Morgunblaðið - 17.02.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015
Umhverfisráðherra velti fyrir sérmeð hófstilltum hætti orðalagi
á þýðingum á reglugerðarfarganinu
frá ESB. Páll Vil-
hjálmsson segir frá
viðbrögðunum:
RÚV kallaði uppá dekk í hádeg-
inu yfirlýstan ESB-
sinna, Gauta Krist-
mannsson prófessor, til að atast í
Sigrúnu Magnúsdóttur.
Í kjölfarið, eins og eftir pöntun,kemur ályktun frá félögum
Gauta.
Skemmst er frá að segja að Sigrúnhefur rétt fyrir sér í málinu en
prófessorinn og félagarnir rangt.
Á ensku heitir það að gylla lög ogreglugerðir Evrópusambands-
ins.
Breska ríkisstjórnin ákvað að viðsvo búið mætti ekki standa og
skipaði nefnd til að finna leiðir til að
komast hjá íþyngjandi áhrifum ESB-
reglugerða og laga einmitt með
skapandi þýðingum og aðlögunum.
Áhrifin þóttu jákvæð.
Svíar unnu einnig skipulega vinnutil að nýta sér svigrúmið í kröf-
um ESB um samræmdan rétt.
En vitanlega finnst ESB-sinnum áÍslandi ótækt að við skulum
reyna að koma okkur undan mestu
ESB-áþjáninni.“
Þá eru mörg dæmi um að í lög tilað fullgilda tilskipanir frá
Brussel er iðulega bætt við ákvæð-
um sem ráðuneyti hafa ekki náð
fram á þingi. Þingmenn og ráð-
herrar lesa ekki „ESB-lög“ og því
hefur þessi aðferð svínvirkað. Því
miður.
Sigrún
Magnúsdóttir
Þýðingarlaust mál
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.2., kl. 18.00
Reykjavík -4 snjóél
Bolungarvík -6 snjóél
Akureyri -3 skýjað
Nuuk -13 léttskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló -2 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 alskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -2 heiðskírt
Lúxemborg 0 þoka
Brussel 3 þoka
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 7 skúrir
París 5 alskýjað
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 3 heiðskírt
Berlín 1 léttskýjað
Vín 8 heiðskírt
Moskva -5 skýjað
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 11 skýjað
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -15 alskýjað
Montreal -21 heiðskírt
New York -11 heiðskírt
Chicago -12 skýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:17 18:07
ÍSAFJÖRÐUR 9:32 18:03
SIGLUFJÖRÐUR 9:15 17:45
DJÚPIVOGUR 8:49 17:34
Íslendingar eyddu 21,7 milljónum
króna í símakosningu Eurovision á
laugardag. Um 170 þúsund at-
kvæði voru greidd þann daginn og
kostaði atkvæðið 129 krónur. Aldr-
ei áður hefur verið kosið svo oft.
Samkvæmt upplýsingum frá
RÚV eru tekjur þeirra um níu
milljónir króna, sem fer upp í
kostnað við framleiðslu keppninnar
sem liggur ekki endanlega fyrir en
er áætlaður ríflega 30 milljónir
króna. Afgangurinn, 21 milljón,
skiptist milli símafyrirtækja og þá
tekur skatturinn sinn hluta. Voda-
fone sá um kosninguna en hluti
hagnaðarins rennur til annarra
símafyrirtækja.
Alls voru greidd 168.762 atkvæði
en gamla metið var um 140.000 at-
kvæði. Síðustu ár hefur atkvæða-
fjöldinn í úrslitum verið 80-
100.000.
Lagið „Unbroken“ eftir höfunda-
teymið Stop Wait Go, sem er skip-
að þeim Ásgeiri Orra Ásgeirssyni,
Pálma Ragnari Ásgeirssyni og Sæ-
þóri Kristjánssyni, sungið af Maríu
Ólafsdóttur, var afgerandi sig-
urvegari í lokaeinvíginu.
Lagið fékk samtals 70.774 at-
kvæði samanlagt en „Once Again“,
einnig eftir Stop Wait Go, flutt af
Friðriki Dór, fékk 55.850 atkvæði.
Kosningin kostaði rúmar 22 milljónir
170 þúsund atkvæði bárust í síma-
kosningu í undankeppni Eurovision
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæl Lagið „Unbroken“ fer út.
Páll Þórhallsson,
skrifstofustjóri í
forsætisráðu-
neytinu, hefur
tímabundið tekið
við starfi skrif-
stofustjóra menn-
ingararfs. Mar-
grét Hallgríms-
dóttir þjóðminja-
vörður sneri aftur
til starfa í Þjóðminjasafni í byrjun
febrúar eftir að hafa gegnt embætt-
inu í eitt ár. Það féll áður undir
menntamálaráðuneytið. Að sögn
Páls hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvort ráðið verður í starfið en
Páll hefur til þessa verið skrifstofu-
stjóri löggjafarmála í forsætisráðu-
neytinu. Hann sinnir báðum emb-
ættum. „Það er ekki afráðið hvernig
verður með fyrirsvar skrifstofunnar
til frambúðar,“ segir Páll. Hann seg-
ir að ákvörðun verði tekin fyrir vorið.
Ákvörunin liggur hjá forsætisráð-
herra. Undir embættið falla málefni
Þjóðminjasafnsins og Minjastofnun-
ar. Einn starfsmaður hefur starfað á
skrifstofunni auk skrifstofustjóra.
vidar@mbl.is
Óljóst
hvort nýr
tekur við
Páll sinnir
menningararfinum
Páll Þórhallsson
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
Nýjar vörur
Hlýr og notalegur
ullarfatnaður
á öll börn
á góðu
verði
www.ullarkistan.is