Morgunblaðið - 17.02.2015, Page 2

Morgunblaðið - 17.02.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Nýlega voru auglýstar stöður skóla- stjóra við fimm grunnskóla víðs veg- ar um Reykjavíkurborg. Allir eru skólastjórarnir að láta af störfum vegna aldurs, en mikil endurnýjun hefur verið meðal stjórnenda grunn- skóla borgarinnar undanfarin ár. Svona margar skólastjórastöður auglýstar á sama tíma er einsdæmi. Skólarnir sem um ræðir eru Selja- skóli, Austurbæjarskóli, Breiðagerð- isskóli, Vesturbæjarskóli og Rétt- arholtsskóli. „Þeir hætta allir af náttúrulegum orsökum,“ segir Valgerður Janus- dóttir, mannauðsstjóri skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkur, og á þar við að skólastjórarnir í viðkomandi skólum séu að hætta vegna aldurs. „Undanfarin ár hafa orðið talsverðar breytingar í stjórnendastöðum í skólunum í borginni en ég man ekki eftir því að svona margar stöður hafi verið auglýstar í einu.“ Jafnan talsverð ásókn Samtals eru um 2.200 nemendur og 300 starfsmenn í þessum fimm skólum. Menntunar- og hæfiskröfur eru tilgreindar þær sömu í öllum fimm atvinnuauglýsingunum. Þær eru m.a. leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari, viðbótar- menntun í stjórnun eða kennslu- reynsla á grunnskólastigi. Þá eru stjórnunarhæfileikar, færni í áætl- anagerð og færni til að leiða fram- sækna skólaþróun einnig á lista yfir menntunar- og hæfniskröfur. Valgerður segir að jafnan sé tals- verð ásókn í störf skólastjóra og á von á að sú verði einnig raunin nú. Umsóknarfrestur er ýmist til 2. eða 9. mars og ráðið verður frá 1. ágúst. Fimm skólar fá nýjan skólastjóra  Einsdæmi að svo margar stöður séu lausar á sama tíma  2.200 reykvískir grunnskólanemar fá nýjan skólastjóra  Hætta af „náttúrulegum ástæðum“ Morgunblaðið/Þorkell Við Austurbæjarskóla Þangað kemur nýr skólastjóri í haust. Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra segist vilja taka til skoðunar hvort ríkið eigi skaðabótakröfu á hendur slitabúi Kaupþings vegna láns sem Seðla- bankinn veitti bankanum um sama leyti og brot sem stjórnendur Kaupþings voru sakfelldir fyrir í Al Thani-málinu voru framin. Spurði um lánveitinguna Guðmundur Steingrímsson, þing- maður Bjartrar framtíðar, spurði fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær út í lánveitingu Seðlabankans til Kaupþings í hruninu í tilefni af dómi sem féll í Al Thani-málinu í Hæstarétti í síðustu viku. Þar voru fyrrverandi stjórnendur og eig- endur Kaupþings dæmdir fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik í tengslum við kaup sjeiksins Al Thanis á hlutabréfum bankans í að- draganda hrunsins. Ekki öll kurl komin til grafar Sagði Guðmundur að ekki væru öll kurl komin til grafar hvað varð- aði lánveitingu Seðlabankans og ýmislegt benti til þess að ekki hefði verið farið að lögum og reglum. Spurði hann hvort ekki væri ástæða til að birta símtal Geirs Haarde, þá- verandi forsætisráðherra, og Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabanka- stjóra, í aðdraganda lánveiting- arinnar. Bjarni sagðist sammála því að Al- þingi ætti rétt á skýringum á lán- veitingunni en sagði jafnframt að hann teldi skýringar á því þegar komnar fram. Hann sagðist þó telja það áleitn- ari spurningu í tilefni af sakfelling- unum í Al Thani-málinu hvort ríkið ætti mögulega skaðabótakröfu á hendur slitabúi Kaupþings þar sem brotin í málinu hefðu verið framin á sama tíma og lánveiting Seðlabank- ans átti sér stað. „Ég held að við ættum að taka það til skoðunar,“ sagði Bjarni. Bjarni vill kanna bótakröfu Bjarni Benediktsson  Skoða rétt sinn eftir Al Thani-dóm Leiðindaveður gekk yfir landið í gær með élja- gangi og hvassviðri. Þessir ferðamenn létu veðr- ið þó ekki stoppa sig frá því að æða út í kuldann og ná myndum af höfuðborginni í vetrarbúningi. Eflaust vilja margir að snjó fari að leysa til að vorið geti hafist, en einhver bið verður á því. Loka þurfti vegum um Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði vegna veðurs í gær- kvöldi, og samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu Íslands má áfram búast við erfiðum akst- ursskilyrðum víða sunnan- og vestanlands í kvöld. Þá verður hvassviðri og ofankoma víða. Snjókoma og skafrenningur á höfuðborgarsvæðinu í gær Morgunblaðið/RAX Tóku myndir af borginni í vetrarbúningi Aðalstofnandi Vísis hf., Páll Hreinn Páls- son útgerðarmaður í Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Kefla- vík í gær, 82 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík árið 1932 en fluttist nokkurra vikna gamall til Þingeyrar, þar sem hann ólst upp með foreldrum sínum og þremur systkinum. Foreldrar hans voru þau Jóhanna Daðey Gísladóttir og Páll Jónsson. Páll átti bátana Fjölni og Hilmi og fórst með Hilmi í Faxaflóa árið 1943. Jóhanna Daðey gerði Fjölni áfram út til síldveiða og fiskflutn- inga í stríðinu allt þar til hann sökk eftir árekstur við enskt póstskip í lok stríðsins, í mars 1945. Páll H. Pálsson var ellefu ára þegar hann fór fyrst á sjóinn sem léttadrengur á Fjölni. Þar á eftir stundaði hann sjó- mennsku á ýmsum bát- um og togurum þar til hann fór í Stýrimanna- skólann og útskrifaðist þaðan 1953. Það ár keypti hann ásamt fleir- um 100 tonna bát, Ágúst Þórarinsson frá Stykkis- hólmi. Fékk hann nafnið Fjölnir ÍS 177 og var gerður út á línuveiðar frá Þingeyri. Eftir Stýrimannaskól- ann gerðist Páll stýrimaður og skip- stjóri á ýmsum bátum og 1963 keypti hann mb. Farsæl og var með hann á línu- og humarveiðum. Árið 1964 keypti hann, ásamt Krist- mundi Finnbogasyni og Ásgeiri Lúðvíkssyni, vélbátinn Vísi KE 70 og fiskverkunarhúsið Sævík í Grindavík og flutti þangað með fjöl- skyldu sína í nóvember 1965. Félagið Vísir sf. var formlega stofnað 1. desember 1965. Vísir er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins og gerir út fimm línuskip auk þess sem fyrirtækið rekur öfl- uga fiskvinnslu í Grindavík. Páll var forstjóri félagsins til ársins 2000 og stjórnarformaður til dauðadags. Páll var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu 2001, fyr- ir störf sín að sjávarútvegi og fisk- vinnslu. Á skólaárum sínum kynnist Páll Margréti Sighvatsdóttur. Þau giftu sig á sjómannadaginn árið 1955 og hófu búskap í Keflavík, en bjuggu síðan lengst af í Grindavík. Margrét lést 3. febrúar 2012. Börn Páls og Margrétar eru Margrét, Páll Jó- hann, Pétur Hafsteinn, Kristín Elísabet, Svanhvít Daðey og Sólný Ingibjörg. Barnabörnin eru 24 og langafabörnin 27. Sambýliskona Páls síðustu æviárin var Soffía Stef- ánsdóttir. Andlát Páll H. Pálsson útgerðarmaður „Við erum búnir að taka eitt kast og fá 300 tonn. Það er eitthvað að koma hérna upp og það er góðs viti,“ sagði Bergur Einarsson, skipstjóri á Hof- felli SU-80, sem var á veiðum við Stokksnes skammt austan við Höfn í Hornafirði um kvöldmatarleytið í gær. Þar voru níu bátar á veiðum og fleiri á leiðinni. Eftir því hefur verið beðið að loðnan þéttist við suðaust- urhorn landsins og fari svo vestur að hrygningarstöðvum við Faxaflóa og Breiðafjörð. Arnþór Hjörleifsson á Lundey NS-14, sem einnig var við Stokksnes, sagðist hafa vitað af loðnunni á þess- um slóðum undanfarna daga en ekki hefði verið hægt að sannreyna það fyrr vegna brælu. „Maður vonar að vertíðin sé hafin fyrir alvöru núna,“ sagði Arnþór. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hafði fengið fregnir af loðnunni við Stokksnes. „Það er gott að sjá loðnuna á sínum hefð- bundnu slóðum. Nú eru einhverjir 30- 40 dagar eftir af vertíðinni og mikil- vægt að ná því sem er eftir af kvót- anum,“ segir Sigurgeir. Enn á eftir að veiða um 300 þúsund tonn miðað við útgefinn kvóta. vidar@mbl.is Loðnan á hefð- bundnari slóðum  Vona að vertíðin sé hafin fyrir alvöru Morgunblaðið/Albert Kemp Hoffell SU Níu skip voru á loðnu- veiðum við Stokksnes í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.