Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía Walthers
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
Skeifunni 17
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
„...virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta. Allt sem þau
sögðu stóðst. Auðvelt að mæla með Remax Alpha!“
Áslaug og Benni
finnst sérlega áhugaverð stefna. Ég
hafði gert verkefni um þessa stefnu í
háskólanum þegar ég var að læra
mannfræði, en í henni er lögð áhersla
á að heimilismenn haldi sjálfræði
sínu, aðstandendur eru ávallt vel-
komnir og hvattir til að taka þátt í
daglegu lífi heimilismanna, dýr eru
velkomin og reynt að fá börn sem
oftast í heimsókn og fleira í þeim
dúr,“ segir Bryndís sem frétti af
Eden-hjúkrunarheimili fyrir eldri
borgara í Suður-Afríku og skellti sér
þangað í heimsókn fyrir einu og
hálfu ári, til að kynna sér hvernig
þau spiluðu úr sínum aðstæðum, sem
eru jú talsvert ólíkar því sem við eig-
um að venjast á Íslandi.
Eina kona gerði gæfumun
„Ég upplifði að skortur á fjár-
magni og tíma hamlaði mjög innleið-
ingu Eden-stefnunar hjá okkur í
Mörk, það vantar alltaf eitthvað til að
bæta líf heimilisfólksins og líka til að
bæta aðstæður starfsfólksins. Ein-
mitt þess vegna fannst mér svo
áhugavert að í Suður-Afríku væri
rekið Eden-heimili þar sem fjár-
magn til starfsins er ekki í líkingu við
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Heimilisfólkið hér í Mörkhefur fylgst vel með þeg-ar ég hef verið að segjasögur og fréttir af Eden-
heimilinu í Suður-Afríku, þangað sem
ég fór í heimsókn. Þegar ég sagði að
þau væru að reyna að safna fyrir
þvottavél, þá stakk ein heimiliskonan
hér upp á því að við tækjum þátt í því
með því að halda fjáröflunarkaffi. Við
gripum þetta á lofti og síðan hefur allt
verið á fullu í undirbúningi. Við höf-
um gert þetta saman starfsfólkið og
heimilisfólkið, þau biðja börnin sín að
baka, heimilin taka þátt og vinnuhóp-
ur í iðjuþjálfuninni hefur bakað stans-
laust undanfarna daga,“ segir Bryn-
dís Hreiðarsdóttir, öldrunar-
fræðinemi og starfsmaður á
hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykja-
vík, en þar verður fjáröflunarkaffið
nú á sunnudag.
Dýr og börn velkomin
„Ég fór að vinna hér í Mörk fyrir
tveimur árum af því hér er unnið eftir
Eden-hugmyndafræðinni, sem mér
Svo þau þurfi ekki að
handþvo allan þvott
Bryndís Hreiðarsdóttir lætur verkin tala, hún ætlar
ásamt starfsfólki og heimilisfólki á hjúkrunarheimil-
inu Mörk að blása til fjáröflunarkaffis til að safna fyr-
ir þvottavél fyrir vini sína á hjúkrunarheimili í Suð-
ur-Afríku, þangað sem hún fór í heimsókn.
Undirbúningur í Mörk Haraldur og Hreinn Markar setja hafraklatta í
poka og merkja fyrir fjáröflunarkaffið. Með þeim er Kristín iðjuþjálfi.
Allir hjálpast að Það er mikið að þvo öll föt og lín á 60 manna heimili.
Hér er heimilisfólk St. Antonine að létta undir með því að strauja og pressa.
Göngugarpurinn og leiðsögumaður-
inn Gunnlaugur B. Ólafsson stendur
í kvöld fyrir fjórðu göngunni á þess-
um vetri í leit að norðurljósum, út-
sýni yfir höfuðborgina, tunglsljósi
og stjörnubjörtum himni.
Hist verður á bílastæðinu fyrir
framan Esjustofu við Esjurætur
klukkan átta í kvöld. Farin verður
hringleið upp úr skóginum við Mó-
gilsá, gengið undir hamrabelti við
Rauðhól og til baka hefðbundna leið
í Esjunni.
Þessi hringur tekur um þrjá tíma
á eðlilegum gönguhraða en þar sem
verið er að taka myndir þá er gert
ráð fyrir að fara frekar rólega yfir.
Þeir sem ætla að slást í hópinn
þurfa að vera vel klæddir því það
verður kalt, og þeir sem hafa brodda
geta haft þá meðferðis. Æskilegt er
að hafa þrífót og myndavélar sem
henta. Vert er að taka fram að allir
eru velkomnir að rölta með þennan
hring og njóta kvöldsins og útiver-
unnar, þó þeir ætli ekki að taka
myndir.
Facebook: Ljósamyndatökur - Esja
Veðurspáin lofar góðu
Myndatökuganga í leit að
norðurljósum og útsýni í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fegurð Norðurljós hafa löngum heillað og eru frábært myndefni.
Afríska fjáröflunarkaffið verður
nk. sunnudag, 1. febrúar, milli
kl. 14 og 16 í hjúkrunarheim-
ilinu Mörkinni, Suðurlands-
braut 66. Allskonar góðgæti
verður á boðstólum, engifer-
kökur, hafraklattar ofl. Öllu
verður rennt niður með afrísku
kaffi í boði Te og kaffi.
Þetta verður hlaðborð með
afrískri stemningu þar sem
afrísk tónlist mun hljóma og
afródansari mun kenna nokkur
spor.
Inn á hlaðaboðrið kostar
2.000 kr. fyrir fullorðna, 1.000
kr. fyrir krakka og 5.000 kr. ef
fjölskyldan kemur saman.
Nú er lag að fara saman!
Afríska fjár-
öflunarkaffið
KÖKUR, KAFFI, AFRÓDANS
Kátur Einn af heimilismönnum á
hjúkrunarheimilinu í Suður-Afríku.