Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.02.2015, Blaðsíða 6
Brian Williams, fréttamaður oghelsta þuli frétta hjá banda-rísku sjónvarpsstöðinni
NBC, hefur verið sendur í launa-
laust sex mánaða leyfi frá störfum
eftir að í ljós kom að sagði rangt
frá þegar hann lýsti atviki, sem
hann lenti í meðan á Íraksstríðinu
stóð. Williams sagði að hann hefði
verið um borð í þyrlu, sem varð að
lenda eftir að flugskeyti var skotið
á hana. Hið rétta mun vera að
hann var í þyrlu, sem flaug á eftir
þyrlunni, sem ráðist var á. Byssu-
kúlum mun hafa verið skotið á
þyrluna, sem Williams var í, og
sagði samferðamaður hans að þetta
hefði verið skelfileg reynsla þótt
ekki hefði þurft að lenda þyrlunni.
Í frétt um málið í New York
Times var talað um að Williams
nyti mikillar virðingar vestan hafs
og sagt að hann nyti sambæri-
legrar virðingar og forverar á borð
við Walter Cronkite, Peter Jenn-
ings og Tom Brokaw.
Trúverðugleiki hrapar
Ekki er víst hvort þetta atvik verð-
ur til þess að Williams verður lát-
inn hætta störfum. Í Bandaríkj-
unum fer fram mæling, sem kalla
mætti trúðverðugleikavísitölu. Áður
en Williams baðst afsökunar á að
hafa farið rangt með í lýsingum
sínum á atvikinu var hann í 23.
sæti á listanum yfir þá ein-
staklinga, sem njóta mests trausts í
Bandaríkjunum. Á mánudag var
hann í sæti 835.
Trúðverðuleiki skiptir máli fyrir
mann í stöðu Williams og það er
mikið í húfi fyrir sjónvarpsstöðina,
sem á í harðri samkeppni við stöðv-
arnar ABC og CBS. Árið 2013 voru
auglýsingatekjur NBC af kvöld-
fréttatímanum þar sem Williams er
í forsæti 200 milljónir dollara. Það
ár voru tekjur ABC af sínum
kvöldfréttatíma 170,6 milljónir doll-
ara og tekjur CBS 149,9 milljónir
dollara samkvæmt samantekt
Kantar Media, sem er í eigu mark-
aðsþjónustufyrirtækisins WPP.
Williams hefur oft sagt söguna af
þessari reynslu sinni og hún hefur
breyst í tímans rás. Í grein í
blaðinu The New York Times er
talað um að Williams hafi verið
kallaður lygari fyrir að ýkja hlut
sinn í atvikinu, en sérfræðingar um
minnið sjái málið í öðru ljósi. Til-
fellið sé skýrt dæmi um það hvern-
ig minningar geti breyst og teygst
eftir því sem frá atburðum líður.
„Allt þetta fólk segir að mað-
það hefur reynst ótrúlega auðvelt.
Læknirinn og taugasérfræðing-
urinn Oliver Sacks skrifaði grein í
tímaritið New York Review of Bo-
oks fyrir tveimur árum um op-
inberun sem hann varð fyrir eftir
að hann skrifaði bernskuminningar
sínar, sem komu út 2001.
Falskar minningar
Þar lýsti Sacks tveimur sprengju-
árásum í London veturinn 1940-
1941. Í annarri þeirra féll sprengja
í garð við hliðina á heimili hans án
þess að springa. Íbúar í nærliggj-
andi húsum læddust á brott í nátt-
fötunum og höfðu ekki hugmynd
um hvort sprengjan myndi springa
eða hús þeirra myndu standa þegar
þau sneru aftur næsta dag.
Í hinu tilfellinu féll eldsprengja
fyrir aftan heimili hans og brann af
miklum krafti. Hann lýsir því
hvernig faðir hans og bræður hafi
reynt að ausa vatni á eldinn, en allt
hafi komið fyrir ekki.
Nokkrum mánuðum eftir að bók-
in kom út ræddi hann árásirnar við
bróður sinn, sem sagði honum að
fyrri árásina myndi hann rétt, en
hann hefði ekki verið viðstaddur þá
síðari, heldur í heimavistarskóla
ásamt sér. Hins vegar hefði eldri
bróðir þeirra skrifað þeim bréf og
lýst árásinni í þaula. Sacks lifði sig
greinilega svo inn í frásögn bróður
síns að þegar frá leið fannst honum
hann hafa upplifað árásina.
Manninum hættir til að ýkja og
gera meira úr eigin hlut, en minnið
vinnur einnig úr upplýsingum og
upplifunum með sínum hætti, sigt-
ar og eimar, og getur haft áhrif á
hvernig við tileinkum okkur hlut-
ina.
Minnið
leikur frétta-
hauk grátt
BANDARÍSKI FRÉTTAMAÐURINN BRIAN WILLIAMS
ER Í VANDRÆÐUM AF ÞVÍ AÐ HANN SAGÐI RANGT
FRÁ REYNSLU SINNI Í ÍRAKSSTRÍÐINU. HANN ER
VÆNDUR UM AÐ HAFA REYNT AÐ HEFJA SIG Á
STALL MEÐ LYGUM, EN SÉRFRÆÐINGAR SEGJA
LÍKLEGT AÐ MINNIÐ HAFI LEIKIÐ HANN GRÁTT.
Brian Williams, fréttamaður hjá NBC, viðurkenndi 4. febrúar að hann hefði ekki verið um borð í þyrlu, sem hann sagð-
ist hafa flogið með þegar gerð var árás á hana í Írak fyrir 12 árum. Hann hefði verið í annarri þyrlu skammt á eftir hinni.
AFP
urinn sé lygari og dæmir hann fyr-
ir vísvitandi blekkingar án þess að
velta öðrum kosti fyrir sér – að
hann hafi þróað með sér falska
minningu,“ segir Elizabeth Loftus,
sem er leiðandi í minnisrann-
sóknum og prófessor í lögum og
minnisvísindum við Kaliforníuhá-
skóla í Irvine. „Þetta ætti að kenna
okkur og veitir tækifæri til að
koma á framfæri upplýsingum um
hið mótanlega eðli minnisins.“
Loftus hefur meðal annars gert
tilraunir með að koma fölskum
minningum fyrir í huga fólks og
HEIMURINN
DÚSSLAN
KMINS Frakklands og ÚRússlands, Þýskaland
á funukkustunstandið í Úkraínu í fimmtánufunduð
tudavikudag og stóð fram áófstsem h
rásá gildi á miðnætti álévar vopnah
m eftir að samkomulagið var gert
UE æðingar undfu
hverjum
a, semarkn
æður ímst
að bera vitni
er forseta
nokkrum k sök ð hafa
hylmt yfir 1 4.
U
FÐHÖ arð á suður afr
þi orseti Suður-Afrík
gmenn trufluðu
a“„borga peningan
eyti
úr
NORÐUR-KÓR
ONG d í Norður-KóreuStjórnvöl
r frekar óþjál, um allt milli himinsólitísk slagorð, mörg hve
til hernaðarhyggju og lofsöngs umog jarðar, frá svepparækt,
Kim Jong-un andsins, og fjölskyldu hans. „Breytum la, leiðtoga l ndi okkar í land
agorðið. „Ef óvinurinn vogar sérsveppa!“ hljóðar eitt sl ð st inn í landið
a manns! hljómar annað og“eyðið honum til síðast ð er konum
agt að vera „traustir aðstoðyfirmanna í hernum s enn eiginmanna sinna“.
Minnið er mikilvægt þegar treysta þarf á vitn-
isburð sjónarvotta í sakamálum. Oliver Sacks
segir í grein sinni í New York Review of Books
frá skrifum Daniels Schachters um hvernig
minnið getur brenglað. Schachter segir í bók
sinni Searching for Memory frá að í „nýlegri
greiningu á fjörutíu málum þar sem sakleysi
fjörutíu ranglega fangelsaðra manna kom í ljós með DNA--
sönnunargögnum hefði í 36 tilvikum (90%) verið um að ræða að
sjónarvottur hefði ranglega borið kennsl [á hinn dæmda]“.
SJÓNARVOTTAR
* „Hrein samviska er óyggjandi merki um lélegt minni.“Bandaríski rithöfundurinn Mark Twain.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14.2. 2015