Morgunblaðið - 17.02.2015, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
www.mats.is
virði fólk aðstæður hvað annars,“
segir Jarek sem leigir húsnæði og
aðstöðu í Hverafold af Stefáni Sand-
holt sem lengi hefur verið athafna-
maður í bakarísrekstri. „Stefán er
okkur alltaf innan handar og rekst-
urinn rúllar vel,“ segir Jarek sem
selur vörur víða, meðal annars í
Pólsku búðina í Breiðholtinu og aðr-
ar slíkar. Erum raunar að koma vör-
unum inn æ fleiri verslanir og salan
eykst. Það skilar sér ef vinna er sett í
hluti.“
Rétt eins og Jesús mettaði fólk-
ið með brauði þá þarf fleira á disk-
inn. Hverfiskaupmennirnir eru eins
og Frelsarinn forðum. Í guðspjalli
Matteusar segir frá því að Jesús bað
fólkið um að setjast; gerði Guði
þakkir og tók svo brauðið og út-
deildi. Allir fengu brauð og fisk eins
og þeir gátu í sig látið.
Frelsarinn mettar
Fiskbúðin Hafið Spönginni í
Grafarvogi var opnuð sumarið 2013.
Áður höfðu félagarnir Halldór Heið-
ar Halldórsson og Eyjólfur Júlíus
Pálsson rekið fiskbúð undir þessu
nafni við Hlíðasmára í Kópavogi og
farnast vel. Ákváðu því að færa út
kvíarnar og nýttu tækifæri þegar
hentugt húsnæði í Spönginni
bauðst.
„Við fengum fljúgandi start.
Höfum sérstaklega lagt okkur eftir
að vera með tilbúna fiskrétti, til
dæmis blandaða grænmeti, hinu
ýmsa kryddi, framandi meðlæti og
svo framvegis. Mat sem hægt er að
setja í ofninn og elda á skömmum
tíma,“ segir Páll Pálsson sem stend-
ur hina daglegu vakt í versluninni.
Tilbúnir réttir og glæný flök
„Fiskbúðir eru gjörbreyttar frá
því sem áður var. Þverskorin ýsa,
fín sem soðning, var áberandi í fisk-
borðinu áður fyrr en nú fæst svo
miklu meira,“ segir Páll sem er
bróðir annars eiganda Hafsins, Eyj-
ólfs Júlíusar.
Páll segir að í fiskbúðarrekstri í
íbúðarhverfi gildi – eins og raunar í
öðrum atvinnugreinum – að hafa
góð tengsl við viðskiptavini og
þekkja þarfirnar. „Fólkið gerir kröf-
ur um besta hráefnið og þeim viljum
við standa undir. Við sækjumst eftir
að kaupa línufisk sem er besta hrá-
efnið og á uppboði fiskmarkaðanna
um hádegi dag hvern vöktum við
það sem kemur frá línubátunum,“
segir Páll og bætir við að fjöl-
breytnin þurfi að vera ráðandi. Til-
búnir réttir og glæný flök séu góð –
en mörgum finnist mikil gæði felast
í því að í Hafinu fáist alltaf súr hval-
ur og sjósiginn fiskur að vestan, frá
Drangsnesi. Matarsmekkur fólks sé
ólíkur og svara verði óskum sem
flestra.
Morgunblaðið/Kristinn
Sjávarfang Páll Pálsson við borðið í fiskbúðinni Hafinu sem er Spönginni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hverafold Margt í pakkanum, til dæmis kjörbúð, bakarí, efnalaug og blóm.
Áætlað er búið verði að úthluta graf-
arstæðum í Gufuneskirkjugarði, sem
er í miðju Grafarvogshverfi, á næstu
tveimur árum. Á heimasíðu kirkjugarð-
anna kemur þó fram að grafið verður í
frátekin stæði út alla öldina.
Þar kemur einnig fram að garðurinn
hafi verið vígður 16. júní 1980 og var
Friðfinnur Ólafsson forstjóri jarðsettur
þar fyrstur manna og er hann því vöku-
maður garðsins. Frá árinu 1983 hafa
mun fleiri verið jarðsettir í Gufunes-
kirkjugarði en Fossvogskirkjugarði, en
sá garður er nú útgrafinn. Gufunes-
garður er á milli Húsahverfis og Rima-
hverfis og er um þrjátíu hektarar að
stærð. Í garðinum eru grafreitir fyrir
fólk af ýmsum trúarbrögðum svo sem
kristinnar trúar, búddatrúar, íslams-
trúar og ásatrúar. Einnig er reitur fyrir
þá sem standa fyrir utan trúfélög.
Gufuneskirkjugarður að fyllast
Vígður Garðurinn var vígður 1980.
Grafarvogsbúar eru ef til vill ekki
allir meðvitaðir um þá skíðamögu-
leika sem hverfið býr yfir en þar má
finna fína brekku og skíðalyftu. Lyft-
an er staðsett meðfram göngustíg
sem liggur upp að Húsahverfi og er
brekkan ætluð börnum og byrj-
endum.
Opið er virka daga frá klukkan 16
til 20 og 10 til 16 um helgar þegar
veður leyfir. Það má meðal annars
fylgjast með því hvort brekkurnar séu
lokaðar eða opnar inni á fésbókarsíðu
skíðasvæðanna eða á skidasvaedi.is.
Skíðamöguleikar í Húsahverfi
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Skíði Lyftan er opin þegar veður leyfir.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Íbúar í Grafarvogi leggja til hug-
myndir fyrir 117 milljónir í hverfa-
kosningunum Betri hverfi 2015.
Þar á meðal er hundagerði á Gufu-
nessvæðinu, áningarstaður fyrir
botni Grafarvogs og margt fleira
áhugavert. Þetta kemur meðal ann-
ars fram á vefsíðu Grafarvogsbúa,
grafarvogsbuar.is. Rafrænar íbúa-
kosningar um hugmyndir að verk-
efnum í hverfum Reykjavíkur
verða haldnar dagana 17. til 24.
febrúar næstkomandi.
Heimild upp á 300 milljónir
Þetta er í fjórða sinn sem slík-
ar kosningar eru haldnar en hug-
myndirnar að verkefnunum eiga
íbúarnir sjálfir. Þeim var safnað
saman í október á síðasta ári og
bárust 690 hugmyndir frá íbúum
sem var metfjöldi í hugmyndasöfn-
un fyrir hverfin. Kosið verður á
milli allt að tuttugu hugmynda í tíu
hverfum borgarinnar.
Á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar kemur meðal annars fram
að allir þeir sem eiga lögheimili í
Reykjavík og eru orðnir sextán ára
geta tekið þátt í kosningunum. Til
að komast inn á kosningavefinn
verða íbúar að eiga Íslykil eða raf-
ræn skilríki til auðkenningar og er
nauðsynlegt að hafa slík auðkenni
tiltæk áður en haldið er á „kjör-
stað“ í tölvu eða spjaldtölvu.
Alls hafa verið verðmerktar
hugmyndir að verkefnum fyrir
rúmlega 820 milljónir króna en
fjárheimild hverfanna er um 300
milljónir á þessu ári. Í kosning-
unum forgangsraða íbúar verk-
efnum í sínum hverfum. Niður-
stöður kosninganna eru bindandi
fyrir Reykjavíkurborg.
Ljósmynd/Christopher Lund
Kosningar Íbúar Grafarvogs hafa eflaust ýmislegt til málanna að leggja.
Grafarvogsbúar vilja
hundagerði í Gufunesi
Með tillögur sem kosta 117 milljónir
0 KR. ÚTBORGUN
AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu AVIS
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
LANGTÍMALEIGA
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur
kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll,
engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen
við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.