Ægir - 01.02.2015, Blaðsíða 30
30
G
rá
slep
p
u
v
eiða
r
Óhætt er að segja grásleppu-
vertíðin á þessu vori fari af stað
með látum því aflinn á fyrstu
vikunum hefur verið með allra
besta móti. Veiðarnar hófust
þann 20. mars en þá þegar
hafði umtalsverður hrognkelsa-
afli borist á land eða 20 tonn af
grásleppu og 25 tonn af rauð-
maga. Þar af komu um 7 tonn
af grásleppu frá netabátum
sem kemur heim og saman við
að grásleppu fór að verða vart á
landgrunninu strax í janúar og
febrúar. Bjartsýni er um kom-
andi vertíð, aðstæður á mörk-
uðum eru nú þannig að engin
óseld hrogn eru í landinu,
birgðastaða minni en í meðal-
ári og eftirspurn.
Grásleppan komin snemma í
fjörurnar
Ingvar Þór Óskarsson á Dalvík
hefur yfir að ráða þremur bát-
um með grásleppuleyfi og rær
frá Kópaskeri, líkt og undanfarin
ár. Hann hóf veiðar á fyrsta
bátnum strax og heimilt var.
„Á fyrstu vikunni drógum við
netin þrisvar sinnum og feng-
um yfir 11 tonn samanlagt, eða
um 20 tunnur af hrognum. Það
er alveg hörkugóður afli og lof-
ar mjög góðu um framhaldið,“
segir Ingvar Þór en þegar við
hann var rætt lá ekki fyrir hver
leyfilegur dagafjöldi yrði á
hvern bát. Í ljósi góðrar byrjun-
ar í veiðunum átti hann þó ekki
von á að dagafjöldinn yrði auk-
inn verulega frá þeim 20 dög-
um sem upphaflega var úthlut-
að en með hliðsjón af vorralli
Hafrannsóknarstofnunar er
dagafjöldinn jafnan ákvarðaður
endanlega eftir að veiðar eru
hafnar.
„Bæði er mikið af gráslepp-
unni á grunnslóðinni og hún er
líka væn, eða yfir 3 kg. meðal-
vigt. Í fyrra mældist mikið af
grásleppu í vorrallinu en þá var
líka aflinn í byrjun vertíðar mjög
Grásleppuvertíðin
hefst með látum
Ingvar Þór Óskarsson, grásleppukarl á Dalvík, rær líkt og síðstu ár frá Kópaskeri. Aflinn hjá honum á fyrstu vikunni á vertíðinni var rúm 11 tonn.
„Alveg hörkuveiði,“ segir hann.
Grásleppuvinnsla á Drangsnesi. Þar eru hrognin söltuð og hveljan fryst.