Dagrenning - 01.10.1946, Blaðsíða 36
Hversu mikilfenglegt og fullkomið er eigi
samræmi það, sem við oss blasir, er vér ber-
um tímatal þetta sarnan við Pýramidann
mikla! Lesandinn mun veita því athygli, að
sköpunarár Adarns, 5394 f. K., er það sama,
sem opinberað er í Pýramidanum. Sjáum vér
af þessu, að lárétta greinin mikla í Pýramid-
anum, frá uppbafi lárétta gangsins að drottn-
ingarsalnum og yfir salinn þveran, er tákn-
ræn og stærðfræðileg yfirsýn alls ferils mann-
kynsins, frá sköpun Adams í upphafi til
enda þúsund ára ríkisins. Öll lengdin, frá
upphafi lárétta gangsins og yfir drottningar-
herbergið, út að vegg, er 83,87 almennar
egypzkar álnir; það hefir sýnt sig, að mæli-
kvarðinn er alin = öld, og sé hann notaður
óbreyttur alla leiðina, sýnir hann 83,87 aldir
eða 8387 ár, eins og er frá 5394 f. K. til
2994 e. K.
Síðustu 10 aldirnar, eða 1000 árin, eru
táknuð með síðustu 10 álnunum á þessari
leið og er það drottningarsalurinn, sem bæði
er stór og mikilfenglegur að gerð, og táknar
því svo sem bezt á við þúsund ára ríkið
sjálft, og ártalsmælingin ákveður tímabil þús-
und ára ríkisins nákvæmlega. Ekki var hægt
að óska sér annars, er betur væri fullnægj-
andi, einfaldara, markvissara, nákvæmara og
altækara! Sannlega er það Guði líkt! Þetta
hyggjum vér að sé rétta leiðin til þess að
skýra Guðs innblásna Pýramida, — Biblíu
Guðs í steini, — það er, að leyfa honum, í
allri auðmýkt, að kenna oss með því að
skilja lrann eins og hann var gerður, sem er
andstætt hinu, að finna upp liugvitssöm,
flókin, rúmfræðileg brögð til þess að fram
korni ártöl þau, sem vér viljum láta vera
fólgin í Pýramidanum, svo að saman beri
við kennisetningar vorar.
í Pýramidanum eru opinberaðar báðar
liliðar þess ætlunarverks, sem þjóð drottins,
ísrael, eru ætlaðar: —
(1) í sambandi við konungssalinn er það
sýnt á mjög vel við eigandi hátt, hvemig
háttað er tengslum ísraels við fram-
kvæmdarvöld nýskipanar hins mikla
Krists: „Höfuðs“ og „líkama“. Ganga
og sala kerfið, sem upp stefnir, en það
er fyrst uppgangurinn, stallagangurinn
mikli, forsalurinn og konungssalurinn,
táknar fagurlega hinn guðlega undir-
búning að nýskipan þúsund ára ríkisins
mikla, sem nú er á næstu grösum,
vígslu hennar og stjórn. Vér höfum séð
að einvaldurinn mikli er Drottinn Jesú
Kristur sjálfur. Hinn mikli „líkami“,
framkvæmdarvaldið, sem liann segir að
skuli „sitja hjá nrér í hásæti mínu“,
„dæma heiminn" og „ríkja yfir þjóðun-
um“, verður rnyndað af þeim, sem feta
í fótspor frelsarans, hinni sönnu kirkju,
sem upp rís í „fyrstu upprisunni". „Ef
vér erum orðnir samgrónir honum f\'rir
líking dauða hans, munum vér einnig
vera það fyrir líking upprisu hans.“
„Þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu
fyrst rísa.“ „Blessaður og heilagur er sá,
sem á þátt í fyrri upprisunni.“ ....
„Þeir skulu verða konungar og prestar
Guðs og skulu ríkja með honum í þús-
und ár.“ Allt þetta er frábærlega táknað
í þessum efsta hluta af gangakerfum
Pýramidans, og nákvæmlega útskýrt í
„Boðskap Pýramidans mikh“. ísrael
mun að lokum afsala sér sjálfsvilja sín-
urn í helgun og verða viljugur og hlýð-
inn þjónn hins sanna Krists og fram-
kvæma skilyrðislaust það, sem fyrir
hann er lagt. í konungssalnum, sem
táknar fyrirkomulag og stjórn nýskipan-
arinnar, lúta þess vegna öll megintákn-
in að upprisu hinnar sönnu kirkju, sam-
einingu hennar við Krist sjálfan og upp-
hefð með honurn og valdi yfir heimin-
um. Það skyldi haft hugfast, að kon-
34 DAGRENNIMG