Morgunblaðið - 27.03.2015, Page 2

Morgunblaðið - 27.03.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015 Farðu á www.joakims.is og skoðaðu og pantaðu eða sendu tölvupóst á joakims@simnet.is. Sími 698 4651 Veiðivesti kr. 6.500.Öndunarvöðlur kr. 19.000. Vöðluskór kr. 8.500. JOAKIM’SFLUGUVEIÐIVÖRUR FERMINGARTILBOÐ Flugustangir frá kr. 12.500. Fluguhjól frá kr. 16.000. La ge rsa la ím ars -S kú tuv og ur 10 F- Op ið frá 15 -1 8, má n.- fös . Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ráðgert er að byggja um 25 þúsund fermetra húsnæði í Vesturbugt sunnan við gömlu vesturhöfnina í Reykjavík. Borgin stefnir að því að hluti húsnæðisins verði félagslegur og verða að minnsta kosti 80 íbúðir á vegum Félagsbústaða og samstarfs- aðila í Vesturbugt undir merkjum Reykjavíkurhúsa. Nýtt deiliskipulag fyrir reitinn gerir ráð fyrir að þar verði byggðar alls um 170 íbúðir að því er segir í byggingarlýsingu í skýrslu starfs- hóps um ný Reykjavíkurhús í Vest- urbugt. Þar eiga að vera útsýnis- íbúðir, almennar íbúðir og raðhús auk leikskóla. Einnig er gert ráð fyr- ir bílakjallara og atvinnuhúsnæði. Byggingarnar verða 3-5 hæða, nokk- uð ólíkar í útliti en með samræmdu heildarútliti. Þjónusta verður á jarð- hæðum í hluta húsanna. Gert er ráð fyrir að rekstur bílageymsla verði í höndum bílastæðasjóðs. Meðalflat- armál íbúða með geymslu verður 78 fermetrar, samkvæmt fréttatilkynn- ingu borgarinnar. Borgarráð Reykjavíkur fjallaði í gær um skýrslu starfshóps um nýju Reykjavíkurhúsin sem eiga að rísa meðal annars í Vesturbugt og á Kirkjusandi. Á Kirkjusandsreitnum, sem er þar sem Strætó var áður með aðstöðu, er gert ráð fyrir um á annað hundrað íbúðum undir merkjum Reykjavíkurhúsa. Lagðar voru tillögur fyrir borgar- ráð um hvernig staðið verði að út- hlutuninni. Gert er ráð fyrir sam- starfi við einkaaðila um uppbygg- inguna en einnig félög sem reka leigu- og búseturéttarhúsnæði. Sér- staklega verður auglýst eftir sam- starfsaðilum í því skyni. Borgarráð mun taka afstöðu til tillagnanna á næsta fundi sínum, samkvæmt fréttatilkynningu frá Reykjavíkur- borg. Um leið og útboðsskilmálar hafa verið samþykktir verður auglýst eft- ir samstarfsaðilum. Reykjavíkur- borg gerir ráð fyrir að það geti orðið um miðjan apríl. Finna að kostnaðarforsendum Framsókn og flugvallarvinir lögðu fram bókun í borgarráði vegna fyr- irhugaðrar byggingar Reykjavíkur- húsa. Þeir telja að forsendur í kostnað- arlíkani séu ekki nægilega áreiðan- legar og því ekki hægt að taka af- stöðu til leiða sem kynntar hafa verið. Eins sé lögmætisköflum ábótavant. Þeir ítreka bókun sína frá 27. nóvember 2014 þar sem var lagt til að leitað yrði umsagna áður en borgarráð tæki ákvörðun um hvaða leið yrði valin. Uppbygging áformuð í Vesturbugtinni  Að minnsta kosti 80 íbúðir af um 170 verða undir merkjum Reykjavíkurhúsa  Ráðgert er að byggja alls um 25.000 fermetra húsnæði  Útsýnisíbúðir, almennar íbúðir, bílakjallari og raðhús auk leikskóla Teikning/ASK arkitektar Vesturbugt Gert er ráð fyrir mikilli uppbyggingu á svæðinu. Þar verður m.a. blönduð íbúðabyggð, bílakjallari, atvinnuhúsnæði og leikskóli. Gunnlaugur Árnason garnason@simnet.is Georg Ólafsson í Stykkishólmi er elstur íslenskra karlmanna en hann hélt upp á 106 ára afmæli sitt í gær, 26. mars. Fjölskylda hans fjölmennti vestur í Hólm og fagn- aði með ættföðurnum á þessum merku tímamótum. Undanfarin ár hefur Georg dvalið á Dvalarheimilinu í Stykk- ishólmi. Afmælisdaga heldur hann þó hátíðlega á heimili sínu að Silf- urgötu 15 í Stykkishólmi. Heimilið er eins og hann skildi við það þeg- ar hann fór á dvalarheimilið, synir hans og fjölskyldur þeirra nota það sem orlofshús og segir Georg að það þyki sér vænt um. Georg er fæddur í Akureyjum á Gilsfirði og ólst þar upp. Fjöl- skylda hans flutti svo að Ögri við Stykkishólm. Frá unglingsaldri hefur Georg búið í Stykkishólmi, hann giftist Þorbjörgu Júl- íusdóttur og eignuðust þau 3 syni. Georg er mjög ern. Hann er vel með á nótunum og fylgist með því sem er að gerast í kringum hann. Hann segist vera orðinn sjóndapur og því fari hann lítið um. Fornkapparnir í útvarpinu Hann hlustar mikið á útvarp sem styttir honum stundir og þessa dagana er hann að hlusta á út- varpssöguna á kvöldin. Nú er verið að lesa Íslendingasögurnar og hef- ur hann gaman af að rifja upp sög- urnar af fornköppum okkar, sem notuðu sverð og spjót, en ekki byssur eins og nú tíðkast. Þegar hann var spurður um hverju hann þakkaði góða heilsu sína og langlífi, sagðist hann ekki geta svarað því. „Þeir hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa áhuga á að skoða mig eitthvað nánar og kannski finna þeir einhver svör við því, við sjáum til.“ Ljósmynd/Gunnlaugur Árnason Afmælisbarn Georg fæddist 26. mars 1909 og náði því 106 ára aldri í gær. Í tilefni dagsins bauð hann í afmæl- isveislu að heimili sínu í Stykkishólmi og þangað komu vinir og vandamenn til að gleðjast með honum. Georg vekur áhuga Íslenskrar erfðagreiningar Georg Ólafsson er eini íslenski karlmaðurinn sem hefur náð 106 ára aldri svo vitað sé Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ásamt nokkrum öðrum þingmönnum flokksins lagt fram þingmanna- frumvarp um lögverndun starfs- heitis leiðsögumanna. „Ég geri ráð fyrir því að frumvarpið eigi eftir að taka breytingum í meðferð þingsins en markmið þess er fyrst og fremst að tryggja að þeir sem beri starfs- heitið leiðsögumaður hafi ákveðna lágmarksþekkingu og færni til að styðja við gæði ferðaþjónustu, ör- yggi ferðamanna og góða umgengni við náttúru landsins,“ segir Ás- mundur. Eingöngu þeir er ljúka námi, sem viðurkennt er af ríkinu, mega sam- kvæmt frumvarpinu kalla sig leið- sögumenn auk þeirra sem hafa haft leiðsögn að aðalstarfi í samanlagt þrjú ár og standast opinbert hæfn- ispróf. Ferðamálastofa á að halda skrá yfir þá sem fengið hafa leyfi og veita á stofnuninni heimild til að leggja gjald á leyfisveitingar. Frum- varpið er unnið í samvinnu við Félag leiðsögumanna. vilhjalmur@mbl.is Leiðsögumenn lögverndaðir Morgunblaðið/Eggert Starf Frumvarp um lögverndun starfsheitis leiðsögumanna lagt fram.  Eingöngu þeir sem ljúka viður- kenndu námi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.