Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Nýherji skilaði 259 milljóna króna
hagnaði á árinu 2014 í samanburði
við 1.608 milljóna tap árið 2013.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði og af-
skriftir, EBITDA, nam 827 millj-
ónum og fór milli ára úr 2,8% af
veltu í 7,2% . Þá jókst vöru- og þjón-
ustusala fyrirtækisins um 632 millj-
ónir milli ára og var 11,5 millj-
arðar. Framlegð félagsins var 3.012
milljónir og hækkaði úr 22,2% í
26,0% milli ára. Í tilkynningu til
Kauphallar segir að öll félög sam-
stæðunnar hafi skilað jákvæðri
rekstrarafkomu.
Arðsemi eiginfjár á árinu 2014
var 31% en Finnur Oddsson, for-
stjóri Nýherja, segir þó að eigið fé
fyrirtækisins sé enn of lágt. „Á und-
anförnum árum hefur rekstur Ný-
herja markast af miklum sveiflum
sem torvelda samanburð milli ára.
Engu að síður er ljóst að síðasta
rekstrarár er eitt það besta í ríflega
20 ára sögu félagsins.“ Þá segir
hann einnig að umtalsverð vinna sé
eftir til að treysta afkomu og bæta
eiginfjárstöðu félagsins.
Fjórði ársfjórðungur jákvæður
Síðustu þrír mánuðir rekstrarárs-
ins 2014 voru félaginu hagfelldir og
var hagnaður þess tímabils 110
milljónir eða 42% af heildarhagnaði
ársins. Þá jókst sala fyrirtækisins á
fjórða ársfjórðungi um 263 millj-
ónir milli ára og var 3.315 milljónir.
EBITDA fyrir tímabilið nam 7,3%
af veltu.
Nýherji snýr tapi í hagnað
Morgunblaðið/Kristinn
Uppgjör Finnur Oddsson segir að
bæta þurfi eiginfjárstöðu Nýherja.
Alls var fluttur út makríll fyrir 21,6
milljarða króna á fyrstu ellefu mán-
uðum síðasta árs. Það er 1,9 millj-
örðum meira en á sama tíma árið
2013 þegar flutt var út fyrir 19,7
milljarða. Meðalverð hefur lækkað
um 5% á milli ára sem er minna en
búast mátti við þegar horft er til
efnahagsástandsins í Rússlandi, en
þar er stærsti markaður Íslands
fyrir makríl. Hlutdeild Rússa í
heildarmagni útflutningsins hefur
minnkað milli ára og er nú 31% en
var 38% á árinu 2013. Útflutt magn
af makríl hefur einnig aukist milli
ára og var um 119 þúsund tonn á
síðasta ári, sem er 15% aukning frá
árinu 2013.
Fiskur Meira magn af makríl selt
milli ára eða um 15% aukning.
Makríll fyrir
22 milljarða
Á fjórða árs-
fjórðungi 2014
voru að með-
altali 7.700
manns án
vinnu og í at-
vinnuleit eða
4,1% vinnuafls-
ins. Atvinnu-
leysi mældist
3,9% hjá kon-
um og 4,3% hjá körlum. Sam-
anburður fjórða ársfjórðungs 2014
við sama ársfjórðung 2013 sýnir að
atvinnulausum fækkaði um 700 og
hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentu-
stig.
Af þeim sem voru atvinnulausir á
fjórða ársfjórðungi 2014 voru að
jafnaði 4.100 manns búnir að vera
atvinnulausir í 2 mánuði eða skem-
ur eða 2,2% vinnuaflsins. Sami
fjöldi og hlutfall hafði verið at-
vinnulaus í 2 mánuði eða skemur á
fjórða ársfjórðungi 2013. Lang-
tímaatvinnulausum fækkar einnig
verulega eða úr 1,1% í 0,5%.
Atvinnulaus-
um fækkar
Reiðufé í umferð í lok síðasta árs
nam 44 milljörðum króna og jókst
um 2,4 milljarða á síðasta ári eða
um 5,8%. Þetta kemur fram í nýj-
um hagtölum á vef Seðlabanka Ís-
lands.
Nýja 10 þúsund króna seðlinum
sem settur var í umferð í október
2013 hefur verið vel tekið en í árs-
lok nam verðmæti slíkra seðla í um-
ferð alls 13,2 milljörðum króna.
Hlutdeild 10 þúsund króna seðilsins
var því 28% af heildarverðmæti
seðla í umferð í árslok.
Vinsælir
tíuþúsund-
kallar
Morgunblaðið/Kristinn
Tíuþúsund Þriðjungur reiðufjár.
Rafmagnað
samband við
áskrifendur
Þann 20. febrúar kemst
einn heppinn áskrifandi
Morgunblaðsins í samband
við Volkswagen e-Golf.
Vinnur þú straumabílinn?