Dagrenning - 01.12.1958, Page 13

Dagrenning - 01.12.1958, Page 13
Kristindómur getur ekki byggst á mið- ilssambandi heldur byggist hann á beinu, persónulegu sambandi við Krist, sem frelsara og Drottin. Biblían leggur auk þess blátt bann við því „að leita frétta af framliðnum" og varar ísrael sterklega við afleiðingum þess, ef hann fer að fara að háttum og siðum heiðinna þjóða, sem m. a. fara með „galdur og f jölkyngi“, eða láta „sonu sína og dætur vaða gegnum eldinn', en einmitt það tíðkast enn hjá þeim þjóðum, sem aðhyll- ast guðspeki, en þekkja ekki frelsunar- hlutverk Krists, svo aðeins eitt sé nefnt, sem hinni austrænu heiðni fylgir. Af því sem nú hefir sagt verið, má ekki draga þá ályktun að spiritisminn og guð- spekin séu hið eina sem varhugavert er við hina trúrasnu hlið á lífi fólks í kristn- um löndum. Það er síður en svo, því þó þessar tvær hreyfingar séu alveg heiðnar — þ. e. viðurkenni ekki frelsunarhlut- verk Krists — eru hinar f jölmörgu kirkju- deildir og ýmsir sértrúarsöfnuðir einnig langt frá því að vera kristnir, þó það telji sig svo. Stærsta kirkjudeild kristninnar — rómverk-kaþólska kirkjan — er safntrú heiðinna og hálfkristinna kenninga og er táknuð með dýri í sjálfri spádómsbók Krists — Opinberunarbókinni. Víða í kristninni eru hroki, sjálfsblekking og fjandskapur í annarra garð, meiru ráð- andi bróðurhugur, umburðarlyndi og hjálpsemi. Þannig er ástandið nú á tím- um því nákvæmlega eins og Kristur og postular hans lýstu að verða mundi, áð- ur en „endalokin" kæmu. Kristur segir að tímarnir muni verða líkir og „dagar Nóa voru“. Hvernig voru dagar Nóa? Um það segir í 1. Mósebók: „Jörðin var spillt í augsýn Guðs og jörð- in fylltist glæpaverkum — — — því að allt hold hafði spillt vegum sínum á jörð- inni“. Og ennfremur: „Illska mannsins var mikil á jörðinni og allar hugrenning- ar hjarta hans voru ekki annað en illska alla daga.“ Er það ekki eitthvað svipað nú, þegar mannkynið allt stynur af ótta við algjöra tortímingu í alheims atóm- stríði? Páll postuli gefur einnig lýsingu á ástandinu eins og það muni verða við endalokin. Hann segir: „En vita skalt þú, að á síðustu dög- um munu koma örðugar tíðir, því að mennirnir munu \’erða sérgóðir, fé- gjarnir, raupsamir, hrokafullir, last- mælendur, foreldrum óhlýðnir, van- þakklátir, vanheilagir, kærleikslausir, óhaldinorðir, rógberandi, bindindis- lausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi mannlífið meira en Guð og liafa á sér yfirskyn guðhræðslunnar en afneita hennar krafti." (II. Tím. 3. 1-4). Aldrei fyrr hefir þessi lýsing átt jafn- vel við og nú, þegar litið er yfir alla heimsbyggðina. Augljóst er að fráfallið frá kristindóminum er orðið stórkost- legt um allan hinn kristna heim, og al- heiðnar og hálfheiðnar trúarstefnur sigla hraðbyri inn í trúarlíf vestrænna, krist- inan þjóða. Og hér verður ekki snúið við með neinum alþjóðasamtökum eða öðr- um slíkum mannlega upphugsuðum ráð- um. Hið eina sem bjargað getur kristin- dóminum og vestrænni menningu, end- urlífgað hana og skapað nýtt viðhorf, er að vestrænar þjóðir skilji Jjað, að þær eru hinn forni ísrael og hegði sér sam- kvæmt því. Þá verður Biblían auðskild- ari öllum en nú er, og þá hverfa af sjálfu sér þeir sértrúarhópar og kreddukerfi, sem nú hindra, — jafnvel meira en spiri- DAGRENNING H

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.