Ægir - 01.02.2015, Qupperneq 27
27
haldsfræðslu. Í byrjun er verk-
efnið unnið til reynslu með sex
útgerðarfyrirtækjum þ.e. Sam-
herja hf. á Akureyri, Vísi hf. og
Þorbirni hf. í Grindavík, Ísfélag-
inu hf. og Vinnslustöðinni hf. í
Vestmannaeyjum og HB
Granda í Reykjavík.
Markmiðið er að starfandi
sjómenn þessara fyrirtækja fái
reynslu sína og þekkingu
metna í svokölluðu raunfærni-
mati inn í frekara nám, að þeim
séu kynntir möguleikar til frek-
ara náms, að þeir geti stundað
nám samhliða vinnu og verði
þannig hæfari starfsmenn.
Hvati með raunfærnimatinu
Valgeir segir góðan árangur af
þeirri hugmyndafræði sem
raunfærnimat í atvinnulífinu
byggir á. „Við höfum á undan-
förnum árum séð raunfærnimat
gera ákveðna galdra í lífi fólks.
Það eru ekki allir sem fara gegn-
um raunfærnimat með þann
draum í maganum að fara í
frekara nám en matið staðfestir
hins vegar þekkingu fólks sem
það hefur aflað sér á löngum
tíma í starfi. Með þessari viður-
kenningu og mati á hvers virði
hún er til náms losnar oft úr
læðingi ákveðinn hvati til að að
bæta við þekkinguna. Þar er
ekkert endilega um að ræða
lengra nám heldur getur ein-
mitt hentað mörgum að velja
Menntastoðir eða styttri nám-
skeið sem þetta verkefni býður
uppá. Takmarkið er að bjóða
sjómönnunum leiðir til að efla
sig í sínu starfi með meiri þekk-
ingaröflun,“ segir Valgeir en
bæði raunfærnimatið og náms-
efnið verður þannig útfært að
sjómenn geta unnið verkefnin í
tölvu á sínum vinnustöðum úti
á sjó eða í landi. Á næstu vikum
verða kynningarfundir með
áhöfnum skipa áðurnefndra út-
gerða þar sem verkefnið verður
kynnt en opið verður fyrir
skráningar í raunfærnimatið til
loka þessa árs.
Námsleiðir að mati loknu
Í verkefninu er sjómönnum
boðið upp á raunfærnimat í
nokkrum greinum, þ.e. iðn-
greinum, starfsnámi (t.d. matar-
tækni og starf matsveins), skip-
stjórn, fiskveiðum og fisk-
vinnslu og almennum bókleg-
um greinum (danska, íslenska,
enska og stærðfræði). Hildur
Betty mjög mikilvægt að geta
boðið námsleiðir að raunfærni-
matinu loknu, líkt og gert er í
verkefninu.
„Áhuginn hjá þeim útgerð-
um sem við höfum fengið til
samstarfs í verkefnið er mjög
mikill, sem líka hvetur sjómenn
fyrirtækjanna að grípa tæki-
færið. Hugmyndin er að sjá í
fyrsta áfanga verkefnisins
hvaða áhugi er fyrir hendi en til
lengri tíma er horft til þess að
bjóða síðan öllum starfandi og
reynslumiklum sjómönnum líka
upp á þennan valkost. Ég hvet
þess vegna þá sjómenn sem
vinna hjá öðrum fyrirtækjum en
eru áhugasamir að hafa sam-
band við okkur hjá SÍMEY eða
samstarfsaðilum okkar og skrá
sig því gangi allt að óskum
munum við halda þessari vinnu
áfram á næstu árum. Vonandi
erum við á upphafsreit í árang-
ursríkri ferð til aukinnar mennt-
unar sjómanna á Íslandi,“ segir
Hildur Betty.
Auk upplýsinga á heimasíðu
Símenntunarmiðstöðvar Eyja-
fjarðar má finna upplýsingar
um Sjósókn - tækifæri og áskor-
anir til mennta í sjávarútvegi á
Facebook.
Sjósókn – nýtt tæki-
færi til mennta fyrir
starfandi sjómenn
Sjómönnum hjá sex útgerðarfyrirtækum gefst nú færi á raunfærnimati og í framhaldinu að auka við sína
menntun með þeim námsleiðum sem Sjósókn býður upp á.