Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 17
næstu heimsstyrjöld. Sovétríkin eða
stjórnendur þeirra vilja þó ekki styrjöld
nú Jregar, þó Jrau séu við öllu búin.
Þau vilja enn halda kalda stríðinu
áfram því það hefir fært Jreinr meiri
landvinninga og yfirráðaaðstöðu en þá
mun hafa dreymt um þegar það hófst.
Nú er svo komið, að Sovétríkin eru
að ná algjörum yfirráðum á hinum ara-
biska heimi. Líklegt er að þau gefi
Nasser bráðum „lausn í náð“ og herði
meira að Egyptalandi og Sýrlandi þeg-
ar Jrau hafa komið ár sinni betur fyrir
borð í írak, en Jrað ríki er nú raunveru-
legt leppríki Rússa. Margt bendir til
Jress að í Persíu — Iran — komi fljótlega
til átaka og standa Sovétríkin nú ólíkt
betur að vígi til að láta til sín taka þar,
eftir að Jrau liafa orðið bæði tögi og
hagidir í írak. Bagdad-bandalagið, sem
átti að vera eins konar Atlantshafs-
bandalag Arabaríkjanna má nú telja
dautt og áhrifa Breta er hætt að gæta í
hinum arabiska heimi. Á því, að svo er
komið, eiga Bandaríkin mesta sök. Þan
munu hafa ætlað sér að ná Jieirri aðstöðu
sem Bretar áður höfðu, en verða nú að
horfa á Rússa gera öll Arabaríkin að
meiri og minni leppríkjum.
Utanríkisstefna Rússa hefir verið
ákveðin og mjög vel skipulögð síðustu
árin. Þeim hefir tekizt að evðileggja
alveg Bagdadbandalagið og gera hinn
arabiska heim að leppríkjum og ná þar
með yfirráðaaðstöðu yfir olíufram-
leiðslu þeirri, sem Vestur-Evrópa verð-
ur enn að byggja orkuþörf sína á, og
Jaar með lífsafkomu sína. Þeim liefir
einnig tekist að lama svo Atlantshafs-
bandalagið að það er svo að kalla óstarf-
hæft, enda hafa samtök vestrænna
jDjóða ekki borið sitt barr síðan Banda-
ríkin ráku rý'tinginn í bak Breta og
Frakka við Súez I95G. Það óláns- og
óhæfuverk verður seint bætt, né sú and-
úð lægð sent Bandaríkin sköpuðu sér
með þeim afskiftum. Þar var tvímæla-
laust að verki „hið leynilega vald“, sem
minnst er á á öðrum staðl í Jiessari
grein, og er óþarft að ræða frekar þar
um. í Atlantshafsbandalaginu, þessu
lífsnauðsynlega bandalagi vestrænna
Jijóða, er nú liver höndin upp á móti
annarri og engar liorfur á að samkomu-
lagið batni. Það eru að miklu leyti verk
Sovét-Rússlands hvernig komið er þess-
um málum, Jiví að Jtaðan er á skipu-
lagsbundinn hátt unnið að eyðilegg-
ingu þessara samtaka, og öllum tiltæk-
um ráðum beitt. Meira að segja hefir
svo tekizt til að ísland hefir orðið leik-
soppur í hendi hinna rússnesku ráða-
manna til þess að spilla samstarfi vest-
rænna Jtjóða, og efna til fjandskapar
með íslendingum og þeim ríkjum, sem
vér eigum mest undir þegar til styrjald-
arátaka kemur næst.
VESTURFÖR MIKOJANS.
Eitt af því sem megináherzla er lögð
á nú er það, að telja heiminum trú um,
að nú séu aðeins til tvö stórveldi í ver-
öld vorri, sem sé Sovét-Rússland og
Bandaríkin. Þetta er gert tii þess að
niðurlægja Bretland og Frakkland enda
eru þau nú talin vera orðin „annars
flokks stórveldi“, af málpípum komm-
únista og amerískra kapitalista, sem nú
vinna orðið augljóslega saman. Þessi
heimskulegi áróður birtist í mörgum
myndum og útgáfum. Það er athyglis-
vert að fyrir síðustu heimsstyrjöld var
nákvæmlega sams konar áróður í
trannni hafður. Þá var sagt að Rússland
kommúnismans annars vegar og Þýzka-
land nasismans hins vegar væm liin eig-
DAGRENNING 15