Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirhuguð byggð á svonefndum Kirkju-
sandsreit í Reykjavík var kynnt í gær þegar
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
undirrituðu samning um uppbyggingu, skipu-
lag og skiptingu reitsins. Þar eiga að rísa 300
íbúðir.
Dagur segir aðspurður erfitt að tímasetja
hvenær framkvæmdum
ljúki. Áhersla verði lögð á
að uppbyggingin gangi
hratt fyrir sig. „Formlegt
skipulagsferli er að hefjast.
Því lýkur vonandi um mitt
ár. Þá er eftir hönnun.
Þannig að við bindum vonir
við að framkvæmdir hefjist
næsta vetur. Við munum
gera það sem í okkar valdi
stendur til að tryggja að
uppbyggingin gangi fljótt
og vel.“
Spurður hvað borgin hyggist setja margar
íbúðir á leigumarkað segir Dagur að það hafi
ekki verið ákveðið. Borgin hefur ráðstöfunar-
rétt yfir 180 af 300 íbúðum á reitnum og segir
Dagur að „meirihluti þeirra verði nýttur til að
efla leigumarkað og auka fjölbreytni á hús-
næðismarkaði“.
Um er að ræða heildarskipulag fyrir lóð-
irnar Kirkjusand 2, þar sem höfuðstöðvar Ís-
landsbanka eru nú og Borgartún 41, á svo-
kallaðri Strætólóð. Nýtt deiliskipulag fyrir
reitinn er í vinnslu og verður það kynnt hags-
munaaðilum og almenningi á næstunni, sam-
hliða formlegu auglýsingarferli.
Reitnum verður skipt upp í nokkrar lóðir
og er byggingarmagn áætlað 75-85 þúsund
fermetrar. Verður hér til einföldunar vísað til
einnar lóðar.
Íslandsbanki stækkar með viðbyggingu
Um helmingur byggingarmagns verður at-
vinnuhúsnæði, skrifstofur og þjónusta. Allar
núverandi byggingar á reitnum, fyrir utan
aðalskrifstofuhúsnæði Íslandsbanka, munu
víkja til að rýma fyrir uppbyggingu. Hyggst
Íslandsbanki sameina alla starfsemina í nú-
verandi skrifstofuhúsnæði og 7.000 fermetra
viðbyggingu. Áætlað er að framkvæmdir við
viðbyggingu hefjist í árslok og taki um tvö ár.
Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ASK arki-
tektum, segir að í aðalskipulagi Reykjavíkur
sé gert ráð fyrir að á lóðinni rísi blönduð
byggð með áherslu á fjármálaþjónustu. Páll
tekur fram að um frumdrög sé að ræða og að
á næstunni verði unnið deiliskipulag fyrir
svæðið.
„Í aðalskipulaginu segir að byggðin skuli
vera 6-10 hæðir. Við höfum leitast við að hafa
byggðina heldur lægri. Hún verður þó hærri
á einum stað og yrði það því ákveðið kenni-
leiti,“ segir Páll um frumdrög hverfisins.
Með því vísar hann til þess að í drögunum
er gert ráð fyrir 10 hæða skrifstofuturni vest-
ast á lóðinni. Á þeim reit er gert ráð fyrir
þjónustu og á það sama auðvitað við um Ís-
landsbankahúsið og fyrirhugaða viðbyggingu
við bankann. Þá verður þjónusta á jarðhæð á
hluta lóðar.
„Það er lögð áhersla á að hafa lágreista
byggð næst íbúabyggðinni við Laugarnesveg,
tveggja til fjögurra hæða, og eingöngu íbúð-
ir,“ segir Páll og bendir á að bílakjallarar
verði undir nýjum húsum á lóðinni, ef undan
er skilið íbúðarhúsnæði austast á lóðinni.
Kemur til greina að þar verði bílastæði
ofanjarðar. Miðsvæðis á lóðinni verður bíla-
kjallari undir torgi sem verður fyrir alla íbúa
og starfsemi á svæðinu.
Nýtt hverfi rís á Kirkjusandi
Íslandsbanki og Reykjavíkurborg undirrita samkomulag um uppbyggingu á Kirkjusandsreit
Uppbyggingin hefst í lok árs Gert ráð fyrir 300 íbúðum og skrifstofum Hönnun er á frumstigi
Ný byggð við sjóinn Byggðin verður undir 6 hæðum með þeirri undantekningu að vestast á lóðinni eru hugmyndir um 10 hæða skrifstofuturn.
Tölvuteikningar/ASK arkitektar
Morgunblaðið/Ómar
Kirkjusandsreitur Á lóðinni eru Kirkjusandur 2, þar sem höfuðstöðvar Íslandsbanka eru nú og Borgartún 41, eða svokölluð Strætólóð.
Páll
Gunnlaugsson
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Hinn 11. apríl 2007 sagði Morgun-
blaðið frá því að sænska arkitekta-
stofan Arkitekthuset Monarken í
Stokkhólmi hefði orðið hlutskörp-
ust í samkeppni um tillögu að nýj-
um höfuðstöðvum fyrir Glitni og
mótun tillagna að nýju deiliskipu-
lagi fyrir lóðirnar Kirkjusand 2 og
Borgartún 41.
Daginn eftir sagði í Morgun-
blaðinu að ætla mætti að fjögur þús-
und starfsmenn myndu fá vinnuað-
stöðu á svæðinu. Að auki gætu um
100 manns búið á þeim hluta svæð-
isins sem er næst Laugarnesvegi.
Kynna átti úrslit í samkeppni um
nýjar höfuðstöðvar Landsbankans
við Geirsgötu í Reykjavík um miðj-
an október 2008. Líkt og hjá Glitni
voru þau áform lögð til hliðar.
Tölvuteikning/Arkitekthuset Monarken
Stórbrotin áform Allt að fjögur þúsund manns áttu að starfa á svæðinu.
Nýjar höfuðstöðvar Glitnis
áttu að rísa á Kirkjusandi
Tölvuteikning/Arkitekthuset Monarken
Sænsk hönnun Þessi byggð hefði
sett svip á strandlengjuna.