Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 18

Morgunblaðið - 25.03.2015, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það vakti at-hygli í lokfebrúar þegar stjórnvöld í Nígeríu ákváðu að fresta forseta- kosningunum sín- um fram til næsta laugardags, 28. mars, af öryggisástæðum vegna árása íslömsku hryðju- verkasamtakanna Boko Ha- ram. Á þeim tíma var allt eins gert ráð fyrir að kosningunum yrði aftur frestað, þar sem fátt benti til að samtökin myndu láta undan síga. Annað hefur komið á dag- inn. Her Nígeríu, með aðstoð frá nágrannaríkjum Nígeríu og víðar að, hefur náð mark- verðum árangri í baráttunni gegn Boko Haram. Tekist hefur að frelsa mörg af þeim svæðum sem samtökin höfðu lagt undir sig, en þar blasir gjarnan við eyðileggingin ein. Engu að síður hefur verið ákveðið að óhætt sé að láta kosningarnar fara fram, og Goodluck Jonathan, forseti Nígeríu, segir að innan mán- aðar muni samtökin hafa verið brotin á bak aftur. Það er hugsanlega til marks um hversu vel hefur gengið gegn Boko Haram, að yf- irmaður samtakanna sendi frá sér yfirlýsingu um daginn, þar sem hann gekkst undir vald „kalífans“ í Ríki íslams, og sagði samtök sín vera orðin hluta af hinni stærri heild. Yf- irlýsingin sem slík er þó að lang- mestu leyti tákn- ræn, því að ólík- legt er að Ríki íslams muni geta komið sínum nýja bandamanni til aðstoðar. En þó að vel hafi gengið upp á síðkastið í baráttunni við ill- virkjana væri óráð að hrósa sigri of snemma. Fyrir það fyrsta er ástandið í Nígeríu enn þrungið óvissu, og engin leið að segja fyrir um hversu langan tíma það mun taka að kveða niður Boko Haram. Þá hafa þær aðstæður sem ýttu undir framgang samtakanna ekki breyst nema að litlu leyti, og enn hefur lítið frést af þeim sem samtökin hafa rænt. Þá er því haldið fram að herlið Nígeríu hafi ekki átt stærstan þátt í þeim árangri sem náðst hafi nú. Þar hafi er- lendir málaliðar frá Austur- Evrópu og Suður-Afríku átt stóran þátt. Nígerísk stjórn- völd neita þessu, en óvissan um getu nígeríska hersins veldur engu að síður áhyggj- um í nágrannaríkjum, sem vilja ekki þurfa að halda úti herliði til lengri tíma þar til stöðugleiki finnst á ný. Enn er því óvissa um framtíð Nígeríu og hvernig sem kosningarnar fara er ljóst að sigurvegarans bíður áframhaldandi barátta við hryðjuverkamenn. Boko Haram hefur látið undan síga í aðdraganda kosn- inganna í Nígeríu} Kosið í skugga stríðsátaka Sjaldan er einbáran stök er stundum haft á orði og á sú at- hugasemd sann- arlega við þegar kemur að klúðri við framkvæmd nýafstaðins landsfundar Sam- fylkingarinnar. Á fundinum var kosið raf- rænt sem tafði birtingu úrslita verulega. Ekki nóg með það heldur kom í ljós að einhver atkvæðanna skiluðu sér með villumeldingu, sem veldur vafa um niðurstöðuna, ekki síst þegar haft er í huga að ein- ungis eitt atkvæði skildi fram- bjóðendur. En þessi vafi er ekki sá eini. Nú er komið á daginn að í að minnsta kosti einu flokks- félagi, Samfylkingarfélaginu í Reykjavík, klúðraðist boðun á fundinn svo illilega að með ólíkindum er. Þeir, sem boðið var að taka þátt í landsfund- inum og varð það á, sem flestum þætti eðlilegt, að svara boðinu, voru samstundis, en óafvitandi, sviptir kosningarétti á fundinum. Aðrir, sem ætluðu sér ekki að taka þátt í fundinum, voru hins veg- ar skráðir til leiks. Fyrir Samfylkinguna og for- mann hennar, sem situr nú í krafti eins atkvæðis meiri- hluta, er þetta vægast sagt óþægilegt enda töluverðar lík- ur á að hefði framkvæmd fundarins og kosninganna ver- ið með eðlilegum hætti væri annar formaður í flokknum. Ef Samfylkingin vill láta taka sig alvarlega sem stjórn- málaflokkur verður hún að finna farsæla lausn á þessu furðulega kosningaklúðri, ekki síst þar sem það er ekki það fyrsta sem upp kemur á lands- fundum flokksins. Einhver takmörk hljóta að vera fyrir því hve illa er hægt að standa að fund- um og kosningum} Yfirgengilegt klúður E itt sinn kom ég að föður mínum þar sem hann sat og staupaði sig á frönsku eplabrennivíni sem honum hafði áskotnast. Hann var orðinn hreifur vel og kátur, vildi ræða um Beethoven og Goethe en fyrst og fremst um eplabrennivínið sem hann sagði hinn ágætasta mjöð, svo góðan reyndar að hann lýsti áhuga sínum að breyta nafni sínu, vildi að hann, og fjölskyldan öll reyndar, tæki upp hið gagnmerka nafn Calvados: Árni Calvados, eða enn betra: Árni von Calvados, sagði hann, það færi þér vel. Daginn eftir var þessi nafngift gleymd, en mér dettur hún þó í hug öðru hvoru, til að mynda þá sjaldan ég dreypi á eplabrennivíni og svo nú þegar lagt hefur verið fram frumvarp um að leggja af mannanafnanefnd og eftirlit með nöfnum manna almennt enda þá hægur leikur að taka upp hvaða nafn sem er. En hvað verður þá um samhengið í íslensku nafna- kerfi? spyr eflaust einhver, er ekki eftirsjá að íslensku föður- og móðurnafnakerfi? Víst væri skaði ef það hyrfi, en það myndi meira týnast, til að mynda merking nafna, Eins skemmtileg og Völuspá annars er aflestrar stóð þó alltaf í mér kafli einn í henni sem kallast dvergatal áhugasömum til hægðarauka, en í 10. til 16. vísu kvæðis- ins er tilurð dverga lýst og nöfn þeirra talin, 61 nafn (en tvö reyndar tvítekin). Sum nöfnin kannast þeir við sem lesið hafa Hobbitann og Hringadrottins sögu Tolkiens, eða séð hinar skelfilegu myndir sem gerðar voru eftir þeim, en það var ekki fyrr en ég las Völuspá aftur fullorðinn að ég sá hversu listi- lega heiti dverganna eru smíðuð: Bömbur, Bívör, Bávör, Alþjófur, Horníbori, Durinn Glói, Dólgþrasir, Hepti og Hannar, svo dæmi séu tekin: Öll nöfnin vísa til iðnar viðkomandi eða eðlis. Sama má segja um grúa íslenskra nafna, á bak við þau ótalmörg er kenning, merking eða vísun. Kannski er það ekki svo mikill skaði þó að merking gamalla orða týnist, það er alltaf að gerast, en það kvikna fleiri spurningar eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær þar sem sagt var frá spurningum Þjóðskrár vegna frumvarpsins sem ég nefni í upphafi. Hagræðið af breytingunni er þó meira en gallarnir, enda sé ég mér leik á borði: Í þrotlausri sókn minni eftir frægð (sem hefur aðeins dugað til að gera mig alræmdan) hef ég oft velt því fyrir mér hvort svarið sé ekki að skipta um nafn. Þar er þó hængurinn, því í mér togast á löngun að vera ógleyman- legur og að vera ósýnilegur. Svar við þeim vanda gæti verið að velja nafn sem er í senn eftirminnilegt og ekki hægt að muna. Hvernig líst þér til að mynda á Ákrzfspt von Calvados? Við fyrstu sýn finnst þér kannski það sé ekki hægt að bera það fram, en það er í raun einfalt: Hnerri von Calvados. arnim@mbl.is Ákrzfspt von Calvados Pistill Nefn þig öðru nafni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Möguleg áhrif loftslags-breytinga á hafstraumaí Norður-Atlantshafivalda mönnum nokkr- um áhyggjum. Einkum vegna þess að draga kunni úr styrk Golf- straumsins sem flytur hlýjan sjó að ströndum Íslands og víðar. The Washington Post fjallaði á mánudag um nýbirta grein Stefans Rahmstorf og fleiri vísindamanna. Rahmstorf starfar við loftslagsrann- sóknastofnunina PIK í Potsdam. Greinin birtist í vefútgáfu vís- indaritsins Nature. Í inngangi henn- ar kemur fram að mögulegar breyt- ingar á hringrás sjávar í Atlantshafi valdi óvissu um þróun loftslags í framtíðinni. Höfundarnir benda á að hitamælingakort frá 20. öld sýni áberandi kólnun á ákveðnu svæði í norðanverðu Atlantshafi. Sam- kvæmt korti sem fylgir greininni er þessi kaldi blettur á hafinu suður af Grænlandi og Íslandi og teygir sig langt í suður og eins teygir köld tunga sig norður milli Íslands og Grænlands. Greinarhöfundarnir telja ýmis- legt benda til þess að kólnunina megi rekja til þess að dregið hafi úr hringrás sjávar í Atlantshafi á 20. öld og einkum eftir 1970. Hringrásin virðist þó hafa náð sér að hluta á strik aftur eftir 1990. Þá skrifa þeir um möguleg áhrif bráðnunar Græn- landsjökuls sem geti stuðlað að veik- ingu hringrásarinnar í hafinu. Ekki róttækar breytingar Héðinn Valdimarsson, haffræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, sagði að mikil umræða hefði verið á meðal fræðimanna um möguleg áhrif loftslagsbreytinga á sveiflur í hafinu. Sú atburðarás sem Stefan Rahmstorf og félagar lýsi í greininni í Nature sé ein niðurstaða. Vænt- anlega eigi menn eftir að styrkja þá kenningu eða andmæla henni. Héðinn var í gær staddur á fundi haffræðinga sem fylgjast með Norður-Atlantshafinu. Hann sagði að kollegi hans, sem hefði með Golf- straumssvæðið við austurströnd Bandaríkjanna að gera, hefði nefnt í gærmorgun að hann teldi ekki víst að breytingar hefðu orðið á Golf- straumnum. Héðinn sagði að Hafrannsókna- stofnun hefði mælt hita og seltu sjávar undanfarna áratugi. Hann taldi einnig nauðsynlegt að mæla meira en yfirborðshitann til að fylgj- ast með ástandi sjávar. Síðustu tvo áratugi hefðu ekki sést merki um aukið ferskvatn í hafinu fyrir utan síðustu tvö árin. „Síðustu tvo áratugi hafa frekar sést merki um hærri seltu sjávar og hærri hita hvað okkur varðar,“ sagði Héðinn. Hann kvaðst ekki enn hafa heyrt af neinu sem bendi til þess að rótttækar breytingar séu að verða á hringrás hafsins. Héðinn sagði að Stefan Rahm- storf hefði fyrir nokkrum árum fremur slegið á en að auka ótta manna vegna þess sem kynni að ger- ast ef aukið ferskvatn rynni í sjó á norðurslóðum og drægi úr djúp- vatnsmyndun. Sumir útmáluðu það þá næstum eins og endi veraldar. Rahmstorf var þá fremur á þeirri skoðun að svæðið þar sem djúp- vatnið yrði til myndi færast til og hringrásin halda áfram. „Það getur auðvitað ýmis- legt gerst á næstu áratugum en við erum ekki endilega í þeirri stöðu nú að segja nákvæmlega fyrir um hvað gerist, þrátt fyrir þau líkön sem við höfum,“ sagði Héðinn. Óttast að hægi á færibandi hafsins Morgunblaðið/RAX Grænlandsjökull Hlýnandi loftslag hefur leitt til aukinnar bráðnunar jökul- sins. Menn óttast áhrif þessarar miklu bráðnunar á hafstraumana. Golfstraumurinn ber hlýjan og saltan sjó úr suðri og norður í höf. Ísland, Noregur og önnur lönd við austanvert Norður- Atlantshaf hafa notið góðs af upphitun hafsins sem Golf- straumurinn veldur. Salti sjórinn kólnar þegar hann kemur norður í höf og sekkur þar til botns vegna eðlis- þyngdar sinnar. Þannig mynd- ast kaldsjávarstraumur sem fer síðan suður hafdjúpin og þann- ig viðhelst hringrásin í hafinu. Mikil bráðnun íss á norður- slóðum vegna hlýrra loftslags leiðir til þess að ferskvatn streymir út í hafið. Það bland- ast saltríka sjónum sem við það verður eðlisléttari en hann hefði ella orðið. Léttari sjór sekkur ekki jafn greiðlega og væri hann salt- ari og dregur það úr kaldsjávar- straumnum suður á bóginn. Golfstraum- urinn HRINGRÁS HAFSINS Héðinn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.