Morgunblaðið - 25.03.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.03.2015, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 84. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. „Hefur ekkert með aldur að gera“ 2. Jolie fór í frekari aðgerðir 3. Allir um borð taldir af 4. Fundu fjölskylduna tæpu ári síðar »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dúettinn múm kemur fram í menn- ingarhúsinu Mengi í kvöld kl. 21 og leikur raftóna af fingrum fram við þýsku kvikmyndina Menschen am Sonntag frá árinu 1930. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í nýrri mánaðarlegri seríu þeirra Örvars Smárasonar og Gunnars Tynes þar sem þeir munu snara fram ferskum raftónum við áð- urnefnda kvikmynd með það að leið- arljósi að vera að lokum búnir að skapa nýja tónlist við myndina og sérstakan hljóðheim, eins og segir í tilkynningu. Tónleikasyrpan verði því e.k. verk í vinnslu. Hljómsveitin múm er þekkt fyrir nýjungagirni í nálgun sinni og flutningi á tónlist og vinnur nú um stundir að nýjum verkum sem leikin verða af Sinfóníuhljómsveit MDR í Leipzig. Menschen am Sonntag er fyrsta kvikmyndin sem bræðurnir Curt og Robert Siodamak leikstýrðu og hand- ritið skrifaði Billy Wilder. „Kvikmynd- in er ein síðasta mynd þögla tímabils- ins svokallaða og gefur sjaldgæfa innsýn í líf áhyggjulausra ungmenna í borg sem stuttu seinna varð hryllingi einræðis að bráð,“ segir um myndina í tilkynningu frá Mengi. Leika við Menschen am Sonntag í Mengi  Kvartett saxófónleikarans Ólafs Jónssonar leikur á tónleikum djass- klúbbsins Múlans í kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Kvartettinn mun leika frumsamda tónlist eftir Ólaf og valin lög ýmissa djassmeist- ara. Auk Ólafs skipa kvartettinn píanóleik- arinn Eyþór Gunn- arsson, Þorgrímur Jónsson bassaleikari og trymbillinn Scott McLemore. Kvartett Ólafs Jóns- sonar í Múlanum Á fimmtudag og föstudag Suðvestan 8-15 m/s, hvassast við suðvesturströndina og víða él, en léttskýjað norðaustanlands. Á laugardag Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma á Vestfjörðum, en annars hægari vestlæg átt og dálítil él. Fremur svalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-13 og skúrir eða slydduél vest- antil, en suðaustan 13-18 og slydda eða rigning fyrir austan. VEÐUR Gæti Aníta Hinriksdóttir komist í heimsklassa í ann- arri grein en 800 metra hlaupi? Sigurbjörn Árni Arngrímsson íþróttafræð- ingur veltir því fyrir sér í samtali við Morgunblaðið. Hann nefnir 1.500 m hlaup og 3.000 m hindrunarhlaup sem valmöguleika. Þjálfari Anítu segir þau einbeita sér að 800 metrunum, alla vega út næsta ár, og þá verði staðan tekin. »2-3 Á Aníta eftir að skipta um grein? Katrín Ómars- dóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu og leikmaður Liver- pool, er enn að glíma við höfuðmeiðsli sem hún varð fyrir á æf- ingu með Liverpool fyrir nokkr- um vikum. Katrín hef- ur verið með höfuð- verk og svima og þarf að fara gætilega. »1 Katrín með höfuðverk og svima „Ég er búinn að missa af mörgum leikjum vegna meiðsla og þetta tíma- bil hefur verið leiðinlegt og pirrandi. Vonandi er þessum kafla lokið og ég get komist á rétta braut,“ sagði knattspyrnumaðurinn Aron Jóhanns- son. Hann gæti í kvöld spilað sinn fyrsta leik fyrir bandaríska landsliðið frá því á HM í Brasilíu, á sínum gamla heimavelli í Danmörku. » 1 Aron snýr aftur með Bandaríkjunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Atli Vigfússon Laxamýri „Það hefur verið æðislegt að æfa þetta leikrit og það er mjög skemmti- legt að leika. Ég vildi endilega fá þetta hlutverk og ég hef mjög gaman af því að vera einhver annar heldur en ég er.“ Þetta segir Jón Aðalsteinn Her- mannsson, nemandi í 10. bekk, sem leikur Mikka ref í Dýrunum í Hálsa- skógi sem Litlulaugaskóli í Þingeyj- arsveit sýnir um þessar mundir í fé- lagsheimilinu á Breiðumýri. „Þetta er stærsta hlutverk sem ég hef fengið og auðvitað er textinn mik- ill sem þarf að læra. Lögin eru ekkert svo erfið og oft er sama laglínan,“ segir Jón Aðalsteinn sem er mjög ánægður með útkomuna eftir fyrstu sýninguna, en það var mikið hlegið og nemendum var klappað lof í lófa. Jón segir að það sé engu sleppt í leikritinu og öll atriðin séu tekin. Hann segir að fólk vilji ekki breyta miklu í þessu verki sem allir þekkja, en það þarf að hliðra aðeins til þegar allir nemendur skólans þurfa að fá hlutverk. Leikskólinn Krílabær tók þátt í uppfærslunni og segir Jón að það hafi gengið mjög vel að stjórna litlu krökkunum. Gekk alveg glimrandi vel Leikstjórinn, Hörður Þór Benón- ýsson, er að sögn Jóns mjög góður og þorir að taka áhættu með krakkana og leikverkið. Hann hefur ekki áður leikstýrt uppfærslu hjá Litlulauga- skóla, en hefur leikstýrt hjá Fram- haldsskólanum á Laugum og er van- ur að leika á sviði, hefur samið leikrit og kann að smíða leikmyndir. Leikararnir í Dýrunum í Hálsa- skógi núna eru margir að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu og öllum finnst hafa vel til tekist. Leikmyndin að þessu sinni var að mestu unnin af starfsfólki skólans, en nemendur á yngsta stigi og úr skólahóp bjuggu til tré og blóm til þess að skreyta salinn á Breiðumýri. Margir komu að því að sauma búninga og svo var líka fengið lánað frá Leikdeild Eflingar og úr leikmunageymslu í Hafralækj- arskóla. Myndir í leikskrá gerðu nemendur á miðstigi. Litlulaugaskóli hefur sýnt það í gegnum árin að leik- listin er engin hindrun og hefur skól- inn oft sýnt skemmtileg verk sem margir hafa haft gaman af. Jón Aðalsteinn hefur tekið þátt í öllum leikritum sem sett hafa verið upp í skólatíð hans og segir hann að Dýrin í Hálsaskógi séu skemmtileg- asta uppfærsla sem hann hafi tekið þátt í. „Auðvitað var ég dálítið kvíð- inn í byrjun á frumsýningunni en það hvarf bara strax og svo gekk þetta alveg glimrandi,“ segir hann sæll með árangurinn. „Ekkert dýr má éta annað dýr“  Litlulaugaskóli sýnir leikritið Dýrin í Hálsaskógi Ungir leikarar Dýrin í Hálsaskógi eru af ýmsum tegundum. Bangsamömmu og Bangsa litla leika Kristjana Freydís Stefánsdóttir og Hrólfur Jón Pétursson. Jón Aðalsteinn Hermannsson er ábúðarmikill sem Mikki refur. Í bakaríinu Það var mikið að gera í bakaríinu hjá Hérastubbi bakara sem leikinn er af Benóný Arnórssyni enda þarf að baka mikið af piparkökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.