Morgunblaðið - 30.01.2015, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í liðinni viku tóku kvikmyndagerð-
armenn að safnast saman í snjó-
þungum Siglufirði og hófu þar tök-
ur á Ófærð, viðamestu
framhaldsþáttaröð sem gerð hefur
verið hér á landi fyrir sjónvarp. Áð-
ur munu tökur hafa farið fram í
Reykjavík og nágrenni fyrir jól en
samkvæmt upplýsingum frá
framleiðslufyrirtækinu, RVK Stud-
ios, eru tökudagar um 85. Gerðir
verða tíu tæplega klukkustund-
arlangir þættir og mun kostnaður
við verkið nema um milljarði króna.
Fjórir leikstjórar stjórna upp-
tökum, þeir Baltasar Kormákur,
Baldvin Z., Óskar Axelsson og
Börkur Sigþórsson, en með aðal-
hlutverkin fara Ólafur Darri Ólafs-
son, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingv-
ar E. Sigurðsson. Handritið skrifa
Sigurjón Kjartansson, Clive Brad-
ley, Ólafur Egilsson og Jóhann Æv-
ar Grímsson en Sigurjón er í veiga-
miklu hlutverki við þáttagerðina, er
það sem kallast „showrunner“,
maðurinn með yfirsýnina á vett-
vangi.
Margir koma við sögu
„Jú, það gengur mikið á,“ segir
Sigurjón þegar hann er ónáðaður á
tökustað. Um sjötíu tæknimenn og
leikarar eru komnir til Siglufjarðar
en milli fjörutíu og fimmtíu leikarar
koma við sögu í þáttunum.
„Hlutverkin skipta tugum. Þetta
er tíu þátta sería þannig að margir
koma við sögu, þó þetta gerist í
litlum bæ. Segja má að í heildar-
samhenginu sé lítið hlutverk í þess-
ari seríu nokkuð stærra en ef það
væri í bíómynd. Allt í allt er þessi
sería yfir 500 mínútur að lengd; þó
að hlutverk sé ekki stórt þá er það
samt stórt,“ segir hann og hlær.
„Útisenur eru teknar á Siglufirði
og líka á Seyðisfirði en innisenur
tökum við í Reykjavík að mestu.
Við sjáum fram á að vera hér út
mars. Við förum til Seyðisfjarðar í
millitíðinni. Smá angi er eyrna-
merktur þeim bæ, tengist ferjunni
og höfninni.“
– Er nægilega mikil ófærð?
„Það er svo sannarlega mjög
mikil ófærð núna. Allt sem við þurf-
um er hér núna. Við höfum fengið
allt sem við þurfum. Blindbyl, skaf-
renning, snjókomu og slyddu. Í dag
erum við að taka senu þar sem ver-
ið er að búa til snjókarl og það er
ekta sjókarlaveður. Það er eins og
veðurguðirnir hafi lesið handritið.“
– Er þetta sakamálasaga?
„Já, þetta er krimmi. Glæpur er
framinn og hver er sá seki? Við er-
um líka að kafa dýpra, inn í kvik-
una á samfélagi sem er að einherju
leyti smækkuð mynd af samfélag-
inu sem við búum öll í … Sagan er
líka að einhverju leyti pólitísk.
Glæpahöfundar segja stundum að
besta leiðin til að spegla samfélag
sé í gegnum glæp, því glæpur af-
hjúpar það sem aflaga hefur farið.“
Allir saman í hljómsveitinni
Þegar Sigurjón er spurður að því
hvort tökur mótist mikið af því að
fjórir leikstjórar koma að verkinu,
segir hann verkinu stýrt þannig að
samhengi sé í verki hvers og eins.
„Einn leikstjórinn er oft víða út
um heim að gera allskonar mynd-
ir,“ segir hann og vísar í störf Balt-
asars Kormáks. „Hann er búinn að
vera hérna í einn dag og svo kemur
hann aftur til að klára sína þætti.
Allir eru að gera sitt og við tökum
tillit til ýmiskonar aðstæðna.“
– Er ekki flókið fyrir „show-
runner“ að púsla þessu saman?
„Aðrir eru í að púsla saman töku-
planinu. Vissulega getur þetta verið
flókið og þarf að líta í ýmis horn en
þessi maskína hefur gengið mjög
vel, þessi vél er vel smurð. Hér er
besta fagfólk sem við höfum á land-
inu allt saman komið, meira og
minna, og við erum að prófa þessa
starfsaðferð í fyrsta sinn, að búa til
seríu þar sem eru fleiri en einn
leikstjóri og eitt höfuð yfir þessu,
tengt handritsvinnunni. Þá reynir á
að ég hafi mjög skýra sýn á verkið.
En ég er líka opinn fyrir öllum
hugmyndum sem koma frá leik-
stjórum, leikurum og öðrum.
Ég gæti alls samræmis og að allt
sé eins og lagt var upp með, en inn-
an þess ramma sem ég set er svig-
rúm þar sem menn geta leikið sér.
Ég hef ekki heyrt annað en að allir
séu ánægðir með þetta fyrir-
komulag.“
Sigurjón segir að í þessu ferli
hafi leikstjórarnir ákveði frelsi.
„Þeir bera ekki eins mikla ábyrgð
og ef þeir væru að gera bíómyndina
sína. Þeir eru að spreyta sig hér við
að leikstýra, sjá um að leikurinn sé
góður, og auðvitað koma þeir með
sínar hugmyndir um myndvinnsl-
una, í góðu samráði við mig, töku-
menn og aðra. Allir erum við sam-
an í þessari vinnu. Þetta er
samvinna og allir eru saman í
hljómsveitinni.“
Sigurjón segir þeim hafa verið
afar vel tekið á Siglufirði, allir virð-
ist vera ánægðir með að hafa þenn-
an stóra hóp þar við störf. Þá muni
eitthvað vera um að heimamenn
lendi fyrir framan tökuvélina.
Eins og veðurguðir lesi handritið
Um sjötíu manns vinna við tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð á Siglufirði „Það er svo sann-
arlega mjög mikil ófærð núna,“ segir Sigurjón Kjartansson Fjórir leikstjórar koma að verkinu
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Höfuðpaurinn Sigurjón Kjartansson á tökustað á Siglufirði. „Okkur er tekið einstaklega vel hérna,“ segir hann.
Tomasz Dabrowski, verðlaunaður
trompetleikari og tónskáld, heldur
tónleika í menningarhúsinu Mengi í
kvöld kl. 21. Dabrowski leikur bæði
á trompet og gamalt hljóðfæri sem
hann kallar balkanskt horn, segir í
tilkynningu. Sterkt og auðþekkj-
anlegt hljóð hans og svipmikil spila-
mennska sé innblásin af frjálsum
djassi, austur-evrópskri þjóðlaga-
tónlist og framúrstefnutónlist.
Tomasz telst til frumlegustu tromp-
etleikara og tónskálda Póllands
sem og hinnar evrópsku djasssenu,
segir í tilkynningu. Hann hafi gefið
út þrjár sólóplötur og 14 plötur í
samstarfi við aðra auk þess að leika
víða um Evrópu og Kanada.
Frumlegur Tomasz Dabrowski.
Tomasz Dabrowski
leikur í Mengi
Sanctuary – Griðastaður er yf-
irskrift hádegistónleika Íslenska
flautukórsins sem haldnir verða í
dag kl. 12.10 í Listasafni Íslands
og vísar hún í málverkið „Sanc-
tuary“ eftir Jón Óskar sem sjá má
á sýningu hans í safninu.
Á tónleikunum flytja Emilía Rós
Sigfúsdóttir flautuleikari og Ást-
ríður Alda Sigurðardóttir píanó-
leikari franska tónlist, verk eftir
C. Saint-Saëns, G. Fauré og F.
Poulenc. Flytjendur Ástríður og Emilía.
Griðastaður í Listasafni Íslands
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNAR-
HELGI ALLRA TÍMA Á
ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
2 VIKUR
Á TOPPNUM!
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus