Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 19
jökli á síðustu 20-30 árum og sem
dæmi má nefna að Vatnajökull
minnkaði um samtals 83 ferkílómetra
á árabilinu 2000-2006 og ný ókortlögð
svæði komu í ljós. Stærð þess svæðis
er svipuð og allt höfuðborgarsvæðið
eða flatarmál Holuhrauns eins og það
er núna.
Annað dæmi sem má nefna er við
sunnanverðan Mýrdalsjökul, en þar
hafa orðið til 150 metra djúpir dalir
sem til skamms tíma voru huldir
tungum skriðjökla. Jöklarnir hafa þó
ekki bara dregist saman heldur hafa
þeir lækkað mikið því við sjáum hæð-
artölur með miklum breytingum frá
eldri gögnum.“
Hæð fjallstoppa gæti breyst
Í Kvarðanum er rifjað upp að fyrir
nokkrum árum lækkaði Hvannadals-
hnjúkur um níu metra með nýrri
mælingu og er nú mældur 2110 metr-
ar. Tvennt kom þar til, annars vegar
hafði snjóþekjan á hnjúknum lækkað,
og einnig var stuðst við nákvæmari
mælingu en áður.
Ekki hefur Magnús á hraðbergi
upplýsingar um breytingar á fleiri
einstaka toppum, en segir efalaust að
hæðir margra þeirra myndu breytast
með nýrri, nákvæmri mælingu. Í ein-
hverjum tilvikum sé enn byggt á
landmælingum danska herforingja-
ráðsins frá 1900-1944.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Landmælingar og nákvæmni
hæðargagna koma víða við sögu,
enda er allt landið undir í orðsins
fyllstu merkingu. Magnús for-
stjóri nefnir dæmi: „Hæðargögn
eru grundvöllur undir mjög
margt, til dæmis nauðsynlegar
upplýsingar um vatnafar eða
rennsli í ám og lækjum og til að
meta hættu á flóðum og skriðu-
föllum.
Við Íslendingar þurfum líka að
taka okkur á og hafa mun betri
og nákvæmari upplýsingar um
eignarmörk á landi þar sem þarf
að byggja á nákvæmum gögnum.
Þar er víða byggt á gömlum
heimildum, jafnvel gömlum
landamerkjabréfum frá því um
1880.“
Vatnafar og
eignarmörk
ÞURFUM AÐ TAKA OKKUR Á
keyra þetta meira á reynslunni en
peningum.“
Sigmundur segist telja að pláss
sé fyrir Hringbraut á sjónvarps-
markaðnum enda séu þau öðruvísi
en það sem fyrir er. „Við teljum
vera pláss fyrir víðsýna og upplýs-
andi talsmálsstöð, studda af fjöl-
þættum vef, sem er opin fyrir öllum
möguleikum Íslands, heimilum og
fyrirtækjum til framdráttar, með
reynslumiklu fagfólki við stjórnvöl-
inn.
Við finnum mikla velvild innan úr
viðskiptalífinu og stjórnmálunum,
svo og úr fjölmiðlum. Fólk hefur trú
á hugmyndinni. Stöðin verður ekki í
samkeppni við eina stöð fremur en
aðra og raunar viljum við öðru
fremur vinna með öðrum fjölmiðlum
til að styrkja fjölmiðlun og lýðræði í
landinu.“
ÍNN orðin átta ára
Ingvi Hrafn segir að ÍNN sé ekki
mikið að velta fyrir sér nýjum
stöðvum. Stöðin sé nýbúin að semja
við Skessuhorn og fótbolta.net um
þætti. „Við verðum átta ára í mars.
Við erum keikir og erum alltaf að
bjóða upp á fjölbreyttari dagskrá.“
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Ingvi Hrafn
Jónsson
Golfklúbbur GKG undirritaði í gær
samning við sveitarfélögin Garðabæ
og Kópavog um byggingu nýrrar
íþróttamiðstöðvar GKG. Nýja húsið
verður norðan við Vífilsstaði í
Garðabæ. Það verður um 1.400 fer-
metrar að stærð og skiptist í al-
menna félagsaðstöðu og æfingaað-
stöðu. Æfingaaðstaðan verður m.a.
búin fullkomnum sveiflugreining-
artækjum, golfhermum auk pútt- og
vippaðstöðu.
Agnar Már Jónsson, fram-
kvæmdastjóri GKG, sagði löngu
orðið tímabært að ráðast í fram-
kvæmdirnar. Hann sagði að golf-
klúbburinn þjónaði um 1.500 al-
mennum félagsmönnum og auk þess
sæktu um 900 börn og unglingar
námskeið og reglulegar æfingar hjá
félaginu.
GKG hefur verið til húsa í göml-
um söluskála sem fluttur var á
svæði klúbbsins fyrir 16 árum. Sem
kunnugt er nær golfvöllurinn frá
Garðabæ og yfir í Kópavog.
Agnar Már sagði að nýja húsið
mundi valda byltingu í starfi klúbbs-
ins. Áformað er að hefja fram-
kvæmdir í febrúar næstkomandi og
er áætlað að nýja húsið verði vígt í
mars á næsta ári. gudni@mbl.is
Bygging íþróttamiðstöðvar
GKG hefst í febrúar
Ljósmynd/Agnar Már Jónsson
Undirritun Guðmundur Oddsson, formaður GKG, með bæjarstjórunum.
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Verkfærin fyrir skólana og
handverksfólkið fást hjá okkur
Slípivél osm 100,
kr. 41.800
Auðveldar þér verkin,
pússar þar sem þú átt
erfitt með að ná til.
Tenging fyrir ryksugu -
heilnæmara loft.
6 mismunandi kefli
fylgja með.
Bandsög Basa 1,
kr. 53.700
Sögunarhæð 100 mm
Sögunarbreidd 195 mm
Þykktarhefill/afréttari
WoodStar pt 85,
kr. 69.800
Afréttari 737 x 210 mm
Þykktarhefill
120 x 204 mm
Tifsög deco-flex,
kr. 39.700
Tekur bæði blöð með
takka og án.
Barki fyrir bora
o.þ.h. fylgir.
Fræsari hf 50
kr. 59.300
Borð 610x360 mm
Stiglaus hraði
8000-24000 sn/mín
1500 W
Bandsög Basa 3
kr. 191.900
Sögunarhæð 205 mm
Sögunarbreidd 306 mm
Slípivél BD7500
kr. 22.900
25 mm belti
125 mm skífa
Rennibekkur dm 460t
kr. 73.400
Bil milli odda 457 mm
hæð yfir stöngum 152 mm
Slípivél bts 800
kr. 44. 300
100 mm belti
150 mm skífa