Ægir - 01.02.2015, Page 9
9
annan vélbúnað. Stærsta verk-
efnið segir Hjalti þó að snúist í
dag um fyrirbyggjandi viðhald.
„Ef við berum saman vél-
búnað í dag og á þeim tíma
þegar ég var að byrja í þessari
þjónustu þá er búnaðurinn all-
ur mun vandaðri nú til dags.
Smíðin er til muna nákvæmari
og betri. Það verður að viður-
kennast að ég upplifði á fyrstu
árunum í þessum báta- og
skipavélum að á markaðinn
kom búnaður sem var varla
nothæfur, svo óvandaður og lé-
legur var hann. En í dag er
þetta allt gjörbreytt umhverfi
og búnaður mun betri og
traustari,“ segir Hjalti.
Öflugri útgerðir og önnur hugsun
Hjalti segir heyra til undantekn-
inga að fyrirtæki hans fái beiðn-
ir um verkefni vegna bilana á
vélbúnaði skipa og báta. „Yfir
80% af viðhaldsþjónustu okkar í
dag er þetta svokallaða fyrir-
byggjandi viðhald sem útgerð-
irnar hafa í ákveðnu ferli og
nota þá gjarnan forrit sem stýra
því hvað þarf að gera og hve-
nær. Í mínum huga er ekki vafi
að upptaka kvótakerfisins á sín-
um tíma ýtti undir þessar breyt-
ingar, menn horfa til þess að
sækja fiskinn á sem hagkvæm-
astan hátt og það er dýrkeypt
ef bilanir verða þegar síst skyldi.
Það sjá allir að t.d. á stuttum
vertíðum á borð við loðnu og
makríl skiptir öllu máli að hægt
sé að treysta á skipin og búnað-
inn og það er best gert með
skipulögðu fyrirbyggjandi við-
haldi. Síðan má líka nefna að
eftir því sem fyrirtækin hafa
stækkað í greininni hafa þau
betur haldið utan um þessi mál
í sínum rekstri. Fyrir okkur sem
erum í þjónustunni er þessi
þróun mjög ánægjuleg. Í dag er
kannski pöntuð upptekt á vél í
skipi með allt upp í hálfs árs fyr-
irvara en slíkt var algjörlega
óþekkt þegar ég var að byrja í
þjónustunni við skip og báta,“
segir Hjalti.
Ónýtt orka til spillis í skipunum
Minni olíunotkun og minni út-
blástursmengun eru lykilhug-
tök í þróun vélaframleiðenda í
dag og hefur svo verið síðustu
ár. „Þetta gerist að stærstum
hluta vegna reglugerða hjá Al-
þjóða siglingamálastofnuninni.
Kröfurnar eru miklar hvað út-
blásturinn varðar en líka hvað
snertir smit á olíu frá skipum út
í sjóinn. Þess eru dæmi í Norð-
ursjónum að þyrlur fljúgi yfir
skip til að mæla útblásturs-
mengun þannig að það eru allir
á tánum í dag hvað þetta varð-
ar,“ segir Hjalti.
Aðspurður segir hann út-
gerðir áhugasamar um spar-
neytnar vélar en hann vill sjá
enn meiri hugsun í smíði nýrri
skipa í þá átt að nýta betur þá
orku sem olíubruninn skilar.
„Ennþá er stór hluti brunans að
fara annað en knýja skipin
áfram, m.ö.o. tapast of hátt
hlutfall orkunnar og varmans út
með útblæstri og kælivatni.
Þessa orku má nýta enn betur
en gert er í dag til þess m.a. að
hita skipin upp og í fleiri þætti.
Vissulega er mikilsvert að ná ár-
angri með sparneytnari vélum
en það er að mínu mati hægt
að ná enn lengra á þessu sviði
og hanna skipin út frá orkunýt-
ingarmarkmiðum,“ segir Hjalti
Sigfússon.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu