Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 1
Sorg Námsmenn í þýska bænum Haltern am See
syrgja þá sem fórust þegar þotan hrapaði.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
„Þetta er sorglegasti dagurinn í sögu bæjarins.
Allir eru í losti í bænum,“ sagði Bodo Klimpel,
bæjarstjóri Haltern am See, heimabæjar sextán
þýskra unglinga sem fórust þegar farþegaþota
þýska flugfélagsins Germanwings hrapaði í Ölp-
unum í Suður-Frakklandi í gær. Í þotunni voru
144 farþegar, þeirra á meðal tvö smábörn, auk sex
manna áhafnar, og enginn komst lífs af. Flestir
þeirra sem fórust voru frá Þýskalandi og Spáni.
Ekki er vitað hvað olli því að þotan hrapaði í
Ölpunum á leiðinni frá Barcelona til Düsseldorf.
Björgunarmenn sigu úr þyrlu á slysstaðinn sem er
á bröttu og mjög torförnu fjalli. Þeir fundu flug-
rita sem gætu gefið mikilvægar vísbendingar um
hvað gerðist, en talið er að rannsóknin taki nokkra
mánuði.
Aðstoðarforstjóri Lufthansa, móðurfélags Ger-
manwings, sagði að gengið væri út frá því að um
flugslys væri að ræða. Ekkert hefði komið fram
sem benti til hryðjuverks.
Þotan splundraðist og stærsta brakið var á
stærð við bíl, að sögn sjónarvotta. „Ekkert er eftir
nema brak og lík,“ sagði franski þingmaðurinn
Christophe Castaner sem fór í flugferð yfir slys-
staðinn. „Þetta er hryllingur – flugvélin gereyði-
lagðist.“
Að sögn vefútgáfu Spiegel í gærkvöldi var
nokkrum flugferðum Lufthansa og Germanwings
frá Düsseldorf, Stuttgart og Berlín aflýst vegna
þess að áhafnirnar veigruðu sér við því að fljúga
eftir slysið. Haft var eftir flugfarþegum að þotur
flugfélaganna hefðu verið kyrrar við hliðin þótt
þær væru tilbúnar til brottfarar.
Gereyðilagðist Björgunarmenn síga úr þyrlu í grennd við slysstaðinn en á myndinni til hægri sést brak úr þotunni sem splundraðist þegar hún hrapaði.
Allir eru í losti í bænum
150 manns fórust þegar þota hrapaði í Ölpunum, þeirra á meðal sextán þýskir
unglingar sem höfðu verið í námsferð á Spáni Ekki er vitað hvað olli slysinu
MEkkert eftir nema brak og lík »17
AFP
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 71. tölublað 103. árgangur
ÁTRÖSKUN ER
ENN MIKIÐ
FEIMNISMÁL
VAXANDI NEYÐ
Á ÁTAKA-
SVÆÐUM
HLUTGERVING
KVENMANNSBÚKA Í
KORSELETTUM?
MANNÚÐARMÁL 14 LÍFSTYKKI NÚ OG ÁÐUR FYRR 10MIN LILLA SYSTER 31
Forsvarsmenn Silicor Materials og
SMS Siemag AG undirrituðu í
gær samning um kaup fyrrnefnda
fyrirtækisins á tækjabúnaði fyrir
sólarkísilverksmiðju sem stefnt er
að því að rísi á
Grundartanga.
Heildarverðmæti
samningsins
nemur 70 millj-
örðum króna en
fjárfesting í
tengslum við
uppbyggingu
verksmiðjunnar
mun verða í
kringum 120
milljarðar. Stærsti eigandi Silcor
Materials er Hudson Green
Energy (HGE) en meðal fjárfesta
sem standa að baki verkefnum
fyrirtækisins eru norrænir lífeyr-
issjóðir sem leggja áherslu á fjár-
festingu í umhverfisvænum fyrir-
tækjum.
19.000 tonna afköst á ári
Útflutningsverðmæti kísilsins
sem verksmiðjan mun framleiða
er áætlað 50-60 milljarðar króna
en heildarafkastageta hennar er
áætluð 19 þúsund tonn á ári. For-
svarsmenn félagsins segja að nú
þegar hafi sala á 14 þúsund tonn-
um á ársgrundvelli verið tryggð
en framleiðslan mun að mestu
fara til Kína, Suður-Kóreu og
Taívan.
Neil Auerbach, stofnandi og for-
stjóri Hudson Green Energy, kom
til landsins í tilefni undirritunar
samningsins við SMS Siemag AG
en hann hefur um árabil stýrt
stórum fjárfestingaverkefnum á
sviði umhverfisvænnar og endur-
nýjanlegrar orku. Hann segir að
stirð samskipti Kína og Bandaríkj-
anna hafi m.a. valdið því að verk-
smiðju fyrirtækisins hafi verið val-
inn staður á Grundartanga. » 16
Færast
nær upp-
byggingu
Búnaður keyptur
fyrir 70 milljarða
Neil Auerbach
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samningur SORPU við danska fé-
lagið Aikan um uppbyggingu gas- og
jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi án út-
boðs fullnægði ekki skilyrðum laga
um opinber innkaup. Þarf SORPA
því að bjóða út framkvæmdina.
Þetta er niðurstaða úrskurðar
kærunefndar útboðsmála en kær-
endur voru Íslenska gámafélagið og
Metanorka. Töldu félögin tvö að
„tækni Aikan uppfyllti ekki þá
grunnforsendu sem varnaraðili hefði
sjálfur sett, að um væri að ræða
reynda og prófaða tækni“. Þvert á
móti sé tekið fram í skýrslu Mann-
vits, sem var SORPU til ráðgjafar,
að einn af ókostum tækni Aikan sé
hversu lítil reynsla sé komin á hana.
Björn H. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri SORPU, segir sam-
keppnisaðila Aikan ekki hafa fylgst
með birtingu gagna um málið. „Við
töldum okkur vera í góðri trú. Við
auglýstum þetta á Evrópska efna-
hagssvæðinu en fengum engin við-
brögð. Það var bókað í fundargerð
stjórnar SORPU að mér var falið að
semja við Aikan og það komu engar
athugasemdir,“ segir Björn og vísar
til keppinauta Aikan. Athugasemdir
hafi ekki komið „fyrr en seint og um
síðir“. „Það er eins og menn hafi ver-
ið sofandi,“ segir hann.
Stjórnendur kanadíska fyrirtæk-
isins Herhof Canada Technik höfðu
átt í viðræðum við SORPU í rúm tvö
ár þegar stjórn SORPU tók ákvörð-
un um að semja við danska félagið.
Edward G. Hole, forstjóri HCT,
fer hörðum orðum um stjórn
SORPU og sakar hana um að hafa
gengið fram af óheiðarleika. Eini til-
gangur viðræðna SORPU við HCT
hafi verið að afla gagna til að styrkja
samningsstöðuna við Aikan. »12
Ólögmætur samningur án útboðs
Kærunefnd útboðsmála úrskurðar að SORPA hafi ekki farið að lögum í samningi um jarðgerðarstöð
Milljarða framkvæmd
» SORPA og Aikan áætluðu
heildarvirði framkvæmdar við
gerð gas- og jarðgerðarstöðv-
arinnar um 2,7 milljarða króna.
» Stöðin á að þjóna öllu
höfuðborgarsvæðinu.