Ægir - 01.02.2015, Side 25
25
„Niðurstöður rannsóknanna
hingað til benda til þess unnt
sé að auka gæði sjávarafurða
verulega með ofurkælingu;
bæta gæði og nýtingu í vinnslu,
lengja líftíma fullunninnar
vöru og fleira. Með öðrum orð-
um getur verið um að ræða
nýja framleiðsluvöru með öðr-
um eiginleikum en við höfum
þekkt hingað til. Margir þættir
í verkefninu eru þó enn órann-
sakaðir en ég vonast til að um
mitt ár 2016 liggi niðurstöðurn-
ar fyrir og þá verði skýrara
hvaða eiginleikum afurðir eru
búnar sem eru framleiddar úr
ofurkældu hráefni,“ segir
Gunnar Þórðarson, stöðvar-
stjóri Matís á Ísafirði.
Matís hefur um eins árs
skeið leitt rannsóknir á Íslandi á
notkun ofurkælingar í fiskveið-
um og fiskvinnslu. Hugmyndin
kviknaði í framhaldi af þeim ár-
angri sem náðst hefur í kælingu
í makrílveiðum við Ísland að
sumarlagi en sú aðferð hefur
lagt grunninn að gæðum makr-
ílafurða í landvinnslu. Í fram-
haldinu hóf Matís rannsóknir, í
samvinnu við framleiðendur
vinnslubúnaðar, útgerðir og
önnur rannsóknarfyrirtæki, á
áhrifum ofurkælingar hráfnis í
botnfiskveiðum og -vinnslu.
Fjárstyrkur hefur fengist til
rannsóknanna og ná þær einn-
ig til vinnslu og útflutnings á
laxi í Noregi.
Mikill ávinningur mögulegur
Með ofurkælingu er átt við að
hráefnið er í ákveðnum þrepum
kælt strax eftir veiðar niður í um
mínus 0,8 gráður. Rannsóknir
hingað til benda til að með
þessu ferli sé hægt að hafa
veruleg áhrif á dauðastirðnun í
fiskinum og los í fiskholdinu en
það eru áhrifaþættir sem skipta
bæði verulegu máli hvað varðar
gæði í fiskvinnslunni; flökun og
nýtingu, auk þess sem
geymslu þol afurðanna lengist
verulega.
Búið er að breyta einum tog-
ara á Íslandi úr frystiskipi í skip
með sérhæfðum búnaði til of-
urkælingar á aflanum sem þýðir
að um borð er enginn ís notað-
ur til kælingar á fiskinum. Með
sama hætti er verið að gera til-
raunir með ofurkælingu í smá-
bátum og í Noregi stendur Mat-
ís að rannsóknum á bæði áhrif-
um ofurkælingar á vinnslu á
ferskum laxi og útflutningi þar
sem afurðir eru t.d. fluttar án íss
til erlendra kaupenda.
„Mesta ávinninginn sjáum
við í vinnslu og útflutningi á
ferskum flökum og flakaafurð-
um, sem er stór og vaxandi
hluti í íslenskum sjávarútvegi.
Þetta eru mjög áhugaverðar
rannsóknir sem miklu gætu
skilað,“ segir Gunnar.
Mikill ávinningur af
ofurkælingu
Gunnar Þórðarson, stöðvarstjóri Matís á Ísafirði.
Ofurkæld þorskflök. Matís rannsakar áhrif ofurkælingar í vinnslu laxaafurða í Noregi.
R
a
n
n
sók
n
ir