Ægir - 01.02.2015, Qupperneq 26
26
„Við erum að hefja kynningu á
þessum nýja valkosti fyrir sjó-
menn og næstu vikur munu
leiða í ljós hver viðbrögðin
verða. En við erum mjög bjart-
sýn á að fá góð viðbrögð því
með þessu verkefni er verið að
bjóða sjómönnum upp á nýjan
valkost og laga hann að þeirra
þörfum, vinnu og aðstæðum,“
segja þau Hildur Betty Krist-
jánsdóttir og Valgeir Magnús-
son, verkefnastjórar, náms- og
starfsráðgjafar hjá Símenntun-
armiðstöð Eyjafjarðar, en þau
leiða nýtt verkefni sem ber
heitið Sjósókn - tækifæri og
áskoranir til mennta í sjávarút-
vegi. Verkefnið er sniðið að
þörfum sjómanna sem ekki
hafa lokið framhaldsskóla og
býðst þeim raunfærnimat í
ýmsum greinum sem tengjast
sjávarútvegi, námskeið í fisk-
vinnslu og fjarnám við Mennta-
stoðir, sem er námsleið frá
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
sem hefjast mun á komandi
hausti.
Samstarfsaðilar SÍMEY í verk-
efninu eru Mímir-símenntun,
Miðstöð Símenntunar á Suður-
nesjum, VISKA - fræðslu- og sí-
menntunarmiðstöð Vest-
mannaeyja og IÐAN fræðsluset-
ur, auk áðurnefndarar aðkomu
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífs-
ins en Sjómennt stendur að
baki verkefninu með fjárstuðn-
ingi ásamt Fræðslusjóði fram-
Hildur Betty Kristjánsdóttir og Valgeir Magnússon, verkefnastjórar hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar leiða verkefnið Sjósókn.
M
en
n
tu
n