Ægir - 01.02.2015, Síða 19
19
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofu Íslands voru skráð fiski-
skip á Íslandi 1685 talsins í lok
ársins 2014. Þeim hafði þá
fækkað um 11 á árinu, þar af
fækkaði vélskipum um tíu, tog-
urum um tvo en opnum fiski-
bátum fjölgaði um einn.
Vélskip voru í árslok 773 og
samanlögð stærð þeirra um
85.653 brúttótonn. Í brúttó-
tonnum talið minnkaði flotinn
um 3.825 tonn vegna fækkunar
vélskipanna. Togarar voru alls
49 í árslok 2014 og fækkaði
mældist sá floti 57.444 brúttó-
tonn. Hafði hann minnkað um
2.717 brúttótonn frá árslokum
2013. Opnir fiskibátar voru 863
og 4.239 brúttótonn að stærð. Í
þessum flokki fjölgaði um einn,
líkt og áður segir, og jókst við
það heildarstærð flotans um 69
brúttótonn.
Flest fiskiskip voru skráð
með heimahöfn á Vestfjörðum í
árslok 2014 eða alls 400 skip,
sem svarar til 23,7% fiskiskipa-
flotans. Næst á listanum yfir
landssvæði kemur Vesturland
með 323 skip eða 19,2%. Fæst
skip eru skráð með heimahöfn
á Suðurlandi eða 72, þ.e. 4,2%
fiskiskipaflotans.
Opnir bátar voru flestir á
Vestfjörðum, 234, og á Vestur-
landi 181. Fæstir opnir bátar
höfðu heimahöfn á Suðurlandi,
alls 19. Vélskip voru einnig flest
á Vestfjörðum, 160, en fæst á
Suðurlandi, 45 skip.
Flestir togarar höfðu skráða
heimahöfn á höfuðborgar-
svæðinu, alls 10, en níu togarar
á Norðurlandi eystra. Fæstir
togarar voru skráðir á Vestur-
landi, alls þrír.
Meðalaldurinn yfir 25 ár
Eins og sjá má í meðfylgjandi
súluriti Hagstofu Íslands er
meðalaldur íslenskra þilfars-
skipa nú kominn í um 26 ár.
Lengi vel var meðalaldurinn um
og undir 20 ár en frá árinu 2005
hefur hann farið nokkuð ákveð-
ið upp á við, stóð þó nokkurn
veginn í stað árin 2010, 2011 og
2012.
F
isk
isk
ip
Meðalaldur skipastólsins hefur hækkað um 5 ár á síðustu tíu árum.
Fiskiskipum
fækkaði
lítillega á
milli ára
Litlar breytingar eru á fjölda skipa milli ára.