Ægir - 01.02.2015, Side 34
34
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
Hagstofa Íslands hefur birt
rekstrarniðurstöður fiskveiða
og fiskvinnslu árið 2013 þar
sem fram kemur að hagnaður
fyrir afskriftir, fjármagnskostn-
að og tekjuskatt dróst saman
frá árinu 2012. Hlutfallið lækk-
aði úr 30,3% í 26,5% í fiskveið-
um og fiskvinnslu. Í fiskveiðum
fór hlutfallið úr 25% árið 2012 í
20,1% árið 2013, eða í 32 millj-
arða króna. Í fiskvinnslu fór
hlutfallið úr 17,2% í 17% eða í
um 40 milljarða króna.
Ef horft er á hreinan hagnað
botnfiskveiða og -vinnslu,
reiknaðan sem hlutfall af
tekjum, dróst hann saman úr
21,4% af tekjum árið 2012 í
17,4% árið 2013. Hlutfallslega
lækkaði hlutfallið meira í botn-
fiskveiðunum en -vinnslunni
milli ára. Milli þessara tveggja
samanburðarára varð svipuð
þróun í uppsjávarveiðum og
bræðslu. Hreinn hagnaður
þessara greina í heild fór úr
36,1% af tekjum í 25,2%.
Afurðaverð lækkaði
Verð sjávarafurða á erlendum
mörkuðum í íslenskum krónum
lækkaði um 6,1% frá fyrra ári og
verð á flotaolíu í USD lækkaði
að meðaltali um 3,5% á milli
ára. Gengi dollarans lækkaði
um 2,5% á milli ára. Útflutn-
ingsverðmæti sjávarútvegs
jókst um 1,4%, verð á útflutn-
ingsvörum í sjávarútvegi lækk-
aði um 5,6% og magn útfluttra
sjávarafurða jókst um 7,5%.
Veiðigjald útgerðarinnar fór úr
12,8 milljörðum fiskveiðiárið
2012/2013 í 9,2 milljarða fisk-
veiðiárið 2013/2014. Í reikning-
um fyrirtækjanna er veiðigjald-
ið talið með öðrum rekstrar-
kostnaði.
Hagnaður var á rekstri mjöl-
og lýsisvinnslu og uppsjávar-
veiðiskipa á árinu 2013. EBITDA
mjöl- og lýsisvinnslu var 25,1%
og uppsjávarveiðiskipa 22,7%
af tekjum. Afli þessara skipa var
um 11% minni en fyrra ár.
Strandveiðar stunduðu 539
bátar á árinu 2013, flestir minni
en 10 brúttótonn. Afli bátanna
var um 8.900 tonn og aflaverð-
mætið rúmlega 2,1 milljarðar.
EBITDA strandveiðanna árið
2013 var 8,9%.
Lækkun skulda og hækkun
eiginfjár
Samkvæmt efnahagsreikningi
voru heildareignir sjávarútvegs
í árslok 2013 tæpir 530 milljarð-
ar króna, heildarskuldir rúmir
380 milljarðar og eigið fé tæpir
rúmir 149 milljarðar. Verðmæti
heildareigna lækkaði um 1% frá
2012 og skuldir lækkuðu um
rúm 11%. Eiginfjárhlutfallið
reyndist 28,2% en var 19,9% í
árslok 2012.
Eiginfjárhlutfallið var nei-
kvætt um tæplega 12% í árslok
2008 en árin þar á undan var
eiginfjárhlutfallið á bilinu 24–
29%.
Rekstur í sjávarútvegi árið 2013:
Minni
hagnaður en
efnahagur
styrkist
Hagnaður í fiskvinnslu nam 40 milljörðum árið 2013 eða 17% tekna.
S
já
v
a
rú
tv
eg
u
r