Morgunblaðið - 27.03.2015, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2015
„Við teljum að aldrei sé of mikið gert
af því að kynna íslenskan sjávar-
útveg og þær gæðavörur sem við er-
um að framleiða,“ segir Hjörtur
Gíslason, yfirrit-
stjóri alþjóðlega
sjávarútvegs-
vefjarins Ice-
FishNews sem
hleypt hefur ver-
ið af stokkunum.
Útgefandi er
Ólafur M. Jó-
hannesson sem
stýrir jafnframt
íslenska sjáv-
arútvegsmiðlinum kvotinn.is en
Hjörtur er ritstjóri beggja miðlanna.
Á alþjóðlega vefnum sem er á
slóðinni icefishnews.com, eru birtar
daglega fréttir á ensku um það
helsta sem er á döfinni í sjávarútvegi
á Íslandi og telja má að eigi erindi til
þeirra sem áhuga kunna að hafa á ís-
lenskum sjávarútvegi í heimsbyggð-
inni.
Markmiðið er að vekja athygli á
sem flestum þáttum íslensks sjávar-
útvegs og þeirri hágæða matvöru
sem hann framleiðir og flytur utan.
Vefurinn mun því spanna litrófið allt
frá veiðum til vinnslu, markaðs-
setningar og sölu og matreiðslu af-
urðanna. Sagt verður frá því sem er
að gerast í framleiðslu hugbúnaðar
fyrir sjávarútveginn, framleiðslu á
hvers kyns búnaði til veiða og
vinnslu og leitast verður við að segja
frá fólkinu sem að baki stendur.
Víð skírskotun
Vefurinn er öllum opinn, án end-
urgjalds, og honum verður fylgt eftir
með fréttabréfi sem reglulega verð-
ur sent til á níunda hundrað fyr-
irtækja í sjávarútvegi um víða ver-
öld. Hjörtur segir að markhópurinn
sé nokkuð víður, ekki aðeins „sjáv-
arútvegskarlar“ heldur almenn-
ingur. „Við gerum okkur vonir um
að fólk sem er að leita á vefnum að
Íslandi eða sjávarútvegi lendi inni á
vefnum og þannig geti orðið töluverð
snerting. Við lítum á þetta sem
ódýra og einfalda leið fyrir íslenskan
sjávarútveg að fá kynningu.“
Á kvotinn.is eru birtar margar
fréttir á hverjum degi. Færri fréttir
birtast á alþjóðlega vefnum. Rit-
stjórinn velur þær fréttir sem hann
telur að geti vakið athygli.
helgi@mbl.is
Fréttir af sjávar-
útvegi til heimsins
Alþjóðlegum vef hleypt af stokkunum
Hjörtur
Gíslason
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Sigurjón M. Egilsson hefur látið af
starfi fréttastjóra 365 miðla. Í til-
kynningu frá 365 í gær kemur fram
að hann láti af störfum að eigin ósk
og hyggist einbeita sér að útvarps-
þætti sínum Sprengisandi á Bylgj-
unni auk þess að sjá um frekari dag-
skrárgerð fyrir útvarpsstöðina.
Samhliða þessu verða þær skipu-
lagsbreytingar á fréttastofunni að
Andri Ólafsson, Hrund Þórsdóttir og
Kolbeinn Tumi Daðason verða að-
stoðarritstjórar og Halldór Tinni
Sveinsson verður þróunarstjóri.
Kristín Þorsteinsdóttir verður hins
vegar áfram aðalritstjóri og útgef-
andi, segir í tilkynningunni.
Ekki er langt síðan yfirstjórn
fréttastofu 365 miðla tók gagngerum
breytingum. Mikael Torfasyni, þá-
verandi aðalritstjóra 365 miðla, var
sagt upp í ágúst 2014 og í kjölfarið lét
Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri
Fréttablaðsins, af störfum.
Aðstoðarritstjórinn sagði upp
Ólafur var ráðinn 2010 og Mikael
var ráðinn í mars 2013 við hlið Ólafs.
Þegar Mikael var ráðinn til 365 sagði
Steinunn Stefánsdóttir aðstoðarrit-
stjóri Fréttablaðsins upp starfi sínu.
Haft var eftir Steinunni í fjölmiðlum
að hún hefði ekki hætt ef þessar
breytingar hefðu ekki komið til á rit-
stjórn blaðsins. Um svipað leyti
sagði Þórður Snær Júlíusson, við-
skiptaritstjóri blaðsins, upp störfum.
Í maí sama ár voru allar fréttastof-
ur 365 sameinaðar; Fréttablaðsins,
Stöðvar 2 og Vísis. Þá var Mikael
settur aðalritstjóri fréttastofunnar
og Ólafur var áfram ritstjóri.
Þegar Ólafur sagði upp störfum
sagði hann að breytingar á starfi
hans hefðu falið í sér riftun á ráðn-
ingarsamningi og hann væri því
óbundinn af honum. Benti hann á að
ráðning tveggja nýrra ritstjóra fæli í
sér að til stæði að breyta verulega
verkefnum hans, starfsskyldum og
ábyrgð. Gæti hann ekki litið öðruvísu
á stöðu mála en svo að ætlunin væri
að þrengja að sjálfstæði hans sem
ritstjóra.
Sigurjón M. Egilsson tók við af
Mikael. Hann hafði upphaflega tit-
ilinn fréttaritstjóri en titlinum var
síðar breytt í fréttastjóri 365 miðla.
Þegar þeir Ólafur og Mikael hættu
í ágúst 2014 var haft eftir Sævari
Frey Þráinssyni, núverandi forstjóra
365 miðla, að fyrirtækið vildi efla
sjálfstæði fréttastofunnar og efla
hlut kvenna í fréttaskrifum. Breyt-
ingar á mannskap væru liður í þeirri
viðleitni. Lét hann þau orð falla að
keppnisskap hefði vantað til þess að
fréttastofan gæti virkjað betur hæfi-
leikafólk innan hennar.
Sævar Freyr var þá nýráðinn for-
stjóri fyrirtækisins en hann tók við af
Ara Edwald í júlí í fyrra.
Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrver-
andi stjórnarmaður í 365 og starfs-
maður á samskiptasviði Baugs, var
einnig ráðin útgefandi 365 miðla í
sama mánuði.
Margar uppsagnir í lok árs
Allmörgum starfsmönnum var
sagt upp hjá 365 á síðustu mánuðum
síðasta árs. Var tíu fastráðnum
starfsmönnum sagt upp í lok október
síðastliðins auk átta verktaka. Einn-
ig var nokkrum starfsmönnum sagt
upp í september. Í desember sl. var
átta starfsmönnum sagt upp störfum
á sölu-, þjónustu- og fjármálasviði
fyrirtækisins.
Sævar Freyr, forstjóri 365 miðla,
sagði við síðustu uppsagnahrinu, í
desember 2014, að um væri að ræða
hagræðingu í rekstri og einföldun
skipulags. Sagðist hann ekki eiga
von á frekari uppsögnum.
Sigurjón hættir
sem fréttastjóri
365 miðla
Miklar breytingar hafa orðið á
yfirstjórn frétta hjá 365 undanfarin ár