Ægir - 01.02.2015, Qupperneq 18
18
„Verkefnið felst í að þróa krapa-
vél fyrir smábáta og má segja
að við séum þarna aðallega að
horfa til minnstu bátanna og
handfæraveiða. Markmiðið er
að bæta gæði afla frá smábát-
um og hámarka skilaverð en
mælingar hafa sýnt að á kæl-
ingarmálunum er allur gangur.
Sumir standa mjög vel að kæl-
ingunni en þess eru líka dæmi
að afli sé að koma í land ókæld-
ur,“ segir Sæmundur Elíasson,
verkefnastjóri hjá Matís sem
vinnur að verkefni um kælingu
afla í smábátum með ískrapa.
Verkefnið er styrkt af Tækniþró-
unarsjóði Rannís en ásamt Mat-
ís standa að verkefninu fyrir-
tækið Thor Ice, sem sérhæft
hefur sig í smíði vélbúnaðar til
framleiðslu á ískrapa, Háskóli
Íslands, Landssamband smá-
bátaeigenda og Valdi ehf.
Tæknin ekki vandamál
Þorsteinn Ingi Víglundsson,
framkvæmdastjóri Thor Ice,
segir fyrirtækið hafa þróað vél-
búnað sem auðvelt sé að nota
um borð í smábátum. Tækni-
lega sé því ekki vandkvæðum
bundið að stíga þetta skref í
smábátaflotanum.
„Stóra atriðið er að smá-
bátasjómenn sjái sér hag í því
að fá þennan búnað um borð í
bátana. Ávinningurinn þarf að
koma fram í hærra verði fyrir
rétt og vel kælt hráefni á mörk-
uðunum. Verð á búnaðinum
skiptir auðvitað líka máli en ég
held að krapanotkun muni al-
mennt aukast í bátaflotanum á
næstu árum. Við höfum fengið
mikla þekkingu út úr þessu
samstarfsverkefni og höfum
áhuga á að bjóða í sumar á
nokkrum stöðum upp á ískrapa
til prufu fyrir smábátasjómenn
og að þeir kynnist því þannig af
eigin raun hvernig þessi kæling
kemur út,“ segir Þorsteinn.
Nýtt verklag nauðsynlegt
Sæmundur segir að verkefnið
skili meiri þekkingu á áhrifum
mismunandi kælingar á hold
og dauðastirðnun fisks en jafn-
framt meiri þekkingu og skiln-
ingi á orkunotkun mismunandi
kælingar með ískrapa og flögu-
ís.
„Annars vegar er um að
ræða hentugan vélbúnað fyrir
bátana til að framleiða ís-
krapann og hins vegar endur-
bætur á verklagi um borð í bát-
unum til að árangur verði sem
bestur. Það tekur m.a. til blóðg-
unartímans og fleiri þátta í
vinnulagi og meðferð en það er
mjög mikilvægt að auka þekk-
ingu á meðhöndlun á fiski og
kælingu hráefnisins í þeim til-
gangi að lækka hlutfalls þess
afla smábáta sem telst ónýtur
vegna lélegrar eða jafnvel engr-
ar kælingar. Betri kæling mun
skila ávinningi bæði fyrir sjó-
menn og framleiðendur sem
vinna úr þessu hráefni,“ segir
Sæmundur.
Fyrirferðarlítill búnaður
Krapavélin sem um ræðir er
mjög fyrirferðarlítil, að sögn
Sæmundar. Sem viðmið nefnir
hann umfang á borð við tvær
skjalatöskur. Vélina má bæði
keyra á rafmagni bátsins og
landrafmagni. „Vélin er laus og
þannig er hægt að taka hana í
land en við sjáum fyrir okkur að
fyrir hvern smábátaróður sé bú-
ið að framleiða ákveðið magn
af ískrapa í ker í lest og sem
næst því magni sem þarf í róð-
urinn. Úti á sjó er síðan bætt við
krapann eftir því sem á þarf að
halda. Það hráefni sem nær
fullri kælingu áður en landað er
að kvöldi á að vera komið ná-
lægt mínus einni gráðu. Ís-
krapinn hefur mikla kosti í kæl-
ingu á fiski og það er líka mikil-
vægt að geta viðhaldið krapan-
um og bætt við með vélinni úti
á sjó yfir daginn. Við vonumst
til að lausnir úr verkefninu komi
til með að gagnast smábátaút-
gerðum áður en langt um líð-
ur,“ segir Sæmundur.
Ískrapavél fyrir smá-
báta í sjónmáli
Lagt úr höfn í róður. Þorskur í ískrapa. Fullkældur nær fiskurinn mínus einni gráðu.
A
fla
m
eðferð