Ægir - 01.02.2015, Blaðsíða 17
17
að hverfa vegna margra metra
ölduhæðar þó komið hafi verið
því sem næst logn á miðunum.
Það leið alltaf stutt á milli stór-
viðra og sjórinn gekk einfald-
lega nánast aldrei niður fyrir
vikið. Ef veðrið hefði verið betra
þá hefðu skipin náð þessum
kvóta sem eftir er,“ segir Hörður
Már en vertíðina hóf Sigurður
VE á trolli fyrir norðan land en
síðan tók nótin við. Bilun varð í
spilbúnaði skipsins í byrjun ver-
tíðar en eftir viðgerð á Akureyri
voru þau vandamál úr sögunni.
„Við erum að ljúka vertíðinni
núna á hefðbundum tíma og
höfum raunar getað veitt leng-
ur í ár en oft áður. Bæði kemur
það til að mikið er eftir að kvót-
anum og mörg skip náðu ekki
að klára og svo kom auðvitað
líka þessi vestan- eða eiginlega
norðanganga sem við veiddum
úr nú í restina útifyrir og inni á
Breiðafirði. Í fyrra var mjög lítið
af hafa úr vestangöngu en fyrir
nokkrum árum umtalsvert.
Núna bjargaði þessi ganga eig-
inlega því sem bjargað varð,“
segir Hörður Már.
Kolmunninn næsta verkefni
Hörður Már segist ánægður
með skipið á þessari fyrstu ver-
tíð. Hann segir þó bæði kosti og
galla við stærð skipanna í þeim
aðstæðum sem voru yfirleitt á
miðunum í vetur.
„Stærri skipin taka miklu
meiri vind á sig, hreyfingarnar
verða miklu öflugri og ýmislegt
sem þessu fylgir. En almennt er
ég mjög ánægður með skipið
og það reyndist vel,“ segir hann
en að afloknu páskafríi reiknar
Hörður Már með að halda til
kolmunnaveiða. Fyrstu íslensku
skipin héldu í Rósagarðinn fyrir
páska og fengu lítilsháttar afla
en reikna má með að kol-
munnagöngurnar verði kröft-
ugri þegar líður á aprílmánuð.
Loðnuvertíðin fer í sögubækurnar fyrir óstöðug veður:
Margra metra
ölduhæð í logni!
Sigurður VE leggur að í Vestmannaeyjahöfn eftir síðasta loðnutúrinn. Skipstjórinn segir að í hvassviðrum líkt og einkennandi hafa verið í vetur taki
stóru skipin meiri vind á sig og eigi oft erfiðara með að athafna sig.
Vítt er til veggja í brúnni enda Sigurður VE meðal stærstu uppsjávar-
skipa flotans.