Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 20

Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 20
voru. í kosningunum sem fóru fram í september Utk sigraði nýr stjómmála- flokkur, sem nefndi sig: „Nýi lýðveldis- flokkurinn" og eru aðalmenn lians þeir er næst stóðu de Gaulle í stjórnarbylt- ingunni, þar á meðal Sustelle, sem tal- inn er hafa skipulagt byltinguna í sum- ar. Nýi lýðveldisflokkurinn fékk yfir 180 þingsæti og röskar 4 millj. atkvæða, og er því stærsti jnngflokkurinn, bæði að atkvæðamagni og þingmannatölu. Kommúnistar urðu næstir að atkvæða- magni, fengu tæpar 4 millj. atkvæða en ekki nema 10 |nngmenn, svo vegur jieirra er að engu orðinn í þinginu. Jafn- aðarmenn héldu nokkurnveginn fylgi sínu, um 3 millj. kjósenda. en hröpuðu úr sem næst 100 þingsætum niður í 40 þingsæti. Róttæki flokkurinn, sem lengi hefir miklu ráðið í stjórnmálum Frakk- lands, gekk klofinn til kosninga og beið mikið afhroð bæði um kjósendur og þingsæti. Einn af aðalleiðtogum hans, Mendes France, féll í kosningunum. Tdins vegar unnu hægri flokkarnir flest- ir verulega á, og eru nú miklu sterkari á þingi en áður. Forsetakosning fór fram síðast í des- ember og var de Gaulle kjörinn forseti Frakklands með 75% atkvæða. Nú hefir og ný stjórn verið mynduð í Frakklandi, aðallega af fvlgismönnum de Gaulle, en þó er enn í rauninni ekki hægt að gera sér fulla grein fyrir Jdví hvað gerst hefir í hinni nýju, frönsku stjórnarbyltingu. Engu verður um það spáð nú, hverjar afleiðingamar verða fyrir hið heimspóli- tíska ástand, af því sem nú hefir gerst í Frakklandi. Margt bendir Jjó til þess að Frakkland muni fjarlægjast hin vestrænu Jrjóðasamtök, Atlantshafsbandalagið, og leita meira samstarfs við Riissa en verið liefir til þessa. HNIGNUN LÝÐRÆÐISINS. Á það hefir nokkrum sinnum verið minnst í Dagrenningu að margt bendi til Jyess, að nú sé að ljúka ákveðnum áfanga í þróunarsögu hinna demókrat- isku skipidagsliátta. Lýðræðið, í Jjeirri inynd sem Jiað hefir tekið á sig síðustu áratugina, er allt of veikt stjórnarform til Jiess að Jiað fái staðist samkeppni hins nýja einræðis, sem búið er að koma á um niikinn hluta heims, og sem kallar sig hinu furðulega nafni „aljiýðulýð- ræði“. Það sem gerst liefir í Frakklandi er ljóst merki þess hvert stefnir. Leiðin liggur burt frá þingræðinu, sem nokkur lönd í Evrópu hafa búið við nú um ára- tuga skeið og er orðið sjúkt og spillt. Lýðræðisskipulag fær ekki staðist, nema allir þrír höfuðþættir stjórnvaldsins séu verulega sjálfstæðir og næsta óháðir hver öðrum. Með tilkomu hinna pólitísku f'lokka, sem taka allt vald í sínar hendur og gera Jnngin og ríkisstjórnimar að viljalausum verkfærum, sem oft eru not- uð á hinn ósvífnasta hátt til að ganga erinda flokkanna — oftast Jjvert ofan í Jyjóðarhagsmuni, — hefir hið gamla, borgaralega lýðræðiskerfi hrunið til grunna og er nú raunverulega ekki leng- ur annað en gömul, holdlaus beinagrind. í stað þess er komið allt annað fyrir- komulag: stéttaþing og stéttaflokkar sem semja sín á milli um völd og fjármuni. Þegar lýðræðið hóf göngu sína, um miðja nítjándu öldina, varð fyrsta hlutverk Jress að brjóta hina gömlu stéttafjötra og skapa frjáls Jyjóðfélög jafnrétthárra manna. Lokastig þess sýnist ætla að verða það að koma aftur á stéttaþjóðfélagi, sem hlýtur að enda á Jyann veg, að ráða- menn hinnar sigrandi stéttar taka öll völd og ráð af öllum öðmm og koma á hreinu einræði. Þannig er nú komið í 18 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.