Dagrenning - 01.10.1946, Page 40

Dagrenning - 01.10.1946, Page 40
Lengri alinin og hin almenna alin Pýramidans mikla Lengri alinin = almennar álnir = 1,213204 almenn alin. = 25 pýramidaþumlungar = 25,027 brezkir þuml. 1 almenn alin = ----lengri alinin = 0,8242637 lengri al. 250 y/n = 20,606593 pýramidaþuml. = 20,629 brezkir þumlungar. Ath.: Sólarár (y) er sýnt í rúmmælingum Pýramidans mikla, 365,242353 dagar. nefndur. Það er raunverulega sýnt í Pýra- midanum mikla, að hvort tveggja endar sama árið, sameiningartímabil Ísraels-Breta og sjöundi þúsund ára dagurinn, þ. e. 1994 e. K. Það er og eftirtektarvert, að tímabil brezku sameiningarinnar (945—1994 e. K.) nær ekki aðeins yfir sjöunda 1000 ára dag- inn (994—1994 e. K.), lieldur er 49 árum lengra en sá tími er nákvæmlega fagnaðar- tímabil. Er þetta mikilfenglegt, ef gætt er þeirrar staðreyndar, að bæði sameiningar- tímabilið og sjöundi þúsund ára dagurinn endar samtímis og ber oss þá að hinu mikla „fagnaðarári fagnaðaráranna“. Hefst þá enn meiri 1000 ára hvíldardagur, þegar loks er búið að fást við illvirkjana, og fær þá bæði ísrael og mannkynið allt frið fyrir öllum ama og sorgurn, því að jafnvel dauðinn sjálf- ur verður þá úr sögunni, „og dauðinn verð- ur eigi framar til“, er þessi dýrðlegi tími „endurreisnar allra hluta“ er upp runninn. Flyt heimi blessun með fagnaðs frégnum um frið, sem nálgast þreyttan lýð. Flyt boðskap öllunr þjáðum þegnum um þúsund ára náðartíð. Það er augljóst af því, sem að framan greinir, að það er rétt, sem Sir Flinders Petrie hélt fram, að almenna egypzka alin- in (sem er jöfn 20,629 brezkum þuml.), sem notuð var af eldri konungaættunum, var notuð við uppdráttinn að Pýramidanum mikla. En það er og margfaldlega sannað í fyrri bók vorri, „Pýramidanum mikla“, og mörgum öðrum ritum, að hitt er jafn víst, að eldri alinin (sem er jöfn 25,027 brezkum þuml.) var einnig notuð við uppdráttinn að Pýramidanum, eins og Smyth prófessor segir afdráttarlaust. Þessi eldri alin var notuð af forfeðrum Hebrea og af elztu Hebreum, þar á meðal ísraelsmönnum, og hlaut nafnið „helga alinin“. Þessi nöfn, helga alinin og almenna alinin, eru dálítið óheppileg til þess að nota þau í sambandi við Pýramidann, því að þau virðast benda til þess, að önnur þeirra sé heilög, en hin vanheilög, en slík hug- mynd er alröng. Fyrir því fer betur á því að nefna helgu alinina, sem er 25 þuml., lengri alinina. Nauðsynlegt er að gera sér það ljóst, að álnir þessar voru raunverulegar mæfieiningar, sem notaðar voru við dagleg 38 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.