Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 43

Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 43
Um alla Suður-Ameríku hafa komm- únistar ekki hikað við það undanfarin ár, að liðsinna þessum öflum lénsskipu- lagsins, með því að styðja einræðis- herra eða ríkisstjórnir öfgafullra ein- ræðisflokka, þegar sú samvinna hefir verið vatn á myllu þeirra sjálfra. Gott sýnishorn af þessu er stuðningur þeirra við Leguila, einræðisherra í Perú, fyrir um það bil tuttugu árum. Einnig má nefna dæmi um sams konar vinnubrögð kommúnista í Chile, Guatemala, Vene- zuela og Dominicana lýðveldinu. En síð- ustu árin hafa þeir þó gætt þess vel og beitt öllum brögðum til þess að villa á sér heimildir og leyna þessari sam- vinnu, ef áformin skyldu misheppnast. Þess vegna hafa þeir þá reglu hvert sinn sem ný ríkisstjórn er mynduð, að skipta sér í tvær deildir, sem á yfir- borðinu þykjast berjast hvor gegn ann- arri. Annar flokkurinn styður þá stjórn sem situr, en hinn þykist vera í stjórn- arandstöðu. Þessi vinnubrögð voru not- uð í stjórnartíð Perons í Argentínu og síðar þegar einræðisstjórnir sátu að völdum í Perú og Venezuela. Kommúnisminn í Suður-Ameríku hefir tekið upp sérhverja línu heims- kommúnismans, þar á meðal sósíal- fasisma, samfylkingar og alþýðubanda- lög. Hvenær sem skipun hefir borizt frá Moskvu um stefnubreytingu eða nýjar starfsaðferðir, hafa flokksstjórnirnar hlýtt í auðsveipni. Flokkarnir eru litlir þarna og þess vegna er samheldnin miklu meiri og skipulagið fastara í skorðum en þar sem kommúnistahreyf- ingin hefir ítök í fjöldanum. Jafnvel atburðir eins og uppreistin í Ungverja- landi 1956, sem hjó skörð í fylkingar kommúnista víðast hvar í heiminum, hafði sáralítil áhrif á samök þeirra í Suður-Ameríku. Skilyrðislaus hlýðni við Moskvu-valdið er starfsskylda, sem atvinnukommúnistunum í flokksstjórn- unum kemur ekki til hugar að bregða út af. Þótt þarna sé ekki til að dreifa hreyf- ingu meðal lægri stéttanna, fer því þó fjarri, að kommúnistar séu áhrifalausir í Suður-Ameríku. Almenningsálitið þar er fyrst og fremst mótað af borgara- stéttunum, sem áður voru nefndar, þ. e. miðstéttunum — menntamönnum og stúdentum — einmitt þeim stéttunum, sem mest hafa hallazt að kommúnism- anum. í Suður-Ameríku eiga skoðana- bræður auðveldara með að ná áhrifum í öfugu hlutfalli við fjölda en í flestum öðrum löndum. Tvennt er einkar athyglisvert í at- hugunum prófessors Alexanders. í fyrsta lagi, hve kommúnistahreyfing- in í Suður-Ameríku hefur fáum af- burðamönnum á að skipa, hvort heldur sem er pólitískum leiðtogum eða fræði- mönnum, einkanlega síðan þeir dóu Anibal Ponce, argentíski kennarinn, og J. C. Mariategui, blaðamaðurinn frá Perú. En hvorki Ponce, sem ritaði um þjóðfélagsmál eftir kenningum Marx, né Mariategui, sem stofnaði sósíalista- flokk í Perú og hefur líklega verið fremsti boðberi Marxismans í Suður- Ameríku, voru félagar í kommúnista- flokknum. I öðru lagi er það Ijóst af rannsókn- um prófessorsins, að þótt kommúnist- um hafi yfirleitt mistekizt að ná nokkr- um verulegum áhrifum meðal vinnu- stéttanna, hafa þeir náð sterkri aðstöðu þegar — og aðeins þegar — þeim hefur tekizt að komast til valda í verkalýðs- félögunum. Sem stendur eru kommún- istar t. d. sérstaklega vel settir í Chile, DAGRENNING 41

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.