Morgunblaðið - 17.02.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015
13:30 Fundarsetning
Nýkjörinn formaður Samorku
Ávarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Vandi flutningskerfis raforku
Ragnar Guðmannsson, yfirmaður stjórnstöðvar Landsnets
Hömlur á þróun atvinnulífs
Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar
Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð
Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð
15:00 Kaffiveitingar í fundarlok
Fundarstjóri: Gústaf Adolf Skúlason, framkvæmdastjóri Samorku
RAFORKUKERFI Í VANDA
Opin dagskrá aðalfundar Samorku
Föstudaginn 20. febrúar 2015
Grand Hótel Reykjavík
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Ragnar
Guðmannsson
Óli Grétar Blöndal
Sveinsson
Páll Björgvin
Guðmundsson
Bjarni Th.
Bjarnason
Gústaf Adolf
Skúlason
Birgir Ármannsson, formaður utan-
ríkismálanefndar, segir að ekkert sé
við vinnu þýðenda að athuga við
innleiðingu Evróputilskipana. Hins
vegar sé svigrúm til þess í stjórn-
sýslunni að taka í auknum mæli tillit
til íslenskra aðstæðna í innleiðingu
tilskipana við gerð lagatexta eftir að
þýðingarvinnu lýkur.
Birgir var inntur eftir svörum
vegna orða Sigrúnar Magnúsdóttur
umhverfisráðherra í Fréttablaðinu í
gær, þar sem hún kallar eftir mild-
ara orðalagi við þýðingu Evrópu-
tilskipana. Stjórn Bandalags þýð-
enda brást við í gær með yfirlýsingu
þar sem bandalagið furðar sig á um-
mælum Sigrúnar.
Til áréttingar segir Birgir að
reglugerðir sem eigi uppruna sinn í
ESB, og eru innleiddar hér á landi í
gegnum EES-samninginn, séu nær
óbreyttar og svigrúm lítið til breyt-
inga. Hins vegar séu tilskipanir
annars eðlis. „Þær fela í sér al-
menna stefnumörkun og gefa
ákveðinn ramma sem einstökum
ríkjum er oft veitt svigrúm til að út-
færa,“ segir Birgir. Hann bendir á
að margoft hafi verið rætt um það í
þinginu að þegar færa á efni tilskip-
ana í frumvarpsform þyki mörgum
ráðuneytin hafa valið óþarflega
íþyngjandi leiðir til að innleiða ein-
stök efnisatriði. „Mitt viðhorf er það
að menn, bæði innan stjórnsýslunn-
ar og í þinginu, þurfi að nýta það
svigrúm sem fyrir hendi er fyrir Ís-
land og íslenska borgara,“ segir
Birgir.
Tekur undir með Sigrúnu
„Þegar búið er að þýða tilskipanir
þarf að útbúa lagafrumvörp sem
byggjast á efni tilskipananna. Þær
verða ekki að íslenskum lögum þótt
þær séu þýddar. Þær þarf að inn-
leiða í lög með hefðbundnum laga-
frumvörpum. Mér hefur fundist á
undanförnum árum sem frumvarps-
höfundar hafi ekki nýtt nægilega
það svigrúm sem er fyrir hendi í til-
skipununum sjálfum. Að því leyti til
get ég tekið undir með Sigrúnu, að
ég held að menn á vettvangi stjórn-
sýslunnar og þingsins verði að vera
meðvitaðir um þetta svigrúm sem
fyrir hendi er. Það er óháð þýðing-
arvinnunni sem slíkri,“ segir Birgir
ennfremur. vidar@mbl.is
Svigrúm
fyrir
hendi
Vinna þýðenda
ekki gagnrýnisverð
Sigrún
Magnúsdóttir
Birgir
Ármannsson
Eftir helst til rólegan janúarmánuð í
Slippnum á Akureyri hefur mikið verið
að gera það sem af er febrúar. Anton
Benjamínsson framkvæmdastjóri segir
að útlitið sé gott framundan og þessa
dagana er unnið við viðhald á fjórum
skipum, tveimur grænlenskum og
tveimur íslenskum. Þessi viðhaldsverk-
efni skapa vinnu fyrir stálsmiði, tré-
smiði, málara og fleiri starfsmenn í
Slippnum, en þar vinna fast um 160
manns.
„Í þessum bransa þarf oft að hafa fyr-
ir því að skapa verkefni frá október og
fram í lok febrúar,“ segir Anton. „Ef
það lukkast eru menn í ágætum málum
og nú er þessu krítíska tímabili að ljúka.
Verkefnastaðan var viðunandi fyrir ára-
mót, janúar var erfiður og febrúar ætlar
að verða fínn. Þannig að við erum í
þokkalega sterkri stöðu og ágætis bók-
anir framundan.“
Fyrir helgi var gerð tilraun með að
taka Oddeyrina EA upp í slipp en kúp-
ling í sleða gaf sig svo skipið var látið
síga aftur. Oddeyrin er 64,6 metrar að
lengd og var þyngdin áætluð um 1.900
tonn eftir að búið var að létta það með
því m.a. að fjarlægja hlera og minnka
olíu í tönkum. Í staðinn verður Oddeyri
tekin í flotkví á miðvikudag.
„Við hefðum náð að draga skipið upp
hefði kúpling ekki gefið sig,“ segir Ant-
on. Hann er gerður fyrir um 2.000 tonn
og hefur verið endurbættur síðustu ár.
Við vissum samt að þetta yrði á mörk-
unum, en áðkváðum að reyna. Þegar
kúplingin gaf sig var ekki annað en að
slaka skipinu niður aftur.“ aij@mbl.is
Nóg að gera í Slippnum
Ljósmynd/Jón Páll
Slippurinn Til stóð að taka Oddeyrina í slipp fyrir helgi, en kúp-
ling í sleða gaf sig. Skipið fer í flotkví á morgun, miðvikudag.
Kúpling í sleða gaf sig er taka átti Oddeyrina EA í slipp