Morgunblaðið - 15.01.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015
Gunnar Rögnvaldsson reifar ísínum pistli hugmynd, sem
ætla mætti að sannir jafnaðar-
menn gætu verið veikir fyrir, að
minnsta kosti að öðru jöfnu:
Mér finnst aðþeir pen-
ingar sem Rík-
isútvarpið fær til
reksturs þess, ættu
að deilast niður á
alla fjölmiðla í
landinu svo að þeir
í friði og jafnri að-
stöðu geti háð innvortis styrjöld
sín á milli og þjarmað þannig rík-
isfjármagnaðir hver að öðrum
með hinum pólitíska boðskap sem
ríkisstarfsmönnum í fjölmiðlastétt
einum er lagið og sem ekkert á
skylt við fjölmiðlun né hvað þá
Upplýsinguna.
Þannig að við fáum loksins aðvera í friði fyrir þessu ríkis-
fjármagnaða pólitíska afli með því
að láta það sjálft um að drekka
sig í hel með sínu perestroika úr
vínkjallara sósíalismans.
Þegar slagurinn er búinn ættiað loka fyrir peningana og
aka brunarústunum á öskuhaug-
ana.
Þá væri komið hreint borð ogfjármunum skattgreiðenda
hefði loksins verið vel varið.
Láta þá sjálfa um sína byltingu.
Annað er varla sanngjarnt.
Einn lítri af perestroika sósíal-ismans myndi þar eftir verða
mark to market og kosta meira en
ekki neitt á kostnað annarra.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Ekki vandamál,
bara lausnir
STAKSTEINAR
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKISLEIKJA
MALBIKIÐ Í FROSTINU!
-NAGLADEKKIN
UNDIRHJÓLIÐ
FÁST ÍGÁP
Veður víða um heim 14.1., kl. 18.00
Reykjavík -4 léttskýjað
Bolungarvík -3 snjóél
Akureyri -4 snjókoma
Nuuk -11 snjókoma
Þórshöfn 1 skýjað
Ósló -5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 2 léttskýjað
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 2 skúrir
London 7 heiðskírt
París 6 heiðskírt
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 2 skúrir
Berlín 6 heiðskírt
Vín 5 skýjað
Moskva 2 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 6 þoka
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 léttskýjað
Aþena 10 heiðskírt
Winnipeg -11 alskýjað
Montreal -20 skýjað
New York -3 skýjað
Chicago -10 alskýjað
Orlando 16 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:56 16:20
ÍSAFJÖRÐUR 11:27 15:58
SIGLUFJÖRÐUR 11:12 15:39
DJÚPIVOGUR 10:32 15:43
Hálfdán Ingólfsson, flugstjóri hjá
Erni, fékk góðar móttökur á Reykja-
víkurflugvelli í gær þegar hann kom
úr sinni síðustu ferð fyrir félagið.
Skv. reglum lætur Hálfdán nú af
störfum vegna aldurs en hann er 65
ára í dag, 15. janúar.
Ferill Hálfdánar er langur. Hann
fór ungur í flugnám og hóf störf hjá
Erni á Ísafirði 1977. Vestfirðir voru
vettvangur félagsins, m.a. póst- og
sjúkraflug, og þurfti oft að tefla á
tæpasta vað enda mannslíf í húfi.
Um 1990 starfaði Hálfdán á vegum
Ernis í Afríku, en þá leigði Rauði
krossinn Twin Otter-vél frá félaginu
til hjálparstarfs í Kenýa og Angóla.
Svo sneri Hálfdán aftur heim, en
rauður þráður í starfi hans hefur
verið flug á litlum vélum út um land.
Síðasta ferð Hálfdánar í gær var
til Bíldudals, en ferðir hans þangað
eru óteljandi. Þar var Hálfdán
kvaddur með virktum svo og fyrir
sunnan, en slökkvibílar voru notaðir
til að mynda vatnsboga þegar Hálf-
dán ók Jet Streem-vél Ernis í hlað
eftir sína lokalendingu. Í flugskýli
var svo fjöldi fólks saman kominn til
þess að heiðra fluggarpinn, sem er
goðsögn marga á meðal. sbs@mbl.is
Þakklæti Hálfdán fyrir miðju með Jónínu Guðmunds-
dóttur og Herði Guðmundssyni, eigendum Ernis.
Morgunblaðið/Þórður
Athöfn Slökkviliðið sprautaði vatnsboga yfir flugvél Ernis þegar Hálfdán ók í hlað eftir lokaferð.
Hálfdáni
fagnað við
lendingu
Vestfjarðaflug-
maður lýkur ferli