Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi athugasemd Víglundar
Þorsteinssonar við fréttaskýringu
sem birtist á bls. 18 í Morg-
unblaðinu 27. janúar sl. undir fyr-
irsögninni Innheimtan á ekki að
koma neinum á óvart:
„Það er fyrst til að taka að eng-
in viðskipti um lán eða lánasöfn
fóru fram á milli gömlu og nýju
bankanna. Það var ekkert selt og
því ekki keypt.
FME yfirtók hluthafavald í fé-
lögunum þrem skv. heimild í neyð-
arlögum, flutti sparifé landsmanna
yfir í nýja banka sem ríkið stofn-
aði með heimild í sömu lögum.
Í neyðarlögunum var síðan
heimild fyrir FME til að hald-
leggja/gera upptækar eignir þ.e.
fjárkröfur og tryggingarréttindi
undir þeim. Þetta var til að standa
undir skuldunum/ innlánunum sem
flutt voru. Jafnframt heimild til að
láta meta eignirnar til raunvirðis.
Allt var þetta gert í samræmi
við þessar heimildir. Engin við-
skipti við gömlu bankana áttu sér
stað. Engin lánsskjöl eða samn-
ingar framseldir.
FME gaf út sérstakar for-
sendur fyrir skiptingu efnahags
dags. 14. sbr. 19.10. (aðeins end-
urskoðað þá). Það skjal er í
gagnapakkanum sem ég hef sent
frá mér. Neðst á fyrstu bls. þess-
ara forsendna og efst á bls. 2
koma fram ákvarðanir um þessi
lánasöfn.
Þar segir: útlán eru flutt í hinn
nýja banka að teknu tilliti til áætl-
aðra afskrifta einstakra útlána.
Hér skipta öllu við lögskýringu
orðin einstakra útlána. Fram-
haldið er síðan lýsing á því hvern-
ig vinna skuli að matinu.
Niðurstaðan er skýr. Engin við-
skipti áttu sér stað heldur ráð-
stafanir/haldlagnir/yfirtökur í
stjórnvaldsúrskurði sem lýtur
reglum stjórnsýslulaga t.d. um
breytanleika eða afturkallanleika
sem og jafnræði og meðalhóf til
viðbótar við reglur neyðarlag-
anna.“
Víglundur Þorsteinsson.
Það var ekkert selt
Klettafjallaskáldið
var haldið þrá í
heimahaga æskuár-
anna í Skagafirði,
víðs fjarri í eilífðar
útsæ. Engar kaup-
skipaferðir voru við
Vesturheim á 19. öld
og sendibréf óralengi
á leiðinni. En nú er
beint áætlunarflug
meira að segja til Al-
berta, heimkynna Stephans G., og
tölvupóstur kemst á sek-
úndubroti. Ísland og Kanada eru
nágrannaþjóðir og félagar í varn-
arbandalagi. Ísland markar ytri
mörk landvarna þeirra og Banda-
ríkjanna og kanadíski flugherinn
hefur tekið þátt í loftrýmisgæslu
NATO hér.
Ráðamenn margir virðast
haldnir þeirri tímaskekktu skoð-
un, að Ísland sé eitt og sér og til
eilífðar óáreitt í útsænum. Sá
boðskapur hefur verið í nokkurri
hefð í hátíðarræðum, einkum 17.
júní, og sagt tengjast sjálfstæð-
isbaráttunni. Þegar
tryggja skal frjálst
og fullvalda Ísland í
varnar- og öryggis-
samstarfi eða með
föstum tengslum við
Evrópu í efnahags-
samvinnu, er sann-
leikanum snúið við
og gefið í skyn að
ESB eða NATO séu
skaðleg hagsmunum
okkar. En þessi mál-
flutningur, samhliða
daðri við Kínverja
og Rússa, þjónar þeim tilgangi
að fjarlægja okkur frá nágrönn-
um og vinaþjóðum. Hvorki þeir
né aðrir, nær eða fjær, deila
þeirri landafræðikenningu að
strategísk staða Íslands sé lítils-
verð. Þvert á móti. Okkur er
ógnað af feikimikilli hervæðingu
Rússa norðan Íslands og ágangi
Kínverja að bola sér að um að-
stöðu og við vinnslu náttúrugæða
á hafsvæði Grænlands og Ís-
lands.
Hugmyndafræðileg stefna, ef
svo skyldi nefna, sem byggir á
ranghugmyndum um þýðingu
Evrópusamvinnunnar, er sér-
staklega hættuleg eins og málum
er komið einmitt nú í ársbyrjun
2015. Þjóðarhagsmunir eru í veði
að ljúka aðildarsamningnum við
Evrópusambandið og tryggja
þátttöku í myntbandalagi þess.
Við að stíga ábyrg skref í þá átt,
yrðu jafnframt til þær aðstæður
sem nauðsynlegar eru fyrir
haftalaus viðskipti vöru, þjónustu
og fjármagns. Þar við bætist að
aðeins með aðild að ESB yrði Ís-
land aðili að bandalagi þess og
Bandaríkjanna um fríverslun og
fjárfestingar. Evrópusambandið
fjallar um aukna samvinnu gegn
hryðjuverkum, einn þátt aukinna
sameiginlegra varna. Bandaríkin
með Norðurlöndunum mættu
stefna að samvinnu um varnir og
öryggi á norðurslóðum. Í þeim
málum og öðrum um samvinnu
þeirra þjóða sem öllu varða fyrir
okkur er stefna okkar óljós.
Eftir Charlie Hebdo-uppákomu
Íslands þarf að staldra við. Mér
kemur ekki til hugar að neinn ís-
lenskur ráðamaður hefði yfirveg-
að viljað sitja heima þegar vina-
þjóð var sýnd samstaða vegna
hrottafenginnar hryðjuverka-
árásar. Það var hins vegar
hörmulegt að forsætisráðherra,
eða annar ráðherra að honum
frágegnum, skyldi ekki hnýta
bróðurkeðju með öllum leiðtog-
um Evrópu á Place de la Ré-
publique hinn 11. janúar.
Frá hinu merka landnámi á
Nýja-Íslandi fyrir hálfri annarri
öld, var farið að fjúka í sporin
þegar efnt var til átaks eflingar
tengsla um síðastliðin aldamót.
Mikil réttlæting þeirrar viðleitni
er stuðningur við kynningu ís-
lenskrar menningar og tungu.
Manitoba-háskóli er einn í Norð-
ur-Ameríku um að veita gráðu-
töku í íslensku. Eftir frumbyggj-
ana liggur merk íslensk ljóðagerð
og feikimikið ritað mál og útgáfu-
starfsemi. Fyrir stjórnmálamenn
okkar er þátttaka í þjóðhátíð-
ardeginum á Gimli þeim vafalaust
til ánægju. Það mætti ætla að sú
sé líka raunin með Norð-
urlandaráð enda mikil uppgrip at-
vinnu hjá frændþjóðunum. En við
stefnum ekki í setu utangarðs í
Evrópu þótt þátttaka í gæluverk-
efnum sé ljúf leið. Ekkert fær
breytt því að við erum rótgróin
Evrópuþjóð og erum mörgum
þeirra fremur veitendur í sögu-
og menningarlegu tilliti.
Fjærst í eilífðar útsæ
Eftir Einar
Benediktsson »En þessi málflutn-
ingur, samhliða
daðri við Kínverja og
Rússa, þjónar þeim til-
gangi að fjarlægja okk-
ur frá nágrönnum og
vinaþjóðum.
Einar Benediktsson
Höfundur er fv. sendiherra.
Fyrir einu ári síðan undirritaði ég
samning, með atkvæði mínu, að því
að ég hélt, á milli VR, sem hluti
vinnumarkaðar og svo hins vegar
ríkisins; með forsætis- og fjár-
málaráðherra í forsvari.
Nú er mér allt ljóst! Ríkið sveik
flest eða öll ákvæði samningsins og
þess vegna er nú gjá á milli!
Mín krafa nú er um samtals 39%
hækkun launa á tveimur og hálfu
ári! Lágmarkslaun verði 260.000
frá 1.1. 2015. Öll önnur laun hækki
þá um 19% og síðan um 10% 1.1.
2016 og svo 10% 1.1. 2017. Samn-
ingstímabilið endi svo rétt fyrir
kosningar til Alþingis, í maí 2017!
Ekki orð við ríkisvaldið á með-
an!
Halldór Halldórsson,
skrifstofumaður í Hafnarfirði.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Baráttan framundan!