Morgunblaðið - 27.03.2015, Side 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
Kringlunni 4c Sími 568 4900
Gallabuxur
margar gerðir og litir
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni
á michelsen.is
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
FOSSIL
36.700 kr.
Daniel Wellington
24.500 kr.
CASIO
5.700 kr.
JACQES LEMANS
19.900 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
ASA HRINGUR
13.400 kr.
ASA LOKKAR
7.800 kr.
ASA HÁLSMEN
19.300 kr.
Barnafataverslunin • Róló Glæsibæ
Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook
Páskatilboð!
20% afsláttur af öllum vörum fram á laugardag.
Nafn misritaðist
Í viðtali sem birtist í gær við Loga
Bjarnason myndlistarmann misrit-
aðist nafn eiginkonu hans. Hún heit-
ir Erla Margrét Gunnarsdóttir. Beð-
ist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Bið eftir tíma hjá heimilislækni á
Heilsugæslustöðinni í Efstaleiti er
rúmur mánuður, samkvæmt svörum
sem einn skjólstæðinga heilsugæsl-
unnar fékk nýverið.
Að sögn Gunn-
ars Helga Gunn-
arssonar yf-
irlæknis er um
óvenjulega stöðu
að ræða sem
standi til bóta á
næstu mánuðum.
,,Þessi bið
skýrist af því að
fimm læknar
hurfu frá okkur
um áramótin.
Þrír þeirra fóru í fæðingarorlof, einn
í langtíma veikindaleyfi og einn er að
flytja út til Svíþjóðar. Þannig kom
þessi óvenjulegi læknaskortur til,
sem er í raun bara óheppni. Þetta
stendur þó allt til bóta þar sem tveir
læknar koma til liðs við okkur 1. maí,
einn læknir kemur úr fæðingarorlofi
1. ágúst og annar hinn 1. sept-
ember.“
Auglýstu tvisvar eftir læknum
Gunnar Helgi segir Heilsugæsl-
una í Efstaleiti hafa auglýst tvívegis
eftir læknum í haust á meðan kjara-
deila lækna stóð yfir. Þær auglýs-
ingar hafi ekki skilað árangri. Þá
hafi stöðin auglýst tvær sérnáms-
stöður í vor en aðeins einn sótt um.
Hann bendir á að læknaskortur sé
enn viðvarandi á höfuðborgarsvæð-
inu og líklega vanti um 30-40 lækna.
Í umfjöllun Morgunblaðsins um
málið frá því í febrúar síðastliðnum
kom fram að nú væru um 35 læknar í
sérnámi í heimilislækningum hér á
landi, sem væri mikil aukning frá því
fyrir fimm árum þegar þeir voru
tólf. Um þriðjungur sérnámslækn-
anna er úti á landi en tveir þriðju á
höfuðborgarsvæðinu. brynja@mbl.is
Bæta þarf
úr lækna-
skorti
Biðtími sagður
vera mánuður
Gunnar Helgi
Guðmundsson
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tryggja þarf stöðuga fjárveitingu
til uppbyggingar innviða á ferða-
mannastöðum vítt og breitt um
landið að mati
Ragnheiðar El-
ínar Árnadóttur,
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra. Í
ræðu hennar á
aðalfundi Sam-
taka ferðaþjón-
ustunnar á Egils-
stöðum í gær
benti Ragnheiður
á að heildar-
úthlutanir úr
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða í fyrra hefðu aldrei verið
hærri, þær voru yfir 600 milljónir
króna en það hafi þó ekki dugað til.
„Þörfin er gríðarlega mikil eins og
sláandi fréttaflutningur og myndir
frá Geysi sýna okkur svart á hvítu
en þar þurfum við í samvinnu við
landeigendur að taka höndum sam-
an og gera verulegar úrbætur,“ seg-
ir Ragnheiður. Á næstu árum er
áætlað að setja þurfi um milljarð
króna á ári í uppbyggingu innviða
og viðhald á ferðamannastöðum.
Greindi hún frá því að hún hefði í
samráði við fjármálaráðherra hafið
vinnu við að kortleggja sérstaklega
þann kostnað við staði í umsjón rík-
isins. Auk þess að tryggja stöðuga
fjárveitingu til þessara mála hefði
markmiðið með náttúrupassa verið
að dreifa álagi ferðamanna og fjölga
áfangastöðum. „Hvort sem sú heild-
arlausn, sem nú er komin til Alþing-
is í formi frumvarps um nátt-
úrupassa, nær fram að ganga eða
ekki þá verður að tryggja að fjöl-
sóttir ferðamannastaðir og aðrar
náttúruperlur landsins séu boðlegar
bæði landsmönnum og ferðamönn-
um til frambúðar. Við viljum ekki að
helstu ferðamannastaðir landsins
skemmist vegna aðgerðarleysis,“
segir Ragnheiður en bendir jafn-
framt á að ábyrgðin sé ekki bara
ríkisins heldur einnig sveitarfélaga
og einkaaðila sem eiga land og
ferðaþjónustunnar sjálfrar. Ekki
liggur fyrir hversu stór hluti upp-
byggingarinnar er á ábyrgð ríkisins
en spurð um það segir Ragnheiður:
„Við höfum séð í gegnum tíðina að
umsóknir í gegnum Fram-
kvæmdasjóðinn hafa verið um 40 til
45 prósent af hálfu ríkisins en það
eru ekki algild sannindi í þessum
fræðum.“
Milljarður á ári í uppbyggingu
Ferðamannastaðir í eigu ríkisins verða skoðaðir sérstaklega Uppbygging
og viðhald einnig á ábyrgð sveitarfélaga og einkaaðila að sögn ráðherra
Morgunblaðið/Kristinn
Ferðamenn Helstu náttúruperlur landsins og ferðamannastaðir mega ekki
skemmast vegna aðgerðarleysis að mati iðnaðar- og viðskiptaráðherra.Ragnheiður Elín
Árnadóttir