Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, afhenti sínar árlegu
viðurkenningar í Hörpu í gær og heiðraði þrjár konur.
Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir, einn aðaleigandi
Ísfélags Vestmannaeyja, hlaut FKA-viðurkenninguna
2015, María Rúnarsdóttir, einn stofnenda Mint Sol-
utions, var sæmd hvatningarviðurkenningu félagsins
og Guðný Guðjónsdóttir, eigandi Mokka-Kaffis, fékk
þakkarviðurkenningu FKA 2015.
Þrjár konur heiðraðar
Þökk Guðný Guðjónsdóttir og Oddný Guðmundsdóttir, dóttir hennar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FKA-viðurkenningin 2015 Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir ávarpar gesti í Hörpu.
Hvatning María Rúnarsdóttir.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Landsbankinn tilkynnti í gær að
fækkað yrði um 30 manns á flestum
sviðum í höfuðstöðvum bankans.
Einnig hefur ráðningarsamningum
13 fastráðinna starfsmanna í af-
greiðslu Landsbankans í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar verið sagt upp.
Bankinn segir að uppsögn starfs-
manna í flugstöðinni sé varúðarráð-
stöfun og verði afturkölluð haldi
bankinn áfram að sinna þar fjármála-
þjónustu. Þjónustusamningi við
bankann var sagt upp í fyrra og átti
að bjóða fjármálaþjónustuna út. Af
því varð ekki og var þjónustusamn-
ingurinn framlengdur þannig að af-
greiðsla bankans verður opin til 30.
júní nk.
Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja (SSF), sagði að
svo virtist sem uppsagnir bankafólks
virtust engan enda ætla að taka.
Hefur fækkað um þriðjung
„Frá árinu 2008 hefur rúmlega
2.300 manns verið sagt upp hjá fjár-
málafyrirtækjunum. Það voru stórar
uppsagnir 2008 og 2009. Svo kom smá
hlé 2010 og 2011. Frá 2012 hafa verið
uppsagnir nánast í hverjum einasta
mánuði,“ sagði Friðbert. Félagsmenn
SSF eru nú rúmlega 4.000 talsins og
hefur félagsmönnum því fækkað um
rúmlega þriðjung frá 2008. Þeir eru
m.a. starfsmenn viðskiptabankanna,
Seðlabankans, sparisjóðanna, Reikni-
stofu bankanna, Lífeyrissjóðs banka-
manna og kortafyrirtækjanna. Nokk-
ur hópur vinnur enn við að gera upp
bú gömlu bankanna sem féllu. Vitað
er að þau störf eru tímabundin.
Friðbert sagði að uppsagnir hefðu
verið til skiptis hjá stóru bönkunum.
Litlu bankarnir hefðu líka fækkað
starfsfólki. Uppsögnin hjá Lands-
bankanum nú var það stór að hún var
tilkynningarskyld. Friðbert sagði al-
gengara að 4-8 starfsmönnum væri
sagt upp í hverjum mánuði hjá hinum
ýmsu fjármálafyrirtækjum og þær
þyrfti ekki að tilkynna.
„Svona ástand veldur svo miklum
óróa. Enginn starfsmaður er öruggur
um framtíðina. Mjög stór hópur sem
hefur komið inn í bankana undanfar-
inn áratug er mjög vel menntaður,
með háskólagráður. Fólkið taldi sig
vera komið í gott og öruggt starf,“
sagði Friðbert. Hann sagði að trún-
aðarmaður væri yfirleitt viðstaddur
uppsögn vildi starfsmaðurinn það.
Uppsagnarfrestur starfsmanna
fjármálafyrirtækja er þrír mánuðir.
Eftir tíu ára starf eða þegar starfs-
maður er orðinn 45 ára lengist upp-
sagnarfrestur í sex mánuði. Í tilvikum
hafa bankarnir boðið betur en þetta
þegar gerðir eru starfslokasamning-
ar. Í öllum tilvikum þurfa starfsmenn-
irnir að yfirgefa vinnustaðinn strax
við uppsögn. Uppsögn starfsfólksins í
Leifsstöð er þó undantekning á því,
að sögn Friðberts.
Landsbankinn sagði upp 43
Uppsögn 13 starfsmanna varúðarráðstöfun sem kann að snúast við Upp-
sagnir bankafólks virðast engan enda ætla að taka, segir framkvæmdastjóri SSF
„Svona ástand
veldur svo
miklum óróa.“
Friðbert Traustason
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Þjónustukönnun Capacent meðal
íbúa var lögð fram í borgarráði í gær-
morgun en þar kemur meðal annars
fram að af samanburði á þjónustu
nítján stærstu sveitarfélaga landsins
þykir þjónustan við íbúa vera síst í
Reykjavík. Samkvæmt þjónustu-
könnun Capacent fær borgin lökustu
einkunn í svörum við átta spurning-
um af tólf og er í öllum tilfellum und-
ir meðaltali í þessum samanburði.
Þegar spurt er um ánægju með
sveitarfélagið sem stað til að búa á
eru einungis Borgarbyggð, Reykja-
nesbær og Árborg með lakari nið-
urstöðu. 79% aðspurðra voru ánægð
með sveitarfélagið sem stað til þess
að búa á, þar af 26% mjög ánægð.
Árbæingar sáttastir
við umhverfið
Spurt var út í þjónustu Reykjavík-
ur í tíu hverfum en könnunin var
framkvæmd í desember árið 2014. Í
niðurstöðum könnunarinnar kemur
meðal annars fram að íbúar Grafar-
holts/Úlfarsárdals eru hvað síst
ánægðir með hverfið sitt sem stað til
að búa á en íbúar Laugardals voru
ánægðastir.
31% Reykvíkinga kvaðst ánægt
með skipulagsmál í sveitarfélaginu
en 37% voru óánægð. 52% þeirra
kváðust þó ánægð með skipulagsmál
í sínu eigin hverfi. Þá skorar Reykja-
vík lægst þegar kemur að ánægju
með gæði umhverfis í nágrenni við
heimili svarenda en Árbæingar voru
sáttastir með sitt hlutskipti í þeirri
spurningu þegar litið er til sérstakra
hverfa Reykjavíkur. Reykjavík skor-
ar einnig lægst þegar kemur að þjón-
ustu við barnafjölskyldur, þjónustu
leik- og grunnskóla og þjónustu við
eldri borgara.
Ánægja minnkað
eilítið á milli ára
Einu liðirnir þar sem Reykjavík
rak ekki lestina voru spurningar um
sveitarfélagið sem stað til þess að
búa á, skipulagsmál í sveitarfélaginu,
hvernig sveitarfélagið sinnir menn-
ingarmálum og ánægju í tengslum
við sorphirðu. Ánægja með sveitar-
félagið sem stað til þess að búa á hef-
ur minnkað lítillega frá því árið 2013
sem og ánægja með þjónustu við fatl-
að fólk í sveitarfélaginu en annað
hefur staðið í stað. Þá voru sam-
göngu- og umhverfismál þeir tveir
liðir sem Reykvíkingum þótti mest
þörf á að bæta auk endurvinnslu- og
sorphirðumála.
Reykjavík
rekur lestina
Morgunblaðið/Ómar
Könnun Íbúar Laugardals voru ánægðastir innan Reykjavíkur með hverfi
sitt sem stað til þess að búa á. Íbúar Grafarholts/Úlfársdals óánægðastir.
Capacent bar saman nítján sveitarfélög
Þjónustukönnun
Capacent
» 79% aðspurðra voru ánægð
með Reykjavík sem stað til þess
að búa á.
» Seltirningar eru ánægðastir
með gæði umhverfisins í ná-
grenni við heimili og þjónustu
við eldri borgara.
» Garðbæingar eru ánægðastir
með þjónustu við grunnskóla.
» Íbúar Norðurþings eru
ánægðastir með þjónustu við
fatlað fólk.
Samkvæmt nýju
stjórnarfrum-
varpi um með-
ferð elds og
varnir gegn
gróðureldum
verður óheimilt
að kveikja í bál-
kesti nema með
skriflegu leyfi
sýslumanns að
fengnu samþykki
slökkviliðsstjóra og starfsleyfi heil-
brigðisnefndar. Ekki þarf þó leyfi
til að kveikja bál sem inniheldur
minna en rúmmetra af eldsmat.
Greinin um bálkesti er nýmæli í
lögum, samkvæmt skýringum við
frumvarpið. Tekið er mið af leið-
beiningum um vinnutilhögun og
leyfisveitingar vegna bálkasta og
brenna frá árinu 2000.
Bannað að
kveikja bál í
leyfisleysi
Frumvarp Lög
um brennur.