Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 ✝ Sturla Eiríks-son fæddist í Reykjavík 21. októ- ber 1933. Hann lést í Reykjavík 19. jan- úar 2015. Foreldrar hans voru Eiríkur Jóns- son trésmíðameist- ari, f. í Hafrafells- tungu í Öxarfirði, N-Þing., 18.2. 1896, d. 21.11. 1980, og Snjólaug Guðrún Jóhann- esdóttir, húsfreyja, f. á Laxa- mýri, S-Þing., 13.12. 1903, d. 11.3. 1957. Systkini Sturlu: Jó- hannes Þórir, f. 6.8. 1930, d. 12.11. 1973, Rósa Jóna, f. 29.10. 1931, Snjólaug Guðrún, f. 26.11. 1935, d. 22.2. 2009. Eiginkona Sturlu er Solveig Thorarensen, fædd í Reykjavík 9.9. 1933. Foreldrar hennar: Óskar Thorarensen, f. á Móeið- arhvoli, Rang., f. 24.9. 1887, d. 20.9. 1953, og Ingunn Eggerts- dóttir, f. á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, 7.1. 1896, d. 12.3. 1982. Sturla og Solveig gengu í hjónaband 4.9. 1954. Börn þeirra: Snjólaug Guðrún, flug- freyja, f. 12.1. 1955, d. 21.1. 2000, eiginmaður Ólafur K. Ólafsson, f. 5.1. 1954, d. 10.10. 1981, sonur þeirra Eiríkur Sturla, f. 1976, seinni eig- inmaður, Helmut Maier, f. íslenskra bókaútgefenda og kom að stofnun bókaklúbbsins Veraldar. Hann gegndi einnig trúnaðarstörfum fyrir Félag ís- lenskra stórkaupmanna. Árið 1983 stofnaði hann heildsöluna Fjölval hf. sem sameinaðist Agli Guttormssyni hf. 1986 og var Sturla framkvæmdastjóri fé- lagsins. Penninn sf. og Egill Guttormsson - Fjölval hf. sam- einuðust árið 1995 og starfaði Sturla fyrir sameinað félag til ársins 2002 er hann settist í helgan stein. Sturla var list- rænn, stundaði á sínum yngri árum myndlistarnám hjá Kurt Zier og þótti efnilegur mynd- listarmaður. Hann var áhuga- maður um ljósmyndun og snjall skákmaður. Sturla og Solveig bjuggu alla tíð í Reykjavík. Þau voru sam- hent hjón, miklir fagurkerar og deildu mörgum áhugamálum. Ferðuðust víða, bæði innan- lands og utan. Tónlist veitti þeim mikla ánægju og voru þau tíðir gestir á tónleikum. Þau voru félagar í Tónlistarfélagi Reykjavíkur og styrktarfélagar Íslensku óperunnar og sóttu reglulega tónleika Sinfón- íuhljómsveitar Íslands frá árinu 1955 allt fram á síðasta ár. Útför Sturlu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 30. janúar 2015, kl. 15. 18.11. 1956, sonur þeirra Óskar Jósef, f. 1985, maki Re- bekka Júlía Magn- úsdóttir, f. 10.7. 1980, þeirra dóttir Eva Lilja, f. 2013; Ingunn Ósk, söng- kona, f. 23.12. 1959, gift Birni Baldurssyni, f. 2.7. 1966, þeirra börn Baldur, f. 1998, Snjólaug Ásta, f. 2000; Steinunn Rósa, flugfreyja, f. 11.2. 1964, gift Sigurði Ragnarssyni, f. 24.5. 1968, þau skildu, þeirra sonur Sturla, f. 1992, sonur hennar og Karls Inga Eyjólfs- sonar: Styrmir Hrafn, f. 2004; Óskar, tölvunarfræðingur, f. 9.4. 1966, kvæntur Þorgerði Jörundsdóttur, f. 24.7. 1969, þeirra börn: Solveig, f. 1993, Jörundur, f. 1999, Eiríkur, f. 2002, Dagbjartur, f. 2003, Sturla, f. 2005. Sturla lauk samvinnuskóla- prófi árið 1953. Fyrstu árin starfaði hann fyrir W.C. Hend- rick á Keflavíkurflugvelli og síðan Svein Björnsson og Ás- geirsson hf. Árið 1960 gekk Sturla til liðs við Egil Guttorms- son hf. Hann stofnaði bókaút- gáfuna Fjölva hf. 1966 í félagi við mág sinn og vin, Þorsteinn Thorarensen, sat í stjórn Félags Laugardagskvöld í Hjallaland- inu. Lambalærið, svo listilega kryddað af pabba, mallar í ofn- inum. Hvítlauksilmur fyllir vitin. Öll fjölskyldan samankomin og við hjálpumst að við að leggja á borð. Þegar kjötið er tilbúið, tek- ur pabbi það út, sker niður og raðar á fat. Síðan hóar hann í alla og sest er til borðs. Pabbi, kvikur í hreyfingum, skenkir rauðvín í glösin. Fólk situr lengi við mat- arborðið og ræðir allt milli him- ins og jarðar, stjórnmál, fjöl- skyldumál og listviðburði. Pabbi finnur gjarnan spaugilegu hlið- arnar á málunum og mikið er hlegið og fíflast. Hann er stríðinn og ekki þýðir að vera hörundssár við þetta veisluborð. Ekkert er heilagt þegar pabbi „djókar“. Eftir að hafa borðað á sig gat er þakkað fyrir sig. Þá réttir pabbi út höndina og segir: „Það gera tíu og fimmtíu. Borga strax!“ En það gerir ekkert til þó maður eigi ekki pening. Hann setur það bara á reikninginn. Pabbi rukkar gjarnan fyrir mat og not á „toj- lettinu“. Það er einskær heppni að hann heldur sig ávallt við sama verð. Tíu og fimmtíu. Fjölskyldan kemur ekki sam- an án þess að hlustað sé á fallega tónlist. Pabbi velur hana oft og hrífst stundum svo af, að andlit hans flóir í tárum. Hann er ekki feiminn við að sýna tilfinningar. Móður okkar langaði víst oft að sökkva niðrí jörðina þegar þau sóttu tónleika og pabbi sýndi hrifningu sína með því að stappa niður fótum og hrópa bravó full- um raddstyrk. Það er vetur. Snjórinn er svo mikill að ekki er hægt að hreyfa bílinn. Pabbi deyr ekki ráðalaus. Hann setur yngstu krakkana á snjóþotu og dregur þau alla leið frá Háaleitisbraut í Fossvoginn. Hann þarf aðeins að huga að hús- inu sem hann er að byggja. Nokkrum vikum síðar flytur fjöl- skyldan öll í kjallarann á stóra húsinu. Það er svo kalt að heita vatnið frýs. En mamma og pabbi eiga ráð undir rifi hverju. Klæða okkur í föðurland og við hjúfrum okkur hvert upp að öðru. Það er sumar. Krökkunum er hlaðið inn í bíl og brunað í ferða- lag. Mamma hefur smurt ótelj- andi samlokur og ekki má gleyma góða kartöflusalatinu sem er ómissandi. Pabbi vílar ekki fyrir sér að keyra Kjölinn á lítilli Cortinu. Við förum yfir hverja ána á fætur annarri og pabbi leggur mikið uppúr að finna notalegt tjaldstæði. Það getur verið erfitt því það verður að vera úr alfaraleið. Á meðan hann leitar að flottasta tjaldstæð- inu syngjum við fyrir hann um Skraddarann og húsið hans. Þeg- ar við loks leggjumst til hvíldar í svefnpokunum eru okkur sagðar sögur af draugum og forynjum sem búa í hólum og hömrum í næsta nágrenni. Örvingluð unglingstúlka stendur í forstofunni. Enginn skilur hana. Allra síst pabbi og mamma. Hún rífur upp hurðina og öskrar að hún sé farin að heiman og að þau muni aldrei sjá hana aftur, skellir hurðinni og hleypur burt. Nokkrum klukku- stundum síðar snýr hún aftur. Hún er svöng. En hvað blasir við þegar hún opnar hurðina? Ferða- töskur og pabbi sposkur á svip. Hann spyr hvort hún sé ekki örugglega að flytja að heiman. Hann sé allavega búinn að pakka fyrir hana. Pabbi grúfir sig brúnaþungur yfir skák í eldhúskróknum. Prins Albert krumpaður á borðinu. Hann setur í brýnnar og tottar pípuna af áfergju því nú skal sýna meistaratakta. Þykkur mökkurinn liggur yfir öllu og inniskórnir tromma á parketinu. Skák og mát. Kötturinn hjúfrar sig upp að honum og öðru hvoru segir pabbi við hann sínum blí- ðasta rómi „Hattur minn, á ég að taka niðrum þig feldinn, flengja þig á beran bossann og snúa upp á rófuna á þér.“ Kötturinn lygnir augum malandi til samþykkis. Gamlárskvöld hjá Sturlu og Solveigu. Fastur punktur hjá vin- um og ættingjum. Ómissandi fögnuður hjá öllum. Hæsta jólatré sem fundist gat stendur í stofunni. Það hefur verið skreytt eftir kúnstarinnar reglum. Helst eiga bara að vera bláar jólakúlur. Pabbi er úti á svölum með vindil og kveikir í óteljandi flugeldum við mikinn fögnuð. Því hærri sem hvellurinn er, því betra. Eftir miðnætti safnast stórfjölskyldan saman. Allir fá hatta og ýlur. Fullorðna fólkið skálar í kampa- víni og mamma reiðir fram æv- intýralegt hlaðborð eins og fyrir galdur. Síðan sest hún við píanóið og allir taka undir í söng. Þegar við krakkarnir eldumst bætist enn meira í stuðið og vinir okkar vilja ekkert frekar en mæta á staðinn og taka þátt. Pabbi heill- aði alla, með glaðværð sinni. Minningarbrotin streyma fram. Sístarfandi vinnuforkurinn pabbi, sem rak okkur á lappir á morgnana og þoldi ekki slen og leti. Strangheiðarlegi bisness- maðurinn pabbi sem hafði ímu- gust á hverskyns undirferli og svindli. Sjarmatröllið pabbi sem tók upp tal við bláókunnugt fólk þannig að það varð hlæjandi greiðviknin ein. Myndasmiðurinn pabbi sem skrásetti líf fjölskyld- unnar af natni. Óbærilegur harmur steðjar að fjölskyldunni. Elskuleg dóttir glímir við ólæknandi sjúkdóm. Jarðarfarardagur Lólu systur að kvöldi kominn. Pabbi stendur í stofunni og horfir út í nóttina, mamma leggur hönd yfir öxl hans. Þau gráta. Það er gegn lög- máli lífsins að jarða barnið sitt. Nú kveðjum við föður okkar hinsta sinni. Við erum þakklát fyrir hann sem hlustaði með hjartanu og sá hið fagra í lífinu. Við erum þakklát fyrir að hafa átt ástríka foreldra sem studdu okkur í hverju því sem við tókum okkur fyrir hendur og gáfu hvort öðru rými til að vera þau sjálf. Hugurinn hvílir hjá móður okkar sem sér nú á bak eigin- manni sínum, besta vini og sálu- félaga. Hvíl í friði, elsku pabbi. Ingunn, Rósa og Óskar. Nú til hvíldar leggst ég lúinn, lát mig, Drottinn, sofa rótt; hvílan faðminn breiðir búin, blessuð kom þú draumanótt. Vef mig þínum ástararmi, englar guðs mér vaki hjá; friðardagsins blíði bjarmi, bráðum ljómar himni á. (Guðmundur Finnbogi Helgason) „Ekki láta pabba slá þig út af laginu, hann getur verið soldið stríðinn stundum.“ Þetta sagði Ingunn Ósk, kona mín, við mig þegar við renndum upp að húsi foreldra hennar í Hjallalandinu fyrir röskum 20 árum. Hún var á leið með mig í matarboð hjá for- eldrum sínum, þar sem tengda- sonurinn tilvonandi skyldi nú sýndur hið fyrsta sinni. Mér varð ekki um sel, en harkaði þó af mér, ég hlyti nú að halda út eitt mat- arboð. Þegar heim til foreldranna kom tóku á móti mér Stúlli, til- vonandi tengdapabbi, Solveig, kona hans, og allur systkinahóp- urinn, allir urðu að fá að berja bóndann að vestan augum. Svo var tekið til matar síns, spurt var frétta að vestan, fjallað um bú- fjáráburð, hver væri nú eiginlega munurinn á taði og skán, það var sjálfsögð kurteisi að umræðuefn- ið væri eitthvað sem gesturinn þekkti. „Ætlarðu að klára allt kjötið, maður?“ „Nei, Böddi minn bara að grínast, endilega fáðu þér meira,“ sagði hann kíminn. Svo var bóndinn beðinn að fram- leiða hin og þessi hljóð úr hinni vestfirsku draumaveröld, lunda- hljóð, kolluhljóð, gott ef ég var ekki látinn baula líka. Þetta reyndi nú töluvert á feimna bónd- ann, en mér varð fljótt ljóst að feimni væri óþörf þarna. Óhætt er að segja að mér hafi verið tek- ið vel allt frá fyrsta degi og frá hendi Stúlla minnist ég aldrei annars en hlýju og alúðar. Stúlli var gestrisinn og höfðingi heim að sækja, bóngóður og hjálpsam- ur þeim sem eftir því leituðu. Samviskusamari og duglegri maður er vandfundinn, hann vildi standa sína plikt óaðfinnanlega og vænti þess að aðrir gerðu slíkt hið sama, heiðarlegur og drengur góður. Hann var mikill húmoristi og átti það til að koma með hnyttnar athugasemdir um ýmis málefni og það sem var efst á baugi hverju sinni. Alls kyns fíflagangur var honum einnig mjög að skapi. Vakti það oft mikla lukku hjá barnabörnunum þegar hann var að fíflast í þeim eins og honum þótti svo gaman. Hann unni góðri tónlist og allt fram á það síðasta sóttu þau hjónin tónleika, þrátt fyrir að veikindi hans gerðu honum mjög erfitt um vik. Stúlli hafði átt við langvinn veikindi að stríða sem ágerðust með árunum en hann var ekki fyrir það að kvarta. Síð- ustu árin dvaldi hann á hjúkrun- arheimili og stóð Solveig kona hans við hlið hans sem klettur, í blíðu og stríðu, allt þar til yfir lauk, og einkenndist samband þeirra af mikilli ást og gagn- kvæmri virðingu. Nú er hann laus úr viðjum veikinda sinna og ég veit að hann á góða heimkomu á æðra tilveru- stig, nú þegar hann er genginn á vit feðra sinna. Ég vil þakka hon- um allar yndislegu og góðu stundirnar í gegnum árin. Elsku Solveig, Ninna, Rósa, Óskar og ykkar fólk, góður mað- ur er hniginn til foldar. Ég votta ykkur innilega samúð mína og megi Guð styrkja ykkur í sorg- inni. Farðu í Guðs friði, kæri tengdapabbi. Björn Baldursson. Afi Stúlli var æðislegur afi og ekki get ég ímyndað mér betri afa en hann var. Hann var með æðislegan húmor og reyndi alltaf að gleðja alla, og honum tókst það alltaf. Þegar ég og bróðir minn vorum yngri, fóru afi og amma alltaf með okkur í sund þegar við komum til Reykjavík- ur. Svo fórum við alltaf í Bak- arameistarann og fengum okkur einhvað að borða eftir sundið. Þegar ég og fjölskylda mín keyrðum suður hlakkaði ég alltaf svo mikið til að hitta afa og ömmu þvi við fórum alltaf strax til þeirra. Þá voru þau alltaf búin að kaupa Cocoa Puffs handa okkur systkinunum. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín mjög mikið. Guð geymi þig að eilífu. Snjólaug Ásta. „Jæja, Balli minn. Eigum við ekki skella okkur í sund?“ Þetta voru orðin sem vöktu mig á hverjum morgni þegar ég dvaldi í Logafoldinni hjá ykkur ömmu. Alltaf var jafn gaman að heyra þau og tilhlökkunin jafn mikil í hvert skipti. Þeir voru ófá sund- tökin og bíltúrarnir sem við tók- um saman, elsku afi minn. Þú gerðir allt til þess að gleðja aðra. Þú varst alltaf klár í slaginn, sama hvað það var. Söknuðurinn er gríðarlegur en ég er mjög þakklátur fyrir þessar stundir sem við höfum átt saman. Þeim mun ég aldrei gleyma. Sá dagur mun ekki líða sem ég hugsa ekki til þín með bros á vör. Annað er ekki hægt. Að lokum vil ég fá að segja þrjú orð í kveðju- skyni. Þau orð eru „Billi, balli, bú“. Guð geymi þig, ástkæri afi minn. Baldur. Minningar sem eru tengdar bæði lífsins gleði og sorg streyma um hugann við fráfall föðurbróð- ur míns, Sturlu Eiríkssonar, sem ég kallaði ávallt Stúlla frænda. Mikilvægir einstaklingar í lífi sérhvers manns eiga hlutdeild í öllum þáttum lífsins, gleði þess og sorg. Minningar geta verið fagrar og dýrmætar þrátt fyrir að tengjast ekki einungis lífsins gleðistundum. Það á svo sannar- lega við þegar ég staldra við minningarnar um Stúlla frænda, því hann var til staðar þegar til- efni var til að fagna einhverjum mikilvægum atburði en ekki síð- ur þegar þörf var á styrk og stuðningi. Hversdeginum má ekki heldur gleyma því í honum leynast einnig dýrmætar minn- ingar. Hugurinn leitar inn í stofuna hans Eiríks afa á Grenimelnum, þar sem pabbi og Stúlli frændi sátu skellihlæjandi að hlusta á hljómplötu sem Rósa systir þeirra hafði komið með frá Ja- maica. Sjálf hafði ég ekki aldur til að skilja hvað var svona fyndið enda skipti það ekki máli heldur minningin í huga mínum um þá bræður saman á góðri stundu. Mér þykir vænt um þessa minn- ingu þar sem pabbi dó ungur svo að slíkar minningar á ég fáar. Þeir voru nánir bræður og miklir vinir og syrgi ég þá tengingu sem ég hafði við föður minn í gegnum Stúlla ekki síður en að missa ynd- islegan frænda. Margar minningar eru tengd- ar Hjallalandinu þar sem Stúlli og Solveig kona hans byggðu sér hús og bjuggu lengst af. Hvort sem það var í næturgistingu hjá Ninnu dóttur þeirra, kaffispjall í yndislega borðkróknum eða í einni af þeim fjölmörgu veislum sem þau hjónin héldu af alls kyns tilefni, alltaf var gott að koma í Hjallalandið. Heimili þeirra bar vott um að þar bjuggu miklir fag- urkerar og listunnendur. Þegar þau hjónin ákváðu að minnka við sig fyrir um áratug og fluttu í Logafoldina, tókst þeim að skapa sama yfirbragð í nýja húsinu og hafði verið svo einkennandi fyrir gamla heimilið. Mér var falið að hanna nýjar innréttingar í nýja húsið og var það afskaplega skemmtilegt og gefandi verkefni. Það er með þakklæti í huga, sem ég kveð núna föðurbróður minn, fyrir að hafa átt hann að í lífi mínu. Þakkirnar ná einnig til Solveigar, eftirlifandi eiginkonu hans, því varla er hægt að nefna Stúlla frænda án þess að hún sé nefnd í sömu andránni, svo ná- tengd voru þau hjónin. Ég og fjölskylda mín færum Solveigu, Ninnu, Óskari og Rósu okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, sem og fjölskyldunni allri. Snjólaug G. Jóhannesdóttir. Sturla Eiríksson var einn af mínum elstu og albestu vinum og okkur hjónunum finnst afar sárt að geta ekki fylgt honum síðasta spölinn og vottað þannig virðingu okkar og þakklæti fyrir árin sem við áttum hvað nánust samskipti. Það var fljótlega eftir ég kom til Íslands 1965, að við Sturla, frændi minn, kynntumst og vin- átta á milli okkar og eiginkvenna okkar, Sólveigar og Svölu, varð sterk og einlæg. Margar kvöld- stundir áttum við á heimili þeirra, allt var þar rætt milli him- ins og jarðar, gleðin var í háveg- um höfð, mikið hlegið og gest- risnin þeim báðum í blóð borin. Tónlistin var ríkur þáttur í lífi þeirra og ógleymanlegar eru stundirnar, sem við áttum kring- um Sólveigu við píanóið, syngj- andi allt frá íslenskum ættjarð- arlögum til þýskra slagara – og svo var dansað. Í mörg ár vorum við saman með skrifstofu, hann að reka sitt fyrirtæki og ég mitt. Alltaf var gott að mæta í vinnuna og þegar upp komu vandamál voru þau jafnóðum leyst. Einhverju sinni lofuðum við hvor öðrum í hálf- kæringi að skrifa minningargrein hvor um annan. Nú er ljóst að Sturla sleppur. Sturla var vinsæll maður. Góð- ur eiginmaður, góður faðir barnanna sinna fjögurra, góður vinur og góður stjórnandi, sem átti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Undanfarin ár hafa verið Sól- veigu og börnunum erfið vegna veikinda hans, en nú fær hann hvíld og hann á von á góðum mót- tökum hjá Snjólaugu, dótturinni, sem dó svo ung. Elsku Sólveig, Ingunn, Rósa og Óskar, tengdabörn og barna- börn, minningin um góðan dreng mun lifa í hjörtum okkar. Við Svala sendum ykkur öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur. David Pitt. Sturla, fyrrverandi tengdafað- ir minn, hefur nú kvatt þennan heim. Okkur var alltaf vel til vina og ég er svo þakklátur fyrir að fá að kveðja hann fyrir stuttu síðan. Sturla var kærleiksríkur og góð- ur maður. Hann var bráðskarp- ur, með frábæran húmor, sem var bæði lúmskur og beittur en þó aldrei meiðandi. Meira að segja þegar ég hitti hann síðast og fá andartök voru eftir hafði hann tíma fyrir hlátur. Hann kallaði mig iðulega sauð og því var ég kallaður Siggi sauður og oft yfirsauður. Ég man að mér fannst þetta skrítið fyrst en fljót- lega fór mér að þykja vænt um viðurnefnið. Þetta var hluti af húmor hans og við höfðum gam- an af að stríða hvor öðrum, en virðingin og væntumþykjan skein alltaf í gegn. Á mínu heimili er vinsælt að horfa á þá teikni- myndafélaga Tomma og Jenna. Ég hef ósjaldan hugsað til þeirra stunda þegar Sturla sat fyrir framan sjónvarpið og grét úr hlátri þegar músin lék sér að kettinum, og fór t.d. með sláttu- vél yfir hann eða plataði hann með einhverjum fáránlegum hætti. Sturla var heill og sannur og vildi alltaf öllum vel. Í hinni helgu bók er viskan lofuð og hún er m.a. útskýrð sem blanda af þekk- ingu og innsæi. Sturla bjó sann- arlega yfir visku og ég lærði mik- ið af honum. Sturla átti góða og ástríka fjöl- skyldu sem hann lifði fyrir og var lánsamur að eiga að. Ég votta Solveigu, Rósu, Óskari, Ninnu, Þorgerði, Birni, barnabörnum og fjölskyldu og vinum innilega samúð á þessari sorgarstundu. Megi Drottinn gefa ykkur styrk og blessa. Sigurður Ragnarsson. Ótal minningabrot flugu í gegnum hugann þegar ég fékk fréttina af andláti Sturlu Eiríks- sonar. Kynni okkar hófust í gegnum störf okkar. Báðir stunduðum við viðskipti með sambærilegar vörur. Hann var framkvæmda- stjóri heildverslunar Sigurðar Egilssonar og Egils Guttorms- sonar en ég var hjá Pennanum. Þessi fyrirtæki voru öll í mikilli samkeppni sín á milli en góður kunningsskapur milli stjórnenda þeirra þrátt fyrir það. Alltaf var gaman að hitta Sturlu. Stutt í húmorinn en hann var líka skap- maður sem stóð fast á sínu. Við sóttum sömu vörusýninguna í Frankfurt árum saman og þar gafst tækifæri að loknum starfs- degi til að kynnast betur. Sturla stofnaði fyrirtækið Fjölval og einnig bókaútgáfuna Fjölva og Penninn hóf að selja bækur. Sturla Eiríksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.