Morgunblaðið - 17.02.2015, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Húsið kostaði 16,8 1998
2. Anna Margrét og Árni selja …
3. Barði börnin sín og hótaði þeim
4. Synir Eyþórs og Dagmarar …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þrír norskir leikstjórar, þeir Bent
Hamer, Eskil Vogt og Unni Straume,
verða gestir Stockfish – evrópskrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík, sem
hefst á fimmtudaginn í Bíó Paradís.
Kvikmyndir þeirra hafa hlotið mikið
lof og viðurkenningar, m.a. á kvik-
myndahátíðinni Sundance og hátíð-
unum í Cannes og Berlín. Kvikmynd
Hamers, 1001, verður sýnd á hátíð-
inni en hún er framlag Noregs til Ósk-
arsverðlaunanna í ár. Vogt sýnir kvik-
myndina Blind og Straume heimildar-
myndina REMAKE.me. Hamer og Vogt
verða viðstaddir setningu Stockfish
og Straume viðstödd seinni hluta há-
tíðarinnar. Á myndinni sést stilla úr
Blind sem fjallar um Ingrid, rifhöfund
sem missir sjónina og lokar sig af á
heimili sínu. Fyrr en varir taka ímynd-
unaraflið og óttinn völdin og skáld-
skapurinn tekur að renna saman við
raunveruleikann. Frekari upplýsingar
um hátíðina má finna á stockfish-
festival.is.
Norskir leikstjórar
gestir Stockfish
Súsanna Svavarsdóttir, Hallfríður
Þóra Tryggvadóttir, Aldís Davíðs-
dóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir
munu í kvöld kl. 20 fjalla um sérhæf-
ingu sína á sviði leiklistar í Tjarnar-
bíói og ber viðburðurinn yfirskriftina
Sterkar konur í leiklist. Súsanna mun
fjalla um starf gagnrýnandans og
hvert hún telji hlut-
verk hans vera og
Hallfríður um
póstdramatískt
leikhús og þróun
í sviðslistum.
Frekari upp-
lýsingar eru
á tjarnar-
bio.is.
Sterkar konur í leik-
list í Tjarnarbíói
Á miðvikudag Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Skýjað með köfl-
um á Norðausturlandi, annars skúrir og síðar él. Hiti 1 til 6 stig en
um frostmark um kvöldið. Á fimmtudag Norðlæg átt, 8-15 m/s.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða
slyddu á Suður- og Vesturlandi 15-23 m/s og slydda en síðar
rigning á Suður- og Vesturlandi. Hlýnandi veður í bili.
VEÐUR
Valsmenn náðu á ný
tveggja stiga forskoti í Ol-
ís-deild karla í gærkvöld
með því að sigra FH,
31:28. Haukar settu strik í
reikning ÍR-inga og kom-
ust í fimmta sætið með
sigri á Ásvöllum, 29:24.
HK vann langþráðan sigur,
eftir tíu tapleiki í röð, og
eygir enn von um að
halda sér í deildinni eftir
að hafa lagt Fram að velli,
32:25. »2-3
Valur náði tveggja
stiga forystu á ný
Lið sem ná ekki að hafa lágmarks-
hemil á Justin Shouse tapa næsta
örugglega. Fjölni tókst það ekki gegn
Stjörnunni í gærkvöld, Shouse
lék lausum hala í Grafar-
voginum og Stjarnan vann
sannfærandi sigur í viður-
eign liðanna, 94:82, í Dom-
inos-deild karla í körfu-
knattleik. Stjörnumenn
vita líklega manna best
að þetta var ekki
þeirra besti leikur
en alveg stórundar-
legt hversu auðveld-
ur sigurinn var. »2
Shouse lék lausum
hala í Grafarvoginum
Óhætt er að segja að samþykkt árs-
þings KSÍ á tillögu um jöfnun ferða-
kostnaðar marki tímamót í sögu
knattspyrnunnar í landinu. Mikill
ferðakostnaður hefur verið mörg-
um liðum, sérstaklega af lands-
byggðinni, þungur baggi en nú er
komið vel á móts við lið á borð við
Fjarðabyggð, BÍ/Bolungarvík, Ein-
herja og Völsung. »4
Jöfnun ferðakostnaðar
markar tímamót
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Um næstu mánaðamót hefst ein-
staklingsþjálfun í handknattleik fyr-
ir 14 ára og eldri hjá Handknatt-
leiksakademíu Íslands. Ágúst
Jóhannsson, annar eigandi akademí-
unnar, veit ekki til þess að þessi val-
möguleiki hafi áður verið fyrir hendi
í handbolta hérlendis með þessum
hætti en hugmyndin er fyrst og
fremst sótt til Danmerkur og Nor-
egs.
Ágúst segir að akademían hafi
haldið 15 námskeið til þessa og fullt
hafi verið á þeim öllum. Eftirspurn
eftir einkaþjálfun hafi verið tölu-
verð, meðal annars frá leikmönnum
í meistaraflokki, og þau hafi ákveðið
að koma til móts við metnaðarfulla
krakka sem vilja ná lengra í íþrótt-
inni. „Viðbrögðin hafa enda verið
mjög góð, fín skráning bæði hjá
strákum og stelpum,“ segir hann.
Markviss uppbygging
Námskeiðið felur meðal annars í
sér fundi með þjálfara og átta tíma í
sal í Víkinni, þar sem æfingarnar
eru sérsniðnar fyrir viðkomandi
leikmann. Á fyrsta fundi verður far-
ið yfir það sem leikmaðurinn telur
að þurfi að bæta og unnið verður út
frá því. Ágúst leggur áherslu á
tækni- og skotæfingar og fer yfir
styrktaræfingar og fleira. Einn til
þrír geta verið í hverjum tíma. „Við
höfum gengið með þetta í maganum
í nokkurn tíma,“ segir Ágúst. „Við
vinnum hægt og rólega en mark-
visst að uppbyggingunni.“ Hann
leggur áherslu á að í einstaklings-
þjálfun geti þjálfarinn einbeitt sér
að einum leikmanni, sem fái þar af
leiðandi eins mikið og mögulegt er
út úr æfingunum. Það sé ekki ger-
legt á hefðbundnum æfingum hjá fé-
lagsliðum.
Ágúst bendir á að brottfall sé
töluvert í íþróttum og akademían
hafi meðal annars verið stofnuð í
þeim tilgangi að sporna við brottfalli
stúlkna í handbolta. Námskeiðin til
þessa hafi því að mestu verið fyrir
stúlkur og gjarnan í tengslum við
landsliðsverkefni. Þá hafi landsliðs-
menn komið í heimsókn auk þess
sem þátttakendur hafi fengið að
hlusta á áhugaverð erindi í sam-
bandi við íþróttina. Æfingarnar hafa
verið á morgnana áður en skólarnir
byrja og svo um helgar og verður
fyrirkomulagið svipað í einstaklings-
þjálfuninni. Þó verði tímasetning
ákvörðuð í samráði við viðkomandi
einstaklinga, því það sem henti ein-
um þurfi ekki að henta öðrum.
„Þetta verkefni er fyrir metn-
aðarfulla leikmenn, sem vilja taka
næsta skref og hafa tök á því,“ segir
Ágúst.
Aðstoða við næsta skref
Bjóða upp á
einstaklingsþjálf-
un í handbolta
Morgunblaðið/Golli
Þjálfarar Ágúst Þór Jóhannsson og Rakel Dögg Bragadóttir hafa lengi unnið saman í handboltanum.
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í handknattleik og
þjálfari karlaliðs Víkings, og Rakel
Dögg Bragadóttir, fyrrverandi fyr-
irliði landsliðsins, stofnuðu Hand-
knattleiksakademíu Íslands í apríl
2012. Akademían skipuleggur
handknattleiksnámskeið fyrir
stelpur og stráka og býður upp á
afreksþjálfun með það að mark-
miði að bæta tækni og leikskilning
og kynna afreksmannaþjálfun og
afreksmanna-æfingaumhverfi fyrir
leikmönnum.
Einstaklingsþjálfun fyrir ung-
linga er nýtt verkefni hjá Hand-
knattleiksakademíunni og um
páskana verður boðið upp á annað
námskeið fyrir stráka og stelpur
auk þess sem fyrirhugað er að
bjóða upp á námskeið á lands-
byggðinni í sumar. Öll námskeið
eru auglýst á heimasíðunni (hai.is)
og fésbókinni.
Stefnan sett á landsbyggðina
HANDKNATTLEIKSAKADEMÍA ÍSLANDS ÞRIGGJA ÁRA