Dagrenning - 01.12.1958, Page 47

Dagrenning - 01.12.1958, Page 47
ógleymanlegust varð þó öllum, er við- staddir voru, undrunin við hina fyrstu sýn. Það var minning, sem aldrei gat máðst út í huga þeirra. Hinn litli hópur útvalinna gekk upp úr grafhýsinu hikandi, gagntekinn og jafnframt ruglaður af því, sem fyrir augun hafði borið. Það, sem þeir höfðu séð þarna, tengdi þá saman — en þá grunaði ekki, að þeir yrðu innan skamms samtengdir með öðrum hætti: gegnum dauðann. VAR ÞAÐ FORMÆLING? Carnavon lávarður, sem stjórnaði leiðangrinum ásamt Howard Carter, var fyrsta fórnarlambið. Hann dó strax 6. apríl 1923. Moskitofluga hafði stung- ið hann þrem vikum áður, og þótt hann berðist eins og ljón fyrir lífi sínu, varð hann að láta það af hendi áðurnefndan dag. Með honum hófst röð hinna óhugnan- legu dauðsfalla, sem á skömmum tíma urðu þess valdandi, að þeir menn týndu tölunni, er sagt gátu: „Ég var viðstadd- ur, þegar gröf Tut-Ank-Amons var opnuð.“ Lafði Elisabet Carter dó einnig af flugubiti, og hálfbróðir Carnavons lá- varðar, Aubrey Herbert, framdi sjálfs- morð í óvæntu brjálsemiskasti. Westerbury, ritari Howards Carters, sem fór til Lundúna til þess að ljúka vísindalegu verki, fannst einn morgun- inn látinn í rúmi sínu, en hafði ekki kennt sér nokkurs meins, svo vitað væri, daginn áður. Hann var krufinn, en dauðaorsökin var eftir sem áður ráð- gáta. Westerbury lávarður, faðir hans, henti sér litlu síðar út um gluggann á íbúð sinni í Lundúnum. Hún var á sjö- Tut-Ank-Amon. undu hæð hússins. Nú vaknaði spurn- ingin, hvort „formæling faraós“ væri svo mögnuð, að hún næði einnig til fjöl- skyldna þeirra manna, er höfðu raskað grafarró hans. Fleiri og fleiri raddir komu fram þeirri kenningu til stuðnings, að hin dularfullu dauðsföll væru „hegning syndaranna". Voru ekki einmitt í graf- hýsum egypzkra konunga áletranir, sem sögðu, að þessi refsing biði allra þeirra, er brytust þangað inn? Héldu menn, að slík orð yrðu óvirk ger á svipstundu? BARÁTTAN VIÐ HJÁTRÚNA. Vísindamennirnir snerust hart til varnar, þegar sögurnar um „formælingu faraós“ fóru að berast út. Innan þess hrings var slíkum sögum vísað á bug sem hreinustu f jarstæðum. En samt sem áður hefur enginn getað fundið fullr DAGRENNING 45

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.