Morgunblaðið - 25.03.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.03.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015 Allt sem þú vilt vita um heilsu, útivist og mann- rækt, framreitt af Sigmundi Erni á einkar áhugaverðanmáta. LÍFSSTÍLL www.hringbraut.is við miðlum af reynslu AF TÓNLIST Heiða Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Annað undanúrslitakvöldMúsíktilrauna 2015 fórfram í Hörpu á mánudags- kvöldið og leikgleðin og fjöl- breytnin hélt áfram frá kvöldinu áður og greinilegt að mikla grósku er að finna í flestum geirum tónlist- ar um þessar mundir. Að þessu sinni komu ekki öll böndin tíu sem spiluðu af Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Suðurland kom þar sterkt inn með þrjá kandidata og fyrsta band á svið, Laser Life, var frá Egils- stöðum. Í Laser Life var bara einn meðlimur og tónlistin var blanda af gítarrokki og raftónlist. Hljómur sveitarinnar var fenginn úr tölvu- leikjum, en fyrra lagið hljómaði þó fyrst og fremst eins og litli frændi Apparats Organ Kvartetts, mjög flott útfært.    The Roulette frá Selfossi tókvið og skartar framúrskarandi trommuleikara. Bandið er þétt og ákaflega vel spilandi en það þarf eitthvað að endurskoða sönglínur með það að markmiði að söngur og tónar skapi heilsteyptari mynd. Kröstpönkbandið Þegiðu tók við og átti frábært kvöld með óvæntum uppákomum eins og samlokuáti og hársnyrtingu á sviði. Hljómsveitin spilar einhverskonar kvikmyndapönktónlist með frönsku ívafi og söngvari lék á als oddi á harmónikku og slagverk en svo var líka saxófónleikari sem átti sinn þátt í skemmtilegu sándi bandsins.    Þá var komið að GasolineSpills frá Selfossi, sem bar það með sér að hafa ekki starfað lengi, og meðlimir eiga líklega bæði eftir að finna sig betur í lagasmíðum og spila sig saman, en söngvarinn er með skemmtilega hráan og blús- aðan tón í rödd sinni sem var gam- an að hlusta á. Síðust á svið fyrir hlé var Electric Elephant og raf-fíllinn var svo sem ekki að finna upp ranann, en spilaði vel og skilaði sínu fönk- poppi ágætlega.    Eftir örlitla kaffipásu var aft-ur keyrt af stað og fyrstir eft- ir hlé voru tveir bræður sem vinna Talið í tilraunir aftur While My City Burns Ætluðu að keyra af stað af ákveðni og festu en áttu í vandræðum með hljóð. saman að tónlist undir nafninu Omotrack. Hljóðheimur var fersk blanda af gíturum og synthum og tónlistin var einhverskonar lo-fi- rafpopp. Einstaklega flott fram- vinda í lagasmíðunum og áhuga- verð notkun á tveimur röddum gerðu þetta að úrvalsbandi sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.    While My City Burns ætlaðiað keyra af stað af ákveðni og festu en átti í staðinn í vandræð- um með hljóð. Hljómborð virtist ekki passa vel inní og gítarar voru lægri en kraftmikið rokkið bauð uppá. Það geta því miður allir átt vont kvöld, og þetta var eitt slíkt hjá þessari sveit. Kraðak tók við sviðinu og þar var að finna einu tónlistarkonu kvöldsins, sem söng og lék á raf- magnsgítar. Gítarinn hljómaði vel en söngurinn var verri og tónlistin sjálf einum of flöt og því fyrir vikið full-óeftirminnileg.    Síðasta Selfoss-bandið No Room For Another var að mínu mati það áhugaverðasta frá Suðurlandi þetta kvöldið. Sveitin lék nokkuð látlaust og lágstemmt rokk og sérstaklega var röddin í fyrra laginu góð og svo mynduðu kassa- og rafgítarar sannfærandi gítarheim, sem vinnur á. Kvöldinu lokaði Premium sem spilar flókið rokk með dularfullum útúrdúrum. Kannski mætti kalla tónlist þeirra stillt og vel upp alið þungarokk, því það inniheldur bæði fleti sem eru fágaðir og ögrandi. Band sem á heilmikið inni.    Niðurstaða kvöldsins var súað salurinn kaus Electric Elephant áfram í úrslit en dóm- nefndin kaus Kröstpönkbandið Þegiðu áfram. Þá eru undanúrslitin hálfnuð og það stefnir í að úr- slitakvöldið verði hið líflegasta og hin besta skemmtun. »KröstpönkbandiðÞegiðu tók við og átti frábært kvöld með óvæntum uppákomum eins og samlokuáti og hársnyrtingu á sviði. Premium Stillt og vel upp alið þungarokk sem inni- heldur bæði fleti sem eru fágaðir og ögrandi. Electric Elephant Spilaði vel og skilaði sínu fönk-poppi ágætlega. Salurinn kaus sveitina áfram í úrslit. Gasoline Spills Meðlimir eiga líklega bæði eftir að finna sig betur í lagasmíðum og spila sig saman. Laser Life Fyrra lagið hljómaði eins og litli frændi Apparats Organ Kvartetts og mjög flott útfært. No Room for Another Lék látlaust og lágstemmt rokk og sérstaklega var röddin í fyrra lagi góð. The Roulette Sveit með framúrskarandi trommuleik- ara, vel spilandi en þarf að endurskoða sönglínur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kröstpönkbandið Þegiðu Spilar einhvers konar kvikmynda- pönktónlist með frönsku ívafi og söngvari lék á als oddi. Omotrack Hljóðheimur var fersk blanda af gíturum og synthum og tónlistin var einhverskonar lo-fi-rafpopp. Kraðak Eina tónlistarkona kvöldsins söng og lék á rafmagnsgítar í hljómsveitinni Kraðak. Gítarinn hljómaði vel en söngurinn var verri. Músíktilraunir 2015

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.