Morgunblaðið - 30.01.2015, Síða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Maríu Björnsdóttur, í Tryggvagötu,
og skúraði á Rigshospitalet í Kaup-
mannahöfn.
Sigríður innritaðist í guðfræði við
HÍ haustið 1996, en varð svo veik á
fyrstu meðgöngunni að hún þurfti að
taka sér ársleyfi. Mætti síðan aftur
haustið 1997 með frumburðinn, mán-
aðar gamla stúlku, og útskrifaðist
með embættispróf í guðfræði 2003.
Sama ár giftu þau sig, hún og eigin-
maðurinn.
Sigríður var í nokkur ár æskulýðs-
fulltrúi Fella- og Hólakirkju, var síð-
an verkefnisstjóri á Biskupsstofu í
verkefni sem heitir Lífsleikni Þjóð-
kirkjunnar, og síðan framkvæmda-
stjóri Æskulýðssambands Þjóð-
kirkjunnar.
Sigríður vígðist sem prestur í
Egilsstaðaprestakalli 1.9. 2013 og er
nú prestur í víðfeðmasta prestakalli
landsins. Hún býr á Seyðisfirði og
hefur þar skyldum að gegna sem
prestur: „Seyðfirðingar eru frábær-
ir. Hér er gott samfélag, mikið um
að vera og hin fallega kirkja er hér
mikið kennileiti og stolt bæjarbúa.
Við erum þrjú sem þjónum í presta-
kallinu. Með mér þjóna Þorgeir Ara-
son sóknarprestur og Ólöf Margrét
Snorradóttir.
Það voru ótrúlega lítil viðbrigði
fyrir okkur hjónin að flytja austur
Eiginmaðurinn hafði aldrei búið
annars staðar en í Reykjavík og ég
er miðborgarbarn í mér. En við
kunnum mjög vel við okkur og hér er
gott að vera með börn. Öll börnin
eru svo frjáls hér, örugg og ham-
ingjusöm, eins og börn eiga að vera.
Það eina sem við söknum er fjöl-
skylda og vinir í Reykjavík. Við er-
um mikið fjölskyldufólk og njótum
þess að vera með fjölskyldunni.
Hjá mínu fólki gengur allt út á að
elda og borða góðan mat. Við hjónin
fórum í fyrsta sinn á ævinni á þorra-
blót í fyrra, vorum strax tekin í
þessa mikilvægu þorrablótsnefnd,
höfum verið á fullu í þorrablótsvinnu
í janúar en þorrablót Seyðfirðinga
var haldið síðustu helgi. Það er alveg
ný upplifun að taka þátt í svona
verkefni, afar skemmtilegt og eykur
samheldni.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Ingvi Örn
Þorsteinsson, f. 1.8. 1976, hár-
greiðslumaður og nú sjálfstætt
starfandi digital-hönnuður. For-
eldrar hans: Elfa Þórðardóttir,
fulltrúi hjá Ríkisskattstjóra, og
Thorsteinn LaVoque, búsettur í
Flórída.
Börn Sigríðar og Ingva Arnar eru
Ísold Gná Ingvadóttir, f. 3.8. 1997,
nemi í MH og nú skiptinemi í ME til
að vera hjá fjölskyldunni; Mikael
Nói Ingvason, f. 13.1. 2002; Úlfur Elí
Ingvason, f. 5.11. 2007, og Tryggvi
Hrafn Ingvason, f. 28.1. 2012.
Systkini Sigríðar: Guðrún Ásta
Tryggvadóttir, f. 13.5. 1980, kennari
í Hagaskóla, býr í Reykjavík; Katrín
Sif Michaelsdóttir, f. 28.9. 1971,
byggingafræðingur, býr í Reykja-
vík; Höskuldur Tryggvason, f. 17.3.
1971, viðskiptafræðingur í Reykja-
vík og Berlín; Edda Tryggvadóttir,
f. 6.1. 1967, búsett í Reykjanesbæ;
Haukur Tryggvason, f. 19.3 1962,
smiður í Reykjanesbæ; Ari Tryggva-
son, f. 29.1. 1960, búsettur í Mos-
fellsbæ, og Kristín Tryggvadóttir, f.
9.12. 1958, húsfreyja á Akureyri.
Foreldrar Sigríðar: Elín Margrét
Tryggvadóttir, f. 26.9. 1942, verka-
kona í Reykjavík, og Tryggvi Krist-
vinsson, f. 20.9. 1929, d. 2.1. 1982,
yfirlögregluþjónn á Húsavík.
Úr frændgarði Sigríðar Rúnar Tryggvadóttur
Sigríður Rún
Tryggvadóttir
Þuríður Halldórsdóttir
húsfr. í Ásgarði í Hvammssveit
Sveinn Klemensson
b. í Ásgarði
Tryggvi Sveinsson
b.á Ytri-Skógum í Kolbeinsstaðahr.
Guðrún Þórðardóttir
húsfr. í Litlu Hlíð í Barðst.s. og í
Syðri-Hraundal á Mýrum
Elín M. Tryggvadóttir
verkak. í Rvík
Jónfríður Jónsdóttir
húsfr. á Hofsstöðum
Þórður Jónsson
b. á Hofsstöðum í Gufudalssveit
Sigurlaug Helga Sveinsdóttir
húsfr. í Enniskoti
Jóhannes Bjarnason
b. í Enniskoti
Sigríður Jóhannesdóttir
húsfr. í Enniskoti og ráðskona hjá
Kristófer Péturssyni silfursmið á
Kúludalsá
Kristvin Sveinsson
b. í Enniskoti í V-Hún.
S. Tryggvi Kristvinsson
yfirlögregluþjónn á
Húsavík
Sigurrós Sæmundsdóttir
húsfr. í Stóruhlíð
Sveinn Einarsson
húsm. í Staðarfellssókn, af Ormsætt
Afmælisbarnið Sigríður Rún.
Björg fæddist í Vesturhóps-hólum 30.1. 1874, dóttir Þor-láks S. Þorlákssonar, hrepp-
stjóra þar, og Margrétar Jónsdóttur
húsfreyju.
Bróðir Bjargar var Jón Þorláks-
son, landsverkfræðingur, forsætis-
ráðherra og borgarstjóri.
Björg lauk námi frá Kvennaskóla
Húnvetninga, stundaði nám við
kennslukonuskóla fröken Natalie
Zahle í Kaupmannahöfn og lauk
kennaraprófi 1900, sótti um leyfi til
að fá að taka stúdentspróf við Lærða
skólann en var hafnað, enda skólinn
ekki ætlaður stúlkum. Hún lauk því
stúdentsprófi í Höfn 1901 og
cand.phil.-prófi við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1902.
Björg giftist Sigfúsi Blöndal bóka-
verði 1903 og vann ötullega með
honum í tæp tuttugu ár að Íslensk-
dönsku orðabók þeirra þó það stór-
virki sé einungis við hann kennt.
Hún ritaði fjölda greina, m.a. um
kvenréttindi og þýddi verk þekktra
höfunda Norðurlanda, s.s.. Selmu
Lagerlöf, sem var vinkona hennar.
Björg og Sigfús skildu 1923. Hún
fékk styrk úr sjóði Hannesar Árna-
sonar, hóf nám við Sorbonne-
háskóla 1921, og lauk doktorsritgerð
1926, fyrst norænna kvenna: Le
Fondement Physiologique des In-
stincts: Des Systemes Nutritif,
Neuromusculaire et Genital. Rit-
gerðin fjallar um lífeðlisfræðilegan
grunn þriggja hvata, samþróun lík-
ama og sálar og er heimspekilegt
framlag til smættarefnishyggju.
Björg fékk hvorki embætti við
Háskóla Íslands né Kaupmanna-
hafnarháskóla, skorti fastar tekjur,
átti við alvarleg veikindi að stríða og
dvaldi á hæli í Frakklandi árið 1930.
Hún dvaldi í Kaupmannahöfn næstu
árin en heimsótti Ísland nokkrum
sinnum, hélt áfram fræðistörfum,
birti greinar og hélt fyrirlestra.
Sigríður Dúna Kristinsdóttir
skrifaði ævisögu þessarar merku
fræðikonu, árið 2001, og gaf út rit
um verk hennar ári síðar.
Félag íslenskra háskólakvenna lét
steypa brjóstmynd Ásmundar
Sveinssonar af Björgu sem stendur
við Odda við Háskóla Íslands.
Björg lést 23.2. 1934.
Merkir Íslendingar
Björg C.
Þorláksson
80 ára
Árný Ólafsdóttir
Jón Viðar Þórmarsson
Oddný Þorkelsdóttir
75 ára
Agnar J. Levy
Ásta Einarsdóttir
Gunnlaugur Geirsson
Rannveig Jóhannesdóttir
Sigríður Tómasdóttir
70 ára
Dagmar Kaldal
Lára Halldórsdóttir
Sigríður Jóhanna
Sigfúsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Steindór Ingimundarson
60 ára
Edda Margrét Jensdóttir
Guðlaug Guðmundsdóttir
Halldór Ingólfur
Hjálmarsson
Haukur Gunnlaugsson
Herjólfur Hafþór Jónsson
Janusz Stanislaw Zynda
Kári Ísaksson
Kolbrún Jarlsdóttir
Pálmi Vilhjálmsson
Sigríður I. Baldursdóttir
Steina Kristín
Kristjónsdóttir
50 ára
Aðalsteinn Hákonarson
Anna Margrét Bragadóttir
Birgir Engilbertsson
Gunnlaugur Jóhannesson
Gyða Árnadóttir
Hafsteinn H. Hafsteinsson
Ingibjörg Sveinsdóttir
Jack Hrafnkell Daníelsson
Kurt Josef Kohler
Sigrún Heiðarsdóttir
Sigurður Bjarki
Guðbjartsson
Sigurður B. Sigurðsson
Sólborg Sigurðardóttir
Valdimar Tómas
Þorvaldsson
40 ára
Alfreð Liljar Guðmundsson
Árni Freyr Jóhannesson
Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir
Brynjólfur Jósteinsson
Dagbjartur Hilmarsson
Erla Berglind Antonsdóttir
Guðfinna Sif Helgadóttir
Heiða Björg Jónsdóttir
Ivo Christer Corda
Kjartan Þór
Kjartansson
Óskar Örn Kjerúlf
Þóroddsson
30 ára
Andrea Sif Jónsdóttir
Hauth
Elva Rut Ólafsdóttir
Erlingur Fannar Jónsson
Ewa Kieczen
Hafþór Már Hjartarson
Jennylyn Monilar
Asmundsson
Kevin Thanasak Sonklin
Mai Linnéa Julia Maria
Maansson
Phatharawadee Saithong
Sebastian Mlynarczyk
Tomas Jaudegis
Til hamingju með daginn
30 ára Marinó ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lærði
bílamálun og er deildar-
stjóri hjá Rúmfatalagern-
um.
Maki: Tinna Berg Rúnars-
dóttir, f. 1984, leikskóla-
kennari.
Uppeldissonur: Gylfi Val-
ur, f. 2008.
Foreldrar: Guðmundur
Marinósson, f. 1955,
starfsm. Bílanausts, og
Guðbjörg Anna Magn-
úsdóttir, f. 1957, húsfr.
Marinó M.
Guðmundsson
30 ára Emilía ólst upp í
Garðabænum, býr þar,
lauk B.Ed.-prófi frá HÍ og
er nú að ljúka meistara-
námi í náms- og starfs-
ráðgjöf við HÍ.
Maki: Kristján Helgason,
f. 1985, starfsmaður hjá
Eimskip.
Sonur: Jökull, f. 2012.
Foreldrar: Guðrún Elías-
dóttir, f. 1954, sjúkraliði í
Garðabæ, og Agnar Kofo-
ed Hansen, f. 1956, verk-
fræðingur í Reykjavík.
Emilía Björg
Kofoed Hansen
30 ára Helga Rós býr í
Varmahlíð, lauk B.Ed.-
prófi frá HÍ og er kennari í
Varmahlíðarskóla.
Maki: Sigurður Óli Ólafs-
son, f. 1981, nemi við HR.
Börn: Kolbrá Sigrún, f.
2012, og Mikael Máni, f.
2014.
Foreldrar: Sigfús Helga-
son, f. 1939, fyrrv. bóndi á
Stóru-Gröf syðri, og Guð-
rún Gunnsteinsdóttir, f.
1949, starfar við heimilis-
hjálp.
Helga Rós
Sigfúsdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
30
ÁRA
Frábær merino ullarnærföt
sem henta í alla útivist:
Göngur, hlaup, veiði, fjallgöngur,
skíði, hjólreiðar, útilegur.
og allt hitt líka.
Útsölustaðir: Hagkaup • Afreksvörur – Glæsibæ • Bjarg – Akranesi • Fjarðarkaup – Hafnarfirði
Jói Útherji – Reykjavík • JMJ – Akureyri • Icewear – Akureyri • Hafnarbúðin – Ísafirði • Kaupfélag V-Húnvetninga
Kaupfélag Skagfirðinga • Nesbakki – Neskaupsstað • Skóbúð Húsavíkur – Húsvík • Blossi – Grundarfirði • Efnalaug Dóru – Hornafirði
Efnalaug – Vopnafjarðar • Siglósport – Siglufirði • Heimahornið – Stykkishólmi • Grétar Þórarinsson – Vestmannaeyjum
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is