“ segir Ag- nes Wild leikstjóri. Mæður Íslands verður frumsýnt þann 30. september og allar nánari upplýsingar má finna á Facebook- síðu Leikfélags Mosfellssveitar. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  leiklisT nýTT íslenskT verk í Mosfellsbæ Sannar sögur af íslenskum konum Mæður Íslands er nýtt íslenskt leikverk sem verður frumsýnt í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ í næstu viku. Leikverkið er unnið út frá frásögnum og sögum um íslenskar konur, líf þeirra, tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á aðra og hvernig aðrir upplifa þær. Leikararnir skapa og skrifa leikverkið ásamt leikstjóranum Agnesi Wild og segir hún leikhópinn, sem skipaður er konum á aldrinum 17 til 80 ára, hafa komið með magnaðar sögur á borðið þegar hópurinn samdi handritið. Leikkonuhópurinn sem stendur að sýningunni Mæður Íslands. Ljósmynd/Hari 62 menning Til hamingju e daginn Stóri tísku- og snyrtivörukainn 2. október Nánari upplýsingar veitir Kristi Jo í síma 531-3307 eða á tölvupósti á kristijo@frettatiminn.is Meðal annars munum við alla um: • Þurrsjampó • Serum • Augnförðun • Nýju haustlitina • Nýju ilmina • Hausttískuna í fatnaðinum Þú vilt ekki missa af þessu!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.