Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 21

Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 21
Sovétríkjunum, leppríkjum þeiiTa og sambandsríkjum. Hin sigrandi stétt þar, verkalýðurinn, er búin að útrýrna öðr- um stéttum, en það hefir kostað hana sjálfa allt hennar frelsi. Hún er þar nú ánauðugri en nokkru sinni fyrr. Og þetta sama er nú raunverulega að gerast i Evrópu allri, þó menn veiti því ekki eins vel eftirtekt í hita daglegrar baráttu. Frakkland er þó glöggt dæmi þess hvert stefnir. Margt bendir til þess að Sovét- ríkin hyggi á nánara samstarf við Frakk- land en verið hefir, og það er ekkert merki um að svo geti ekki orðið þó de Gaulle gangi milli bols og höfuðs á frönskum kommúnistum. Menn ættu að minnast þess að í einu mesta leppríki Sovétríkjanna — Arahiska lýðveldinu — er kommúnistaflokkurinn bannaður. Þá mætti og muna það, að Hitler bannaði kommúnistaflokkinn á sínum tíma í Þýzkalandi, en samdi svo síðar við Stalín. Kommúnistaflokkar allra landa eru að- eins tæki, sem Rússar nota að vild sinni, efla þá eða leggja niður, láta banna þá eða útrýma þeim, allt eftir því hvað bezt hentar hinu sósialiska föðurlandi — Sovét-Rússlandi. Átökin í Frakklandi og byltingin þar eru tvímælalaust merkilegustu tíðindin á stjórnmálavettvangi ársins 1958, því þau eru atburður, sem á eftir að hafa rniklar pólitiskar afleiðingar áður en mörg ár líða. GEIMFARIR. Eitt athyglisveraðsta fyrirbærið í stjómmálum heimsins er kapphlaup Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um yfir- ráðin í himingeimnum. Þau leggja nú offjár og alla sína tækni í það að komast til tunglsins og gera ráð fyrir að áður en árið 1959 er liðið verði því marki náð. Geimferðir eru nú staðreynd, sem ekki verður neitað, eins og áður er vikið að í þessari grein. En hér er um annað og meira að ræða. Lokastig hinna miklu átaka eiga samkvæmt öllum spádómum Biblíunnar að fara fram í himingeimn- um. Ef vér lesum 16. kapítula Opinber- unnarbókarinnar, þar sem rakið er hvernig hinum sjö skálum „reiði Guðs'* er „helt yfir jörðina“, sézt að hinni síðustu — sjöundu skálinni — er helt yfir loftið. Þar segir: „Og hinn sjöundi (engill) helti úr sinni skál yfir loftið, og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu, og sagði: Það er fram komið. Og eld- ingar komu og raustir og þrumur, og mikill landskjálfti, svo að slíkur hefir eigi komið frá því menn urðu til á jörðinni, jafnákaflega mikill land- skjálfti. Og borgin hin mikla fór í þrjá hluti, og borgir þjóðanna hrundu. Og Guðgleymdi ekki hinni miklu Babylon og gaf henni vínbikar heiftarreiði sinn- ar. Og allar eyjar hurfu og fjöllin voru ekki lengur til. Og stórt hagl, vættarþungt, fellur niður af himni yfir mennina; og mennirnir lastmæltu Guði fyrir haglpláguna, því að mjög svo mikil er plágan af því.“ Þessi spádómur er athyglisverður fyrir vora tíma, — tíma loftsiglinga, geimferða og fjarstýrðra drápstækja. Hann sann- ar oss einnig að nú fer að líða á lokaþátt- inn, þó sjálfsagt líði enn nokkur tími þar til hin miklu átök komast á úrslitastig- ið. í Dagrenningu hefir oft verið á það minnst, að búast megi við úrslitaátök- unum fyrr en varir, því svo mörg tákn hinna síðustu tíma eru nú augljós orð- in. En umfram allt er þá nauðsynlegt að DAGRENNING 19

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.