Ægir - 01.02.2015, Page 32
32
„Ég hef meðvitað látið lítið fyr-
ir okkur fara síðustu ár á með-
an við höfum verið að vinna að
vöruþróum og framleiðslu á
okkar vélum. Kynning á Ís-
lensku sjávarútvegssýningunni
í september var síðan vendi-
punktur þar sem við kynntum
það sem við höfum að bjóða og
er óhætt að segja að sýningin
hafi skilað okkur góðum ár-
angri, bæði hérlendis og er-
lendis. Eins og staðan er í dag
erum við að selja um 80% af
okkar vélbúnaði erlendis og
eigum fullt í fangi með að
mæta eftirspurninni,“ segir
Elliði Hreinsson, framkvæmda-
stjóri Curio ehf. í Hafnarfirði.
Fyrirtækið sérhæfir sig í fram-
leiðslu á vélbúnaði fyrir bol-
fiskvinnslu, þ.e. flökunarvél-
um, hausurum og roðflettivél-
um.
Áherslan á gæði í flökun og
nýtingu
Elliði hefur lengi starfað við þró-
un vélbúnaðar fyrir fiskvinnslu,
áður hjá Fiskvélum en frá árinu
2008 hefur hann byggt fyrir-
tækið Curio ehf. upp á þessu
sviði. Í dag er fyrirtækið með
höfuðstöðvar í Hafnarfirði,
starfsstöð í Skotlandi og nokkra
starfsmenn í þjónustu í Bret-
landi og á Írlandi, auk þess sem
þriggja manna starfsstöð er á
Húsavík þaðan sem veitt er
þjónusta við notendur véla frá
Curio ehf. á Norður- og Austur-
landi. Ennfremur framleiðir
Húsavíkurstarfsstöðin íhluti fyrir
vélasamsetninguna sem öll fer
fram í Hafnarfirði. Að jafnaði
starfa um 35 manns hjá fyrir-
tækinu og líkur til að þeim fjölgi
enn frekar í ár.
Auk áðurnefndra véla fram-
leiðir Curio ehf. brýningarvél
fyrir hnífa í flökunarvélum sín-
um og ýmsan annan minni og
sérhæfðari búnað fiskvinnslur,
t.d. pækilblöndunarkerfi fyrir
saltfiskvinnslur og fleira.
„Áhersla okkar er á að fram-
leiða bolfiskvinnsluvélar sem
skila gæðum í vinnslu, nýta fisk-
inn vel og eru traustar og áreið-
anlegar. Markmiðið er að vél-
arnar skili fyrsta flokks fiskflök-
um. Samhliða því sem almennt
er aukin áhersla á framleiðslu á
ferskum fiski fyrir neytendur
skiptir enn meira máli að flök-
unin sé fyrsta flokks og að fisk-
urinn líti vel út þegar hann kem-
ur fyrir sjónir viðskiptavinarins.
Annað og ekki síður mikilvægt
atriði er nýtingin,“ segir Elliði.
Fyritækið vex með
útflutningnum
Vöxtur fyrirtækisins er fyrst og
fremst erlendis en fjöldi véla frá
Curio er einnig í notkun hér á
landi og segir Elliði að raunar sé
innanlandsmarkaðurinn nokk-
uð líflegur um þessar mundir.
„Grundvöllur að vexti okkar
síðustu mánuði og ár er erlendi
Vél frá Curio að taka á sig mynd á gólfi fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Áhersla Curio er á smíði bolfiskvinnsluvéla. Hér er unnið við flökunar-
vél frá fyrirtækinu.
F
isk
v
in
n
slu
v
éla
r