Ægir - 01.02.2015, Side 16
16
Nýafstaðinnar loðnuvertíðar
verður í sögunni vafalaust
minnst fyrir hvassviðri, brælur
og óhefðbundið lag á loðnu-
göngunum við landið miðað við
það sem oft er. Þegar vertíðinni
lauk þann 26. mars sl. voru rúm
41 þúsund tonn eftir af þeim
tæplega 400 þúsund tonnum
sem komu í hlut íslenskra út-
gerða á vertíðinni. Þrátt fyrir
allt er vertíðin því með þeim
stærri síðasta áratuginn eða
svo og þegar á annað borð gaf
til veiða fiskaðist mjög vel. Með
öðrum orðum er það fyrst og
síðast óstöðugu veðri að kenna
að kvótinn náðist ekki að fullu.
Má í raun segja að miðað við
aðstæður hafi loðnusjómenn
gert vel að ná þessum afla á
land.
Stórviðrin einkennandi
Nýtt skip Ísfélags Vestmanna-
eyja hf., Sigurður VE 15, kom til
landsins í fyrrasumar og var
þetta því fyrsta loðnuvertíð
skipsins. Hörður Már Guð-
mundsson, skipstjóri, var á leið
heim til Eyja úr síðasta túrnum í
Breiðafirði þegar Ægir náði tali
af honum en skipið átti um 7
þúsund tonn eftir af kvóta sín-
um þegar vertíðinni lauk. Sam-
kvæmt aflastöðulista Fiskistofu
landaði skipið réttum 12 þús-
und tonnum af loðnu á vertíð-
inni.
„Stórviðrið hefur verið ein-
kennandi fyrir þessa loðnuver-
tíð og gert okkur mjög erfitt fyr-
ir. Gríðarlega þungur sjór allan
tímann. Jafnvel hefur það ítrek-
að gerst að við höfum þurft frá
Hörður Már Guðmundsson, skipstjóri í brúnni á Sigurði VE 15. „Skipið reyndist vel á fyrstu loðnuvertíðinni.“ Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
Sigurður Sigurðsson, 2. stýrimaður, klár með landfestarnar.