Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 31
ANGELO B. TRAINA:
Uppruni oá þróun kynstoínaima
Grein sú, sem hér fer á eftir, er þýdd úr tímariti Adams Rutherford: Pyramidalogy 3. h.
1958. Margt í grein þessari er svo athyglisvert, að rétt þótti að gefa lesendum Dagrenningar
kost á að kynnast lienni. Þó að á allt verði ekki fallist, sem hér er sagt, er meginskoðunin
vafalaust rétt, og mikil nauðsyn er á því, að fólk reyni að átta sig á kynþáttavandamálunum,
sem nú eru víða ofarlega á baugi, og læri að líta á þau hleypidóma- og fordómalaust, en allt of
mikið er að því gert nú, að fella dóma í þessum efnum án nokkurrar raunhæfrar þekkingar.
Grein þessi ætti að geta skýrt ýmis atriði, sem menn gera sér nú litla grein fyrir, og þó ínenn
fallist ekki á þá skoðun, að æskilegt sé að hvítir menn og litaðir blandist mikið, stafar það
ekki af fjandskap í garð hins þeldökka fólks, né löngun til að undiroka það, heldur er hér
um að ræða guðlegt lögmál, sem svo hættulegt getur verið að brjóta, að mannkynið 'bíði
þess aldrei bætur.
J. G.
V----------------------------------------------------------------------------------------------
1. VITNIÐ - Biblían:
Sú spurning er algeng, enda eðli-
legt að spurt sé: „Skapaði Guð hinn
fyrsta mann, Adam, og sé Adam forfað-
ir allra kynstofna, hvers vegna eru þá til
hvítir, svartir og gulir menn? Hvers vegna
er þessi munur og af hverju stafar
hann?“ Þeir sem fletta upp í I. Mósebók,
í þeirri trú, að það sé rétt, sem þar er
skrifað, sé það rétt skilið, munu öðlast
undursamlega þekkingu, og vér mununr
komast að raun um, að þar kemur allt
nákvæmlega heim við hlutlausar niður-
stöður rannsóknarstofunnar og vísinda-
lega skilgreiningu hinna færustu og trú-
verðugustu mannfræðinga og þjóðfræð-
inga.
í 2. kap. I. Mósebók, 7. v. segir svo:
„Þá myndaði Drottinn Guð manninn af
leiri jarðar,“ og hér er rétt að taka fram,
vegna þeirra lesenda, sem kunna að vera
ófróðir um það, að í Biblíunni er nöfn-
um á mönnum og hlutum oft ætlað að
tákna eðli þeirra. Þannig er hin bókstaf-
lega merking orðsins Adam á hebresku
„rauður leir“, og merkir að Adam hafi
verið skapaður úr rauðum leir. Efnasam-
setning rauðs leirs er þannig, að litur
hans getur orðið mismunandi eftir raka-
stigi, hita og sólskini. Rauður leir, sem
sól skín á, verður ljósrauður, gulur eða
svartur. Þannig er um Adam, manninn
úr rauða leirnum, hina upphaflegu
mynd, sem breyttist og varð að hvítum,
gulbrúnum og svörtum kynstofnum.
Myndun kynstofna hófst
eftir syndaflóðið.
En greining í kynstofna var ekki kom-
in til sögunnar fyrir syndaflóðið. Ein
ástæðan er sú, að á því svæði, sem byggt
var fyrir flóðið, var menningin mjög
samsteypt og náði yfir lítið landsvæði.
Það voru giftingar „sona Guðs“ og „dætra
mannanna", sem orsökuðu hið mikla frá-
hvarf þessara tíma, sem endaði með dóm-
DAGRENNING 29