Ægir - 01.02.2015, Side 24
24
Þetta er mun óhagstæðara fyrir
okkur sem erum með sjó-
vinnslu og er ein af ástæðum
þess að menn hafa verið að
flytja vinnsluna í land á nýjan
leik.“
Kostaði blóð, svita og tár
Þegar Hjörtur er spurður um
framtíðarhorfur íslensks sjávar-
útvegs segist hann nokkuð
bjartsýnn. Veiðar hafi gengið
vel, fiskgengd sé að styrkjast og
stofnarnir að byggjast upp. Það
hafi hins vegar ekki gerst af
sjálfu sér. „Það kostaði blóð,
svita og tár að byggja stofnana
upp og nú þegar árangurinn er
að byrja að skila sér vilja stjórn-
málamennirnir hirða afrakstur-
inn og finnst ekkert sjálfsagðara
en að öll aukning fari beint í
pottana hjá þeim. Við tókum
hins vegar á okkur þessar
skerðingar á sínum tíma án
þess að það kæmi nokkur
stuðningur frá ríkinu á móti
eins og gerist sumsstaðar ann-
ars staðar. Nú er að auki búið að
leggja á okkur nýja skatta og þá
hefði maður haldið að það
dygði til að sætta menn og við
gætum andað rólega, en svo
virðist ekki vera.“ Hjörtur segir
mikið talað um að sátt þurfi að
ríkja um sjávarútveginn en sér
virðist sem ákveðinn hópur vilji
alls ekki sættast. „Það er alveg
sama hvað menn beygja sig og
teygja í sáttaátt, það líðast
sjaldnast nema örfáir klukku-
tímar frá því skrifað er undir sátt
að upp sprettur krafa um nýja
sátt.“
Ríkið þriðji stærsti
kvótaeigandinn
Hann segir að þótt spennustig-
ið í samskiptunum við stjórn-
málamennina hafi aðeins
minnkað eftir að norræna vel-
ferðarstjórnin fór frá völdum
séu enn á floti mjög undarlegar
hugmyndir í pólitíkinni sem
ekki séu til þess fallnar að gera
greininni kleift að borga meira
auðlindargjald. Þar á meðal vís-
ar hann til tilfærslu aflaheimilda
í allskyns potta sem síðan út-
hlutað eftir mjög ógagnsæjum
reglum.
„Ríkið er nú þegar orðið
þriðji stærsti eigandi aflaheim-
ilda í landinu með yfir 20 þús-
und tonna þorskígildiskvóta.
Með sama áframhaldi verður
allur veiðiréttur á endanum í
höndum ríkisins. Það kann ekki
góðri lukku að stýra,“ segir
Hjörtur Gíslason.
Frystitogarinn Vigri RE-71 heldur til veiða. Með því að færa veiðiheimildir útgerðarinnar yfir á eitt skip og gera það út með tveimur áhöfnum hefur
tekist að auka úthaldið á Vigra um 30 daga á ári. Mynd: Jón Sigurðsson
ÁSAFLHjallahrauni 2 - 220 HafnarfjörðurSími 562 3833 - asafl@asafl.is - www.asafl.is
FPT báta- og skipavélar
þjónusta
kringum
landið
Nútímatækni, mikið afl og góð eldsneytisnýting Það besta þarf ekki
að kosta meira