Ægir - 01.02.2015, Qupperneq 29
29
„Samfélagið breytist og matar-
venjurnar með. Þegar við byrj-
uðum 1994 seldist til dæmis
hrogn og lifur vel, einnig heill
fiskur með roði og saltmeti en
áhugi fyrir þessum gamla hefð-
bunda mat hefur dalað mjög.
Þorskur, lax og silungur sækja í
sig veðrið og nú roðflettum við
og beinhreinsum mest af því
sem við seljum. Fólk sækist eft-
ir tilbúnum réttum og skellir
þeim beint í ofn eða á pönnu.
Við lögum okkur einfaldlega að
breyttum viðhorfum,“ segir Ás-
mundur Karlsson, stofnandi
Gallerys fisks og eigandi ásamt
syni sínum Kristófer.
Hann er fæddur Grundfirð-
ingur, ólst þar upp og hóf
starfsferil sinn sem stýrimaður á
Grundfirðingi II að loknu námi í
Stýrimannaskólanum. Síðar
gerðist hann skipstjóri á Lunda
SH og stofnaði þar næst til eig-
in útgerðar ásamt þremur fé-
lögum sínum. Þeir gerðu út
Morgunstjörnuna SH, bát sem
var fyrsta smíðaverkefni Skipa-
víkur í Stykkishólmi 1965 og bar
mörg önnur nöfn áður en hann
var afskráður 1993. Norðursigl-
ing á Húsavík bjargaði síðar
bátnum frá eyðileggingu, gerði
hann upp og gerir út til hvala-
skoðunar sem Náttfara ÞH.
Kaupfélagsstjóri gerist fisksali
Fyrir Ásmundi átti að liggja að
læra útgerðartækni og í fram-
haldi af því að vinna í sjávarút-
vegsráðuneytinu og hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnu-
félaga. Hann starfaði svo um
hríð sem aðstoðarkaupfélags-
stjóri á Ísafirði og kaupfélags-
stjóri í Stykkishólmi.
„Fiskbúðin við Nethyl var
auglýst til sölu 1994. Hún varð
Gallery fiskur í eigu okkar feðga
og síðar líka samnefnt veitinga-
hús. Vel fer saman að reka versl-
un og matsölu undir sama þaki.
Við höfðum veitingahúsið fyrst
opið í hádeginu en lengdum af-
greiðslutímann og tókum á
móti gestum fram á kvöld. Svo
hrundi efnahagskerfið og
kvöldgestum snarfækkaði. Við
fórum þá aftur í fyrra horf og
stílum nú einungis upp veit-
ingasölu í hádeginu á virkum
dögum.
Reksturinn í heild gengur
vel, sem gerist reyndar alls ekki
af sjálfu sér. Við erum vakandi
og sofandi yfir fyrirtækinu öll-
um stundum. Einungis þannig
er hægt vænta bærilegrar af-
komu og til þess er leikurinn
auðvitað gerður.“
Ásmundur afgreiðir fisk yfir borðið. Fleiri og fleiri vilja fá réttina tilbúina í ofn eða á pönnu.
Roðlaust, beinlaust, tilbúið
honum er ekkert fararsnið sjá-
anlegt.
Kristófer er lærður mat-
sveinn og sinnir kokkamennsku
í eldhúsi fyrirtækisins. Þeir feðg-
ar færðu út kvíar í starfseminni
2002 og opnuðu veitingahúsið
Gallery fisk. Það er opið á virk-
um dögum kl. 11:30-14:00, vin-
sæll matstaður í hádeginu og
rómaður fyrir sjávarrétti sína af
öllu tagi. Þarna er gestum
þjónað til borðs og jafnan
þröngt setinn bekkurinn. Sá
sem kemur einu sinni hneigist
mjög til að koma aftur ... og aft-
ur. Ekki kemur það á óvart!
Uppboðskerfi fiskmarkaðanna
lykilatriði
Gallery fiskur er tryggur við-
skiptavinur fiskmarkaðanna og
kaupir megnið af sínum fiski á
rafrænum uppboðum þeirra á
öllu landinu kl. 13 á hverjum
virkum degi (og á laugardögum
líka að vetrarlagi). Ásmundur
gengur reyndar svo langt að
fullyrða að rafræna uppboðs-
kerfið sé forsenda rekstrarins.
„Uppboðskerfið er einfalt,
skilvirkt og öruggt. Fiskurinn,
sem við kaupum, kemur héðan
og þaðan af landinu. Að upp-
boði loknu er hann fluttur til
Hafnarfjarðar og þangað sækj-
um við hann morguninn eftir.
Við gerum upp við Reiknistofu
fiskmarkaða og Reiknistofan
gerir upp við útgerðirnar sem
selja.
Ég myndi hreinlega ekki
standa í þessu ef við þyrftum
sjálfir að mæta á markað til að
kaupa og sendast út og suður
eftir fiskinum. Kerfið er svo ein-
falt og gott að ég líki því við
byltingu.“