Morgunblaðið - 17.02.2015, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015
REYKJAVÍK
GRAFARVOGUR
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
Grafarvogur afmarkast af ósum El-
liðaár í vestri, samnefndum vogi í
suðri og Vesturlandsvegi í austri,
sveitafélagsmörkum að Mosfellsbæ
og sjó. Þar búa um 18 þúsund
manns á rúmlega sex þúsund heim-
ilum.
Til Grafarvogshverfis teljast
Hamrar, Foldir, Hús, Rimar, Borg-
ir, Víkur, Engi, Spöng, Staðir,
Höfðar, Bryggjuhverfi, Geirsnef,
Gufunes og Geldinganes.
Grafarvogur dregur nafn sitt af
bænum Gröf, sem nú er í eyði en
stóð innst við hann, við Grafarlæk
fyrir sunnan Keldur. Í Höfðahverfi
eru atvinnusvæði sem talin eru hafa
mikla þróunarmöguleika, einkum í
vesturhlutanum. Land Keldna og
Keldnaholts eru skilgrind sem
framtíðaruppbyggingarsvæði,
einkum fyrir atvinnuhúsnæði en
ekki fyrir íbúðir.
Samkvæmt nýju aðalskipulagi
Reykjavíkur mun íbúðum innan nú-
verandi skólahverfa fjölga um 550
á næstu árum. En í borgarhlut-
anum í heild er horft fram á fjölgun
íbúða um 3.350 þegar til lengri tíma
er litið.
Byggð mun aukast
mjög í Grafarvogi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Matvöruverslanir í Reykjavík fram-
tíðarinnar verða fyrst og fremst í
miðkjörnum borgarhverfa sem festa
á í sessi sem þjónustusvæði hverrar
byggðar. Styrkja á bakland hverf-
isverslunar og -þjónustu með fjölgun
íbúa og starfa. Heimildir til að opna
matvörubúðir á atvinnusvæðum
verða þrengdar. Þetta er eitt af
markmiðum Aðalskipulags Reykja-
víkur sem gefið var út á síðasta ári
og gildir til 2030. Upprisa kaup-
mannsins á horninu er meðal
áherslumála. Í þessu efni er Graf-
arvogurinn undir, rétt eins og önnur
hverfi. Árið 1950 voru 325 dag-
vöruverslanir í Reykjavík en í dag
um 100. Og þessu vill borgin breyta,
svo hlutfall íbúa sem hafa verslun í
400 metra göngufjarlægð frá heimili
sínu verði fleiri. Í dag nýtur liðlega
helmingur borgarbúa þessara hlunn-
inda. Breytingar á skipulagi, af-
greiðsla umsókna um nýjar verslanir
og fleira slíkt skulu miðast við að
hlutfallið hækki.
„Fólk vill hafa bakarí í hverfinu
sínu og alla daglega þjónustu,“ segir
Jarek Kuczynski sem rekur Bakaríið
Hverafold í Grafarvogi. Stór hluti
uppskrifta sem fylgt er í bakaríinu
kemur frá Þýskaland og Póllandi.
Þýskar og pólskar uppskriftir
Jarek er frá borginni Tychy í
suðurhluta Póllandi. Hann flutti
hingað til lands 1999. Fyrstu árin var
hann í byggingavinnu en vildi hasla
sér völl í eigin rekstri við matargerð.
Erill var í bakaríinu síðastliðinn
laugardag, þegar Morgunblaðið hitti
Jarek þar. Mörgum finnst það lífið
sjálft að kreppa í bakarí á laug-
ardagsmorgni og ná sér í nýbakað
með kaffinu. Við þetta bættist við að
margir tóku forskot á bolludaginn og
tóku til dæmis Berlínabollur eftir
uppskrift sem Jarek gróf upp á
heimaslóðum sínum.
„Fólk sem kemur hingað inn er
að stórum hluta Grafarvogsbúar. Sú
starfsemi sem er hér í húsinu spilar
vel saman, en hér er til dæmis stór
matvöruverslun, blómabúð, efnalaug,
tannlæknastofa, bókasali og fleira.
Fólk á erindi á einn stað og leiðist þá
inn á hinn næsta. Að lítil og stór fyr-
irtæki séu á sama stað getur virkað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bakstur Jarek Kuczynski sem rekur bakaríið í Hverafold, til vinstri, og Árni
Kristján Sigurvinsson bítur í bollu eftir uppskrift frá heimalandi Jareks.
Upprisa kaupmannsins
Verslanirnar verði í heimahverfum Þjónustukjarnar eflist
Pólska Grafarvogsbrauðið og fiskurinn kemur frá línubátum
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Ánægja íbúa Reykjavíkur með
þjónustu borgarinnar og umhverfi
var könnuð undir lok síðasta árs og
kom þar meðal annars fram að 89%
Reykvíkinga væru ánægðir með
hverfið sitt. Capacent stóð fyrir
könnuninni og var Grafarvogi sleg-
ið saman við Kjalarnes í spurninga-
listanum. Út úr niðurstöðum könn-
unarinnar mátti einnig lesa að
íbúar Grafarvogs og Kjalarness
voru í sjöunda sæti af tíu hverfum
borgarinnar sem könnuð voru
varðandi ánægju með hverfið sem
stað til þess að búa á. Íbúar Laug-
ardals skoruðu þar hæst.
Í neðsta sæti í einum lið
Grafarvogur/Kjalarnes voru
um miðbik þegar kom að flestum
spurningunum en hverfin voru þó í
öðru sæti þegar spurt var um að-
stöðu til íþróttaiðkunar og í fyrsta
sæti þegar spurt var um ánægju
með þjónustu við eldri borgara.
Grafarvogur/Kjalarnes var síðan í
neðsta sæti þegar kom að þjónustu
grunnskóla í hverfinu og í næst-
neðsta sæti þegar spurt var um
menningarmál í hverfinu og þjón-
ustu í tengslum við sorphirðu.
Þjónusta Grafarvogsbúar eru ánægðir með þjónustu við eldri borgara.
Eldri borgarar eru
sáttir við þjónustu
Capacent kannaði viðhorf íbúanna
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Febrúarsprengja
Tilboðsverð
4.197 kr.
Tilboðsverð
2.997 kr.
Verð áður kr. 4.995
Stærðir 36–42
Tilboðsverð
5.397 kr.
Verð áður kr. 8.995
Stærðir 36–41
Tilboðsverð
7.797 kr.
Verð áður kr. 12.995
Stærðir 36–41
Verð áður kr. 6.99
Stærðir 37–